Fálkinn - 05.02.1960, Page 3
FALKINN
3
I* j<»ðlcilt li ú sið:
Kardemoramubærinn
Höf: Thorbjörn Egner.
Þýðandi Hulda Valtýsdóttir.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson.
Þau eru ófá börnin, sem þekkja
söguna um þá Karíus og Baktus,
sem kom út í íslenzkri þýðingu fyr-
ir nokkrum árum og ef til vill kann-
ast ennþá fleiri krakkar við söguna
um fólk og ræningja í Karde-
mommubæ, sem var framhaldssaga
barnanna í útvarpinu, en það er ein-
mitt sami maðurinn, sem samdi þær
báðar: Thorbjörn Egner. Og nú
sýnir Þjóðleikhúsið Kardemommu-
bæinn, sem er auðvitað gert eftir
sögunni. Já og þar er nú líf í tusk-
unum. Annars er þetta ósköp lítill
og skemmtilegur bær, fullur með
lífsfjör og elskusemi, enda er sjálf-
ur bæjarfógetinn Bastian sérdeilis
góður maður, sem öllu vill snúa til
betra vegar með vasabókinni sinni.
Og svo á bærinn líka sinn veðurvita,
hann Tobba gamla og auðvitað rak-
ara, sem er alveg eins liðugur í fót-
unum og höndunum, en rakarinn er
einnig aðal tónlistarmaðurinn í
bænum, þarna er og gustmikil
frænka, hún Soffía og pylsugerðar-
maður, bakari, sporvagnsstjóri,
kaupmaður, asni og úlfaldi, köttur
og hundar og hestur að ógleymdu
ljóninu og páfagauknum.
En í þessum góða bæ búa líka
aðrir karlar: ræningjarnir þrír, þeir
Kasper, Jesper og Jónatan. Og þar
gefur aldeilis á að líta. Þarna eru
þeir úti að ræna á nóttunni en sofa
á daginn, og svo slungnir eru þeir,
að þeir hreinlega ræna Soffíu
frænku sofandi, en þeir sáu nú mik-
ið eftir því, en það er önnur saga.
Framh. á bls. 15.
Ræningjarnir Ævar, Baldvin, og Bessi; Sörensen, Helgi Skúlason; Bastian, Róbert Arnfinnsson
og frú Bastian, Anna Guðmundsdóttir.
inu, þar sem birt var ávarp frá
stjórn sambandsins, er þess getið
meðal annars að bankablaðinu sé
ætlað að tengja saman í eina sam-
huga heild, alla bankamenn á ís-
landi. Blaðinu var ætlað að eiga
verulegan þátt í því að gera hinu
unga sambandi fært að ná tilgangi
sínum.
Innan vébanda sambandsins eru
518 starfandi bankamenn á ölluland-
inu. Ýmsir sjóðir eru starfræktir á
vegum sambandsins til þess að
greiða og hjálpa fyrir bankamönn-
um, svo sem eftirlaunasjóður, sem
veitir lán til húsbygginga banka-
manna, kynnisferðasjóður, sem
styrkir eldri bankamenn til utan-
fara og er nú svo öflugur orðinn, að
árlega njóta styrks úr honum sex
bankamenn. Þá er námssjóður
bankamanna í tveim bönkum og
veitir hann árlega stuðning ungu
bankafólki, sem fer utan til náms.
Bankablaðið hefur komið út allt
frá stofnun sambandsins. Fyrst
framan af var starfandi sérstök rit-
nefnd, síðan tók Adolf Björnsson
við ritstjórn blaðsins, en núverandi
ritstjóri er Bjarni Magnússon og
hefur hann verið það frá 1947.
Bankamannasambandið hefur
tekið í sínar hendur að semja um
kaup og kjör allra bankamanna og
náðist sá áfangi 1956, þegar settar
voru samhljóða reglugerðir um
launakjör starfsmanna allra fjög-
urr^ aðalbanka landsins. Þá hefur
undanfarið verið unnið að endur-
skoðun og samræmingu eftirlauna-
reglugerðar bankastarfsmanna og
hefur sambandsstjórnin átt hlut að
því máli. Einnig hefur Samband ís-
lenzkra bankamanna stuðlað að
námsferðum til útlanda, þátttöku í
hinum alþjóðlegu sumarnámskeið-
um fyrir bankamenn og þátttöku í
norræna bankamannasambandinu.
Þegar litið er yfir 25 ára starf
Sambands islenzkra bankamanna,
verður ekki annað sagt en að það
hafi mörgu góðu til leiðar komið,
sem til hagsældar hefur horft fyrir
stéttina.
Samband bankamanna 25 ára
Úr Landsbankanum.
í síðustu viku voru liðin 25 ár
frá stofnun sambands íslenzkra
bankamanna, en það eru heildar-
samtök starfmanna í bönkum lands-
ins og öllum stærstu sparisjóðum.
Það voru starfsmenn Landsbanka
íslands og Útvegsbankans, sem
stóðu að þessari stofnun, en í báðum
bönkunum höfðu verið starfs-
mannafélög. Stofnfundurinn var
haldinn 30. janúar 1935. Aðaltil-
gangur sambandsins var að vinna
að skipulegri félagsstarfsemi banka-
manna og að gæta hagsmuna þeirra
í hvívetna og að hafa á hendi for-
ustu í þeim málum er snerta starf
og kjör sambandsfélaga almennt.
í fyrstu sambandsstjórn áttu sæti
Haraldur Johannessen, forseti,
Franz A. Andersen, Baldur Sveins-
son, Einvarður Hallvarðsson og
Elías Halldórsson. Eru allir þessir
menn að Franz undanskildum enn
starfandi bankamenn.
Eitt af fyrstu verkefnum sam-
bandsstjórnarinnar var að hefja út-
gáfu bankablaðsins og kom það út
í júlímánuði sama ár. í fyrsta blað-