Fálkinn


Fálkinn - 11.01.1961, Qupperneq 28

Fálkinn - 11.01.1961, Qupperneq 28
Mike Vegas þóttist verða að strjúka hárið og laga hálsbindið, áður en hann drap á skrifstofudyrnar hjá Wally Ad- ams. Hann var starfsmaður lögreglunn- ar, og þeir fá ekki kaupið sitt fyrir út- litið, en milljónir þekktu sjónvarpsgoð- ið Wally Adams, og Mike Vegas fannst hann verða að gera eitthvað. — Kom inn! Mike Vegas opnaði dyrnar og depl- aði augunum, er hann sá andlitið fyrir innan skrifborðið. Hann ræskti sig og sagði til nafns síns. Adams var líkur því sem Mike hafði séð hann í sjón- varpinu, og það var skrítið að sjá hann þarna sjálfan. — Jæja, sagði Adams og bauð Mike sæti við skrifborðið. — Mér er illa við að ónáða lögregluna, en ég er hræddur um að þetta sé alvarlegt mál. Ég veit ekki hverju ég á að trúa. — Þér minntust á bréf, sagði Mike. — Var það hótanabréf? — Nei, alls ekki. Ég get ekki ábyrgzt að það sé ekta. En ef svo er .... jæja, það ,er bezt að þér lesið það sjálfur. Adams tók samanbrotið blað upp úr vasanum. — Hafið þér séð fimmtudags- þáttinn okkar, hr Vegas? Ef þér hafið ekki séð hann, eigið þér sjálfsagt erfitt með að skilja bréfið. — Ég þekki þennan þátt, sagði Mike. — „Hver er maðurinn?“ — Já, einmitt. Þá vitið þér út á hvað hann gengur. Við náum í fólk, sem blöð- in hafa nýlega talað um einhverra hluta vegna. Fórnarlambið er með grímu, og svo eiga hinar að komast að hver mað- urinn er, með því að spyrja spurninga .... en lesið þér nú bréfið! Mike tók blaðið. Rithöndin var nett og falleg, kannske svolítið tilgerðarleg, en Mike hleypti brúnum, er hann fór að lesa. Kœri hr. Adams: — Ég hef horft talsvert oft á þáttinn yðar, og ég hugsa að þér hefðuð gaman af að fá mig í gapastokkinn. Ég vil helzt ekki þurfa að gefa of nákvœma lýsingu á sjálfum mér — af ástœðum, sem eru skiljanlegar, en ég er fertugur og vélateiknari, starfa hjá verkfrœðinga- firma í Long Island City, giftur, barn- laus. Á heima á Manhattan, og kon- an mín hefur dáð yður mikið árum saman. Ég tel, að ég hafi gert talsvert, sem reynir á þolrifin í spyrjendun- um, ef þeir verða látnir spreyta sig á mér. Ég er morðingi! Ég geri mér Ijóst, að menn í yðar stöðu fá oft bréf frá brjáluðu fólki. Það er skiljanlegt þó þér teljið mig í þeim hóp, en ég fullvissa yður um, að ég er með öllum mjalla og að það er satt, sem ég hef sagt yður. — Ég er sekur um morð af ásettu ráði, og fús til að láta afhjúpa mig í þættin- um. Yður mun finnast tilboð mitt ó- venjulegt, en bendi yður á, að það er borgaraleg skylda yðar að fletta of- an af glæpnum. Ef afhjúpunin verð- ur ekki gerð í sjónvarpinu mun ég þegja, og glœpurinn kemst aldrei upp. Ef þér viljið ná sambandi við mig skuluð þér senda mér bréf, stílað til John Rice, poste restante á aðalpóst- húsinu. Þetta er auðvitað dulnefni. Ef þér reynið að ná í mig, er ég vitja bréfsins, mun ég neita öllu, sem ég hef skrifað hér! — Vona að heyra frá yður sem fyrst. Með beztu kveðju. John Rice. MIKE VEGAS fann hvernig Wally Adams horfði á hann meðan hann var að lesa bréfið. Hann reyndi að láta ekki á því bera, að hann væri hissa, en sagði: — Þetta er gífurlegt tilboð, en hvað segja Þeir, sem eiga að borga brúsann? — Ég skal ekki leyna yður neinu, svaraði Adams og brosti. — John Rice sér réttilega, að þetta er peninga virði fyrir okkur. En firmað,, sem borgar dag- skrána, gerir sér líka ljóst, að það get- ur orðið hneykslismál út af svona til- tæki. Þess vegna töldum við réttast að spyrja lögregluna ráða. — Það var rétt athugað, sagði Mike og stóð upp. Honum leið alltaf betur, þegar hann stóð í fæturna. — Við meg- um ekki hlaupa á okkur. Kannske hefur þessi náungi drepið einhvern, og þá er þetta eina ráðið til að ná í hann. — Þér álítið þá að við eigum að láta hann koma í sjónvarpið? — Já, það finnst mér, en ég vil ekki afráða það einn. Við verðum að tala við saksóknara ríkisins. — ViðXviljum hafa samvinnu um þetta, sagði Adams. — En þið verðið að ákveða, hvað gera skal. — Þakka yður fyrir, hr. Adams. Nú tek ég þetta bréf og læt rannsóknastof- una athuga það. Hver. veit nema eitt- hvað hafizt upp úr því? Og undir eins og ég verð einhvers vísari í málinu, skal ég láta yður vita. — Ágætt, sagði Wally Adams og tók í höndina á Mike. — Ég þarf ekki að taka fram, að ég bíð í ofvæni. SVO leið nærri því vika þangað til Mike Vegas kom aftur. En þá var Wally Adams ekki einn, en mörg fræg and- lit hjá honum. — Þér hafið sjálfsagt séð þennan áð-

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.