Fálkinn - 10.05.1961, Side 33
an í hattinn? Það var gott. Þá skulum
við gera þetta einu sinni enn, og sjá
hvernig gengur.
Og svo var sýningin endurtekin. Ég
veifaði prikinu yfir hattinum, hrópaði
töfraorðin, barði í hattinn, og svo tók
Marvello hendinni yfir silkiklútinn.
— En þarna er hún þá, sagði hann
og svipti klútnum af. Og þarna sat kan-
ínan í hattinum, með rauð augu og hvít
eyru, sem voru ljósrauð að innan.
— Taktu hana upp úr hattinum, og
vertu nú fljótur, sagði Marvello og
brosti. — Taktu hana! Þú mátt eiga
hana! En hlauptu nú heim með klútinn
hennar mömmu þinnar, áður en hún tek-
ur eftir að þú hefur stolið honum. Því
að þá yrði hún reið.
Ég vissi ekki hvað ég átti að gera við
kanínuna. Ég varð að segja mömmu alla
söguna. Ég fékk flengingu í sögulaun
og var skipað að hátta.
Ég hafði tekið á mig langan krók á
heimleiðinni til þess að hafa sem lengst-
an tíma til að dást að kanínunni. Og
ég var sæll á leiðinni.
En nú var ég hálf erfilegur út í Mar-
vello. Því að ef hann hefði ekki komið
inn og truflað mig, mundi ég kannske
hafa fengið tvær eða þrjár kanínur.
Eða jafnvel fjórar.
ASTARSOGUR
SKEMMTILEGAR OG
ÓDÝRAR
Nokkur eintök eru enn óseld af hin-
um geysivinsælu sögum Laugardags-
ritsins og Vikuritsins og fást nú fyrir
helming verðs og minna g'egn póst-
kröfu. Barharinn og Ötemjan seldust
strax upp. Höfum fengið tvær nýj-
ar sögur, Heitt blóð og Vilji örlag-
anna. Sögur þær, sem nú fást, eru:
□ Heitt blóð .... nú aðeins kr. 16
□ Vilji örlaganna — — — 20
□ Ögift eiginkona -— — — 18
□ Ólgublóð......— — — 16
□ Barátta læknisins— —- — 18
□ Ambáttin ........— — — 20
Vinsamlegast sendið mér undirrituð-
um i póstkröfu bækur þær, sem ég
lief merkt við hér að ofan.
NAFN
HEIMILISFANG
BÓKAMIÐSTÖÐIN
GRENIMEL 16, REYKJAVÍK.
ga
*
SS „4 iiliMU “i!ÉSí;ii!i $ 1 1 «' í! * flSHlMilÍ SlflS
STJÖRNUSPÁIN
Hrútsmerkið:
Gætið þess að fæla ekki frá yður góðan vin og félaga með
meiningarlausu skensi. Það er saklaust að skopast að vin-
um sínum, — en því aðeins að gamanið sé græskulaust. Þér
þurfið á hjálp þessa vinar yðar að halda bráðlega, og því
ríður á, að hann sé yður vinveittur. Útlit fyrir batnandi
f járhag.
Nautsmerkið:
Vikan lofar nýjum vinum, sem munu reynast yður vel
og drengilega. í máli, sem verður æ flóknara með hverjum
degi sem líður, er hið eina, sem þér getið gert að hlýða
kalli samvizkunnar hverju sinni, svo að þér getið í það
minnsta friðað sjálfan yður með því, að þér hafið gert
yðar bezta.
Tvíburamerkið:
Fjárhagur yðar verður stöðugt traustari, og það er útíit
fyrir að þér fáið ævagamla ósk uppfyllta. Þér þurfið þess
vegna engan veginn að kvarta og barma yður og þér skul-
uö varast að leika píslarvott. þessa viku, að minnsta kosti.
Með því móti gerið þér yður að athlægi.
Krabbamerlcið:
Á miðvikudag upphefst. tímabil rósemi og jafnvægis í
lífi yðar. Bæði á vinnustað og 1 einkalífi verður gott ástand:
stöðugar framfarir og velstand. Gætið þess vel að láta ekki
eitthvert lítilræði raska ró yðar. Vikulokin verða einstak-
lega ánægjuleg.
Ljónsmerkið:
Reynið að leggja höfuðið vel í bleyt.i til þess að finna
einhverja lausn á því máli, sem leggst þyngst á hug yðar
og hjarta um þessar mundir. Það gagnar ekki að flýja
endalaust. Það gerir aðeins illt verra. Hugsið málið frá öll-
um hliðum og þá hljótið þér að finna viðunandi lausn.
Jómfrúarmerkið:
Ákveðin manneskja þarfnast hjálpar yðar, en hún hefur
ekki kjark til þess að biðja yður um hana. Reynizt henni
vel. Það getur borgað sig síðar meir. Þær breytingar, sem
þér hafið í hyggju í sambandi við einkalíf yðar, verða til
bóta, að því er stjörnurnar fá bezt séð.
Vogarslcálarmerkið:
Þér heimtið aftur eitthvað, sem þér hélduð yður hafa glat-
að fyrir fullt og allt. Þér verðið himinlifandi, en í vikulokin
kemur fyrir atvik, sem varpar skugga á þetta mál. Þér
komizt að raun um, að yður hefur skjátlazt hrapallega, en
verðið reynslunni ríkari á eftir. Það er fátt fullkomið í
þessum blessaða heimi.
Sporðdrekamerkið:
Þér standið í anddyri nýs og hamingjuríks tímabils, sem
verður barmafullt af velgengni og vellíðan. Þér verðið stöð-
ugt í fyrsta flokks skapi og allra ánægðastur yfir því að
geta nú veitt yður dálítið, sem þér hafið þráð alla ævi.
Gleymið samt ekki hverjum öll þessi gleði er að þakka.
B o gmannsmerkið:
Þér eruð mjög hjálpsamur einni manneskju, en ef þér
hjálpið henni meir með hugarfari kaupsýslumannsins en vin-
arins, þá er mjög mikil hætta á að illa fari fyrr eða síðar.
— Skemmtilegt ævintýri, sem þér ætluðuð að lifa í viku-
lokin, fer því miður alveg út um þúfur.
Steingeitarmerlcið:
Strax á mánudag verðið þér fyrir óþægindum: Það kemur
í ljós, að þér hafið sýnt hlutdrægni í ákveðnu máli, og verð-
ið að beygja yður og fara eftir ráðleggingu hæfari og reynd-
ari manna t.il þess að bjarga málinu. Hér er um að ræða
mál, sem varðar alla framtíð yðar.
V atnsberamerkið:
Eitthvð nýtt bíður yðar á næsta leiti og getur haft í för
með sér einmanakennd. En látið það ekki á yður fá. Smátt
og smátt eykst öryggi yðar og með sjálfstæði og öryggi hverf-
ur einmanakenndin. Miðvikudagurinn verður beztur. Óvænt
tíðindi í vændum.
Fiskamerkið:
Þér fáið tækifæri til þess að auka við þekkingu yðar til
mikilla muna á ákveðnu sviði. Sleppið ekki þessu gullna
tækifæri. Það gefur kannski ekki beinharða peninga í aðra
hönd, en fyrir tilverknað þess öðlist þér það, sem er meira
virði en peningar.
21. MARZ —
20. APRlL
21. APRlL —
21. MAl
22. MAl —
21. JÚNl
22. IÚN1 —
22. IÚLI
23. IÚLÍ —
23. ÁGÚST
24. AGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. JAN.
21. JAN. —
19. FEBR.
20. FEBR. —
20. MARZ