Fálkinn - 13.09.1961, Blaðsíða 29
þegar ég .... þegar ég var veik, sagði
hún. — Það hafið þér kannski heyrt?
Það hefur kannske verið óþægileg til-
hugsun fyrir yður?
Hann leit rólegur í augu hennar. —
Nei, svo sannarlega ekki, frú Bronn,
svaraði hann, og rödd hans lýsti sama
innileikanum og svipur hans.
— Það þykir mér vænt um að heyra,
andvarpaði Charlotte, — heima keppast
þau öll við að reyna að hylma yfir þá
óhrekjanlegu staðreynd, að ég hafi ver-
ið á geðveikrahæli. Ég hef verið að
hugsa um, hvað þau eiginlega hafa hugs-
að um mig, hr. Diamond?
— Þér eruð alls ekki eins og ég hafði
búizt við, svaraði hann einlæglega. —
Ég hafði ímyndað mér yður eitthvað
líkt og Joan og frú Winthrop, þó að ég
vissi að hún væri aðeins stjúpmóðir
yðar.
— Móðir mín var allt öðruvísi, sagði
Charlotte lágt. — Hún var lítil og grönn
og .... og mjög falleg. Hún dó rétt
eftir að ég varð átta ára.
Hún lokaði augunum andartak, henni
tók alltaf sárt að hugsa til móður sinn-
ar. Hún minntist hennar í rauninni að-
eins óljóst. Ætlaði hún aldrei að losna
við þessa einmanakennd, sem aftur var
farin að ná tökum á henni?
— Þér eruð fyrsta manneskjan, sem
ég hef reglulega talað við, sagði hún
fljótmælt, til að hugsa um eitthvað ann-
að. — Það er að segja fyrsta ókunnuga
manneskjan. Það er hlutur, sem ég hef
kviðið svo fyrir, en nú geri ég það ekki
lengur.
Hinn ungi og alvörugefni háskóla-
kennari var í rauninni sá eini af þeim,
sem Charlotte umgekkst, sem hafði feng-
ið hana til að finnast hún vera heil-
brigð aftur. Henni varð samtímis ljóst,
að hann dáði hana og fannst hún vera
aum og falleg, og það var henni dá-
samlega mikils virði, einmitt á þeim
tíma, þegar enginn annar virtist sækj-
ast eftir henni. Að minnsta kosti gerði
Arnold það ekki.
Eftir því sem tíminn leið, sá hún
eiginmann sinn æ sjaldnar. í stað þess
að nálgast hana, breikkaði hann heldur
bilið á milli þeirra, og það særði hana
óbærilega.
Dag nokkurn, þegar hún vissi að hann
átti ekki að halda neinn fyrirlestur,
bað hún hann að afturkalla heimboð
nokkurt og vera heima hjá sér. Hún
hafði farið í nýjan kjól, til að gleðja
hann.
— Það er því miður ekki hægt, sagði
hann þurrlega.
— Gerir þú þér ljóst, að við höfum
ekki verið ein saman eitt andartak, síð-
an ég kom heim? spurði hún. — Mér
finnst ég vera í fangelsi. Ég geng um
húsið, ég fer í gönguferð, ég bíð eftir
að þú komir heim. Ég bíð eftir að
verða heilbrigð. Ég bið, bíð og bíð. Ég
verð aldrei heilbrigð aftur, Arnold, ef
ég á að einangra mig svona frá um-
heiminum.
(Framh. í nœsta blaði).
>
*
*
*
Wi
1
*
*
*
&
*
&
*
*
<{X
w
&
>
*
*
*
>
$
%
*
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl).
Það lítur út fyrir að þér verðið mjög heppin í þessari
viku í öllu, sem snertir fjármál. Hins vegar skuluð þér ekki
gleyma, að sparnaður er upphaf auðs og þér ættuð því að
reyna að fara svolítið skynsamlega með fé og tefla ekki
á tvær hættur í fjármálunum. Laugardagur verður ef til
vill gleðiríkur.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí).
Kímnigáfa yðar ætti að hjálpa yður til þess að yfirstíga
ýmsa örðugleika, sem hafa angrað yður upp á síðkastiö.
Stjörnurnar segja, að það muni reyna mikið á þolinmæði
foreldra, sem eiga stálpuð börn, en vandræði þessi munu
ef til vill leysast af sjálfu sér. Þér munduð að öllum lík-
indum lenda í skemmtilegu ástarævintýri á föstudag.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní).
Þér munuð eiga annríkt í vikunni og þér skuluð kapp-
kosta að vinna vel, því að máski hækkið þér í tign. Annars
skuluð þér ekkert verða hræddir við að taka yður hvíld, ef
þér þreytist um of. Óvæntir atburðir á laugardag munu
gleðja yður og hryggja í senn.
Krabbamerkið (22. júni — 22. júlí).
Þér lát.ið aðra hafa allt of mikil áhrif á gerðir yðar,
reynið því að vera svolítið sjálfstæðir og gera það, sem
yður finnst réttast. Þessi vika mun annars vera full af
rómantík og smáástarævintýrum, en varast skuluð þér háa
dökkklædda veru, sem mun reyna að draga yður á tálar.
Ljónsmerkið (23. júlí — 23. ágúst).
Það er greinilegt, að þér eruð allt. of hrokafullir gagnvart
þeim, sem lægra eru settir. Þér ættuð þess vegna að venja
yðar af þessum ósið, því að steigurlæti eru jafnan einkenni
heimskra mannua, og það er sízt hægt að segja um yður.
Bréf frá gömlum vini mun setja yður úr jafnvægi.
Jómfrúarmerkið (21+. ágúst — 23. sept.).
Með því að umgangast meira ungt og kátt fólk, mun skap
yðar batna og allt mun leika í ljúfasta lyndi um stund. J
þessari viku gefst yður gott tækifæri til þess að sinna ætt-
ingjum yðar og vinum, sem mest hafa orðið fyrir barðinu
á hinu fúla skapi yðar undanfarið.
Vogarskálarmerkið (21+. sept. — 23. okt.).
Margt fólk mun síðar álíta, að þessi yika hafi verið
einna ánægjulegust, það sem af er árinu. Öll áform yðar
munu heppnast, svo framarlega sem þau geta heppnazt, því
að mörg þeirra eru ekkert annað en loftkastalar, sem menn
munu draga dár að og hlæja mikið á yðar kostnað.
SporðdrekamerJcið (21+. okt. — 22. nóv.).
í þessari viku munu nokkrir vina yðar og kunningja koma
til yðar og leita ráða hjá yður. Þér eruð í vanda staddir
hvað gjöra skal í þeim málum, svo að vinum yðar verði í
hag. Þess vegna skuluð þér reyna að leiða þessi mál hjá
yður af lagni og festu. Happatala yðar er 787.
Bogmannsmerkið (23. nóv. — 21. des.).
Persónur nokkrar, sem tengdar eru yður ýmsum böndum,
munu breyta nokkuð áformum, sem snerta yður og yðar
framtíð og það mun setja vður úr jafnvægi um hríð. Þér
skuluð samt ekki láta þetta fá á yður, heldur reyna að taka
þessu með jafnaðargeði. Föstudagur er einkar skemmtilegur.
Steingeitarmerkið (22. des. — 20. jan.).
Þér ættuð ekki að vanrækja skyldur yðar í þessari viku,
því að það ríður á að þér vinnið sem bezt, enda hafið þér
um allt of langt. skeið látið skeika að sköpuðu hvað starf
yðar snertir. Ennfremur ættuð þér að gæta þess að vera
svolít.ið alúðlegur við gamlan ættingja, það mun borga sig.
Vatnsberamerkið (21. jan. — 19. febr.).
Þessa dagana mun margt skringilegt og kyndugt koma fyrir
yður og mikilla breyt.inga á högum yðar er að vænta. En þér
ættuð samt að reyna að framkvæma áform þau, sem þér ráð-
gerðuð nýlega, einnig skuluð þér efna loforð þau, sem þér
hafið gefið góðum vini. Umfram allt látið það ekki sitja á
hakanum.
Fiskmerkið (20. febr. —20. marz).
Þessi vika er full af gleði og óvæntri ánægju, sem mun lífga
upp þá tilveru, er þér lifið nú í. Þér munuð fá skemmtilegt
bréf frá vini yðar erlendis. Hins vegar verðið þér að fara var-
lega með heilsuna og hætta yður ekki neitt., sem getur eyði-
lagt hana. Gleðilegur afmælisdagur er 19. marz
FALKINN
29
+☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*★*☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆¥☆¥☆*☆¥☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*☆*#