Fálkinn - 13.05.1962, Síða 4
Um klukkan tólf á miðnætti voru
úrslit kunngerð. Sigurður Magn-
ússon fulltrúi lýsti úrslitum fyrir
hönd dómnefndar. Fegurðardrottn-
ing fslands var kjörin Guðrún
Bjarnadóttir. Hlaut hún titilinn
„Ungfrú fsland 1962“ og að verð-
Iaunum þátttöku í alheimsfeg-
urðarsamkeppninni á Langasandi.
Númer tvö í keppninni varð Anna
Geirsdóttir, hlaut hún^, titilinn,
„Ungfrú Reykjavíkur 1962“ og
þátttöku í Miss Unverse keppn-
inni. Þriðja varð Líney Friðfinns-
dóttir og hlaut hún að verðlaunum
þátttöku í Miss Europe keppninni.
sem haldin er í Beirut. Þessar
stúlkur lilutu einnig ágæt auka-
verðlaun. Fjórða varð Rannveig
Ólafsdóttir og hlaut hún að verð-
launum ferð á Miss World keppn-
ina, sem haldin er í London. —
Fimmtu verðlaun hlaut Auður
Aradóttir. Var það vandað gullúr
frá Magnúsi Baldvinssyni. Sjöttu
verðlaun hlaut Guðný Á. Björns-
dóttir. Voru þau dragt frá Káp-
unni. Er úrslit höfðu verið kunn-
gerð, krýndi Sirrý Geirs, Ungfrú
ísland 1962 við mikil fagnaðarlæti
áhorfenda. Að krýningunni lok-
inni gengu stúlkurnar inn eftir
salnum í Næturklúbbnum og upp
stigann. Var fegurðardrottningin
fremst og allar höfðu stúlkurnar
fengið fagra blómvendi að gjöf.
Sigríður Geirsdóttir, fegurðar-
drottning fslands 1960, krýnir
systur sína, Önnu Geirsdóttir, sem
Ungfrú Reykjavíkur 1962. Anna
Geirsdóttir var númer tvö í feg-
urðarkeppninni.