Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.04.1997, Síða 6

Stúdentablaðið - 01.04.1997, Síða 6
6 APRÍL 1997 STÚÐENTABLAÐIÐ stjörnur ekki mátt minnast á það að Vigdís X-forseti, sérlegur vemdari íslensks máls, hefír ekki í tuttugu ár komið frá sér setningu sem inniheldur minna en 30% kaupauka af hik- hljóðum, svo sem i-um. Ekki að það skipti neinu máli í sjálfu sér nema fyrir það eitt að það má ekki segja það. Rétt eins og ég, sem gagnkynhneigður karlmaður, má ekki segja að mér finnist Claudia Schiffer ekki sexý. Ef ég geri það, þá er eitthvað að hjá mér. Ef ég vil ekki vera sápustykki þá verð ég að eiga það við sjálfan mig. Það getur augljóslega valdið manni miklum sáiarkvölum því hver vill ekki vera sápustykki?(Þeir sem ekki horfa á auglýsingar verða að sætta sig við að geta ekki tengt sig við sápu- stykkisdæmið) Eða síhoppandi hálf- viti með græna topphúfu? Nefnið mér einn krakka sem ekki er búinn að kokgleypa þessari vitleysu og ég skal snarlega taka gleði mína aftur og endumýja trú mína á þetta græn- japlandi, verðandi fyrirmyndarríki sem ég bý í. En þó svo ég viti að sá krakki er til, þá er ég ekki svo viss um að hann komi nokkum tímann til að viðurkenna það. Nema maður spilli honum með því að mæta með nammi á..„ segjum þriðjudegi.B Stefán Baldur Árnason, bókmennta- fræðinemi og dyravörður frægar manneskjur Mér er illa við frægt fólk og þess vegna á ég líka svo erfitt með að muna eftir því. Ég reyni að taka ekki eftir því og þurrka út allt sem minnir á það. Reyndar á þetta fyrst og ffernst við um ákveðna teg- und frægs fólks. Þá sem standa fýrir allt það sem maður á sjálfur að vera en er ekki og vill ekki vera. Þorgrímur Þráinsson er einn þeirra. Hann er búinn að vera á eftir mér í allt of mörg ár. Núna síðast sem ein- lægur, svarinn Stefan Baldur og skipaður (ó)vinur minn og allra hinna sem teljast til þeirra sem reykja og finnst það gott (30% þjóðarinnar). Og hann er bara einn af mörgum... Þorgrímur Þráinsson varð frægur fyrir sömu hlutina og Jesú; mann- kærleika og óendanlegan vilja til að láta gott af sér leiða. Hann hefír á sambærilegan hátt og JK einbeitt sér að því að dreifa boðskap náunga- kærleika, væntumþykju, ósérhh'fni og líkamlegs bræðralags, allt frá því að hann komst til manns þ.e. hætti í fótboltanum (reyndar telst það vera nokkuð afdráttarlaust þroskamerki í mínum augum). I fyrstu heijaði hann á lítilmagnann í samfélaginu, bömin, með góðum árangri. Undir formerkjum í heilbrigðis tókst hon- um að höfða til þeirra sem gefa bama- og unglingabækur og öðlað- ist þannig frekari frægð á vafasöm- um forsendum. Böm em nefnilega ekki eins líkleg til að skila bókum og fullorðnir. Sér í lagi þar sem þær voru flestar gefnar af „góðviljuðum" öfum og ömmum sem héldu virkilega að þau væm að gefa eitthvað af viti. Sök sér ef þetta minnti ekki einum of á heilaþvott. Ég meina, heilar kyn- slóðir hafa alist upp við það að það sé eðlilegt að strákar séu ljóshærðir, myndarlegir og labbi alla daga um með íþróttatöskur eins og þeir hafi gaman að því. (Það minnir mig á að Eð- varð Þór Ingólfsson er ekki heldur í miklu uppáhaldi hjá mér). Líklega stafar það af því að í hans heimi, sem átti að vera minn, telst það eðlilegt að 16 ára krakkar flytji saman í fbúð og að kveldi fyrsta dags láti þau sér nægja að kyssa hvort annað á kinnina, velta sér á hliðina og hugsa um hvað þau séu þreytt og sæl. Komm on, þetta gengur þvert á hormónaflæðið sem var allt í öllu hjá manni og maður saknar jafnvel á ákveðnum stundum. (Reyndar væri ég ekki til í að lenda aftur í því að vera boðaður upp á töflu á við- kvæmri stundu, en það var líka dá- lítið spes...). En aftur að þessu með Þorgrím. Ég hefí ekkert á móti manninum, persónulega. Nema þá helst að hann skuli vera til. Þetta er í raun ekkert spuming um hvort ég kunni vel við Þorgrím, heldur Fræga Manninn sem heitir líka Þor- grímur. Alla vega er þetta maður sem ég vil ekki hitta úti í búð. í fyrsta lagi af því að hann er svo mikið nafn að ég myndi líklega ekki þekkja hann og gæti þess vegna ekki bölvað honum fyrir að vera til. í öðru lagi af því að mig myndi langa til að hoppa á hann, fella hann og hoppa á honum en maður gerir víst ekki svo- leiðis nema í vinnunni. I þriðja lagi vildi ég ekki Árnason iútta hann úti í búð því ég held að inn- kaupakarfan mín þoli ekki augna- tillit hreins heilbrigðis. Ég ímynda mér aðstæður líkar lokasenum í vampýru-myndum: Snakkið hörfar út í hom og hamborgarasósan leys- ist upp með orgum og óhljóðum. Ég veit upp á mig sökina og ég vil ekkert láta minna mig á hana. Ég er sáttur við það að rotna ekki þegar ég dey því mér fínnast ávaxtagraut- ar, sem geta staðið óskemmdir vik- um saman, góðir. Og þetta er kjaminn hvað varðar frægt fólk eins og Þorgrím: Það læt- ur öðm fólki líða illa. Þess vegna reynir maður að hugsa sem minnst um það og jafnvel að gleyma tilvist þess. í mínu tilviki neita ég að um e.k. bjagaða afbrýðisemi sé að ræða. (Guð forði mér ffá því að vilja vera Þorgrímur Þráinsson.) Mig langar ekki neitt til að líkjast honum en það er búið að setja hann á stall með merkimiðanum: „Ég er fyrir- myndin þín“. Mig langar ekkert til að vera hann, en ég á að vera hann. Samfélagið sem ég bý í er búið að upp- hefja hann sem per- sónugerving heil- brigðis: Hin sammannlega gulrót sem við eigum öll að elta. (Hann er rit- færi Andinn við hliðina á Skeving- álfinum og Höfða- tölukúrfunni, sem saman mynda heil- aga þrenningu ís- lenska fyrirmyndar- ríkisins (sjá Nostradamus). 'Sögulega sést svo samanburðurinn við kristnina og Hina út- völdu enn betur er menn ímynda sér Ingólf Amarson sem Móse: Manninn sem leiddi hina æðislegu yfir hafið). Og þar sem ég telst til þessa samfélags hlýt ég að eiga einhvem þátt í þessu (á hvaða fylleríi er mér löngu horfið úr minni) svo ég verð að samþykkja hann og allt sem hann stendur fyrir. Þar með beinist krísan öll að sjálfum mér. Ég get í raun ekkert verið að setja mig á móti honum; ég bjó hann til. Auk þess sem það fylgir með pakkanum að maður má ekki og getur ekki verið á móti því sem er Gott, með stóru gé- i. Hið samfélagslega samþykkta er samþykkt einróma. Ef maður hefir einhveijar þær skoðanir sem ganga gegn frægðarmyndinni er maður abbó eða illkvittinn. Þannig hefir FERMlHGARHlfMD ___MAMAÐARIHS Dr. Guðný Guðbjörnsdóttir er fermingarbarn mánaðarins „Það er mér mikil ánægja að fá tilefni til að setjast niður og hugsa um ferminguna mina vorið 1963 fyrir Stúdentablaðið. Ekki síst vegna þess að ég er nú að undirbúa fermingu dóttur minnar og er því að fara í gegnum fermingarferlið, þó með öðrum hætti sé. Nú fyrir skömmu var gerð könnun á viðhorfum fermingarbarna og þá þótti helst koma á óvart hve hátíðlega unga fólkið litur á ferminguna. Unga fólkið virðist hafa áhuga á trúnni og trúarat- höfninni sem slíkri, þó að ýmsir telji að það séu fyrst og fremst gjafirnar sem freistuðu. Þetta var einmitt tilfinning sem ég hafði þegar ég fermdist. Mér fannst þetta trúarlega og menningar- lega mikilvægur viðburður enda búin að vera í stifri fermingarfræðslu hjá séra Birni Jónssyni, þá sóknarpresti í Keflavík. Þó að hin ytri umgjörð hafi ef til vill ekki verið eins fyrirferðarmikil árið 1963 og nú, var umræðan um fermingargjafirnar sem allt að því skyggðu á athöfnina sjálfa, í hávegum. Það er fróðlegt að hugsa til baka um það hvernig ég sem óharðnaður unglingur, sem jafn- framt var að heyja mína sjálfstæðisbaráttu gagnvart foreldrum mínum, bar mig við að velja fermingarfötin. Það kom ekki til greina að hnýsast of grannt í það hvernig kjól og kápu vinkon- urnar ætluðu að fá sér, þvi að ég vildi velja mín föt á sjálfstæðan hátt. Nauðsynlegt var þó að bíða eftir að hinar eiginlegu fermingarkápur kæmu í búðirnar og af einhverri ástæðu kom að- eins til greina að vera í hvitum eða mjög Ijósum kjól. Kjóllinn var saumaður hjá saumakonu eft- ir sniði sem ég valdi sjálf. Hann var tviskiptur með felldu pilsi og skórnir voru hvítir sléttir með örlitlum „háhæl". Fermingarkápan þótti sjálfsögð og ég valdi mér grænköflótta ullarkápu með skinnkraga. Dóttur minni fannst einnig mikilvægt að velja sinn kjól sjálf, en munurinn er sá að það er mikið úrval af tilbúnum fermingarkjólum í búðunum og ekki tilheyrir lengur að kaupa sér- staka fermingarkápu. Skórnir eiga helst að vera klossaðir með þykkum botnum og háum hæl- um. Það þótti sjálfsagt í mínu umdæmi að fá úr í fermingargjöf frá foreldrum og það var mikill höf- uðverkur að velja það. Fyrir valinu var fínlegt gullspangarúr með örlítilli skífu. Síðar kom í Ijós að ein besta vinkona mín fékk alveg eins úr, en það fannst mér allt í lagi þegar á reyndi. Hjá dótt- ur minni og vinkonum hennar eru ný húsgögn eða hljómflutningstæki efst á blaði. Að öðru leyti virðast fermingargjafirnar líkar, til dæmis, viðleguútbúnaður, skartgripir og bækur. Fermingin er merkilegur viðburður i lífi hvers einstaklings, og mér fannst hún í alla staði ánægjuleg. Þó að fermingin sé fullsnemma til að geta talist innvígsla í líf hinna fullorðnu, þá skerpir hún skilin á milli þess að vera barn og unglingur. Að mínu mati er fermingin mikilvæg bæði menningarlega og trúarlega hvort sem ég lit á málið sem uppeldissálfræðingur eða al- þingísmaður. Fólk þarf bara að kunha sér hóf og íhuga hvað um er að vera. ■

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.