Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.04.1997, Síða 23

Stúdentablaðið - 01.04.1997, Síða 23
APRÍL 1997 23 STÖDENTABLÁÐIÐ út&suður Sara Stefánsdóttir skrifar frá London Jæja, ætli það sé ekki best að koma einhverju af þessu á blað. Málið er bara að mér vefst satt best að segja fingur um fjöður og tunga um tönn við að velja einhveija eina sögu. Ég gæti svo sem sagt frá MR.SHANGA, indverska leigusal- anum mínum, sem gengur um í marglitum krep íþróttagalla og Nike strigaskóm með gullkeðjur um háls- inn og túrban á höfðinu. Eða, Tao litla víetnamska vini mínum í ný- lenduvönibúðinni héma í götunni, sem vill allt fyrir alla gera. Hann er búinn að láta prenta nafnspjald fyrir búðina sína svo að viðskiptavinir geti hringt inn og pantað, spjallað, fengið heimsent eða þá sjaldan kvartað yfir hverju svo sem þeim liggur á hjarta. Nú eða japanska stelpan sem leigir héma líka en yrð- ir ekki á nokkum mann heldur skil- ur eftir sig miða þegar hún finnur hjá sér tjáningarþörf. Eldhús. Dœmi: However thatfitl- hy person how not throw in these dustbin the rubbis should clean those floor. That are disgusting. Hironii Ég gæti jafnvel sagt frá tyrknesk- um „leigubflstjórum“, götuhandtök- um héma á hominu, dvergafjöl- skyldunni í þvottahúsinu, ólögleg- um næturklúbbum í Brixton eða innrás Neo-Tokyo til Vesturlanda. Hér spretta upp japanskar leigu og atvinnumiðlanir eins og gorkúlur og fyrirtæki hér, hvers eðlis sem þau svo em, sjá sér ekki annað fært en að auglýsa grimmt eftir japönsku- mælandi starfsfólki. Orðaforði jap- ana einskorðast í meirihluta nefni- lega við „Kapúsjínó" og mest lítið annað. Þetta getur orðið svolítið snúið ástundum. En þá að litlu sögunni minni. Ég hef ekki getað séð atvinnuauglýs- ingar í friði héma, þrátt fyrir að vera í minni fínu föstu vinnu í drykkjar- bransanum. Nú þegar hef ég farið í nokkur viðtöl, sem hafa reyndar verið misgrunsamleg. Eitt get ég þó fullyrt, hér era óhugnanlega mörg húsáklæðningarfyrirtæki án starfs- fólks. Maður skal ekki segja!!? En í staðinn fyrir að vinna hjá húsáklæningarfyrirtæki ákvað ég að fara að „höstla“ uppi á Oxford stræti. Ég kom inn á frekar slöpppum degi. Ekki mikil umferð, þannig að maður þurfti beinKnis að ráðast á fólk til að ná einhverri athygli. Það var einstaka sem gaf sig á tal við mig að fyrra bragði. Ég segi ekki að það sé fyrir hvem sem er að höstla en þegar upp er staðið er þetta meira og minna áreynslulaust. Þetta komst upp í vana eftir nokkrar skorpur og er í rauninni bara frekar auðvelt þegar maður nær réttum tökum á þessu og veit hvað maður er að gera. Svo er fyrirkomulagið líka ágætt. Vinna í klukkutíma, frí í klukku- tíma. Þannig kemur alltaf smá stund milli stríða, smá stund með sjálfri þér inna á milli. Og á endanum stendurðu svo uppi með vasa fulla af peningum fyrir vinnu sem þú vannst í rauninni bara með annam hendi. Þetta litla „höstl“ snýst annars um það að fara út á götu með auglýs- ingableðlinga og vekja athygli á þriggja tíma útsölu „Bara í dag“. Haugalygi náttúralega þar sem þetta er í raun lítið rasluppboð og starf- rækt daglega. Allavega, þama úti á götu gargar maður af sér höfuðið og stekkur á vænlega viðskiptavini, talar þá í kaf með allskonar óumbeðnum útskýr- ingum á góðum kaupum og tilboð- um á hverskyns græjum og tækjum. Viðskiptavinurinn fær eðlilega eng- an tíma tfl að tjá sig neitt frekar um þetta heldur taka við spumingar af minni hálfu um hvaðan fólk sé, hvað það er að gera í London. Hvemig því líkar o.s.frv. Meðan á öllu þessu stendur er fólk þannig „afvegaleitt" inn á uppboðið og ég fæ stig í kladdann hjá dyraverðinum stig sem breytast að lokum í pen- inga. Svona ná þeir inn viðskipta- vinum, þ.e.a.s. ferðamönnum, ný- komnum eða úthverfalýð sem fer sjaldan eða aldrei í bæinn. Enginn heilvita breti eða þeir sem hafa búið hér í lengri tíma myndi láta plata sig þama inn. Þetta er alræmd búlla, þekkt fyrir svik og pretti. Nú áður en fólk veit hvaðan á sig stendur veðrið er hurðinni svo skellt í lás og uppboðið hefst. Hver og einn fær spjald með númeri og það er byijað að bjóða. Nokkrir starfsmenn bland- ast náttúralega inn í hópinn og æsa lýðinn upp og á endanum situr fólk uppi kafijótt og sveitt í framna með fangið fullt af gagnslausum raf- tækjadrasli sem á aldrei eftir að koma til með að virka. Bakslagið í þessu er að samvisk- an manns gatast nokkuð fljótt í þessu. Ég stóð mig að því að verða bara töluvert æst ef ég næði ekki inn kúnnum í einhverri skorpunni. Það þýddi svo aftur enginn stig fldaddann sem þýddi svo enn og aftur enginn peningur í vasann. En annað heldur ógeðfelldara var að það er ekki sama hver kúnninn er. Þennan dag upplifði ég kynþátta- fordóma í praxis. Það vora sem sagt fjórar algildar reglur. Það vora sem sagt fjórar algildar reglur. Það var bannað að koma með fólk undir tugtugu (engir peningar), bakpoka- ferðalanga (blankir), svarta (gagn- rýnir og blankir) og fólk frá karab- íska hafinu (of mikill hávaði í þeim og ofmargar spumingar, það era þau sem eyðileggja uppboðsfyrrikomu- lagið) Þennan dag bættust svo við Þjóðveijar og feitir á bannlistann, sem engar útskýringar vora gefnar á. Bannlistinn fór nefnilega meira og minna eftir dyntum í dyraverðin- um sem merkti reyndar líka inn stigin. Ótrúlegt en satt. Maður hefði haldið að bröskuram og opinberam þjófum væri nú nolck sama hvaðan peningamir kæmu. En það var ekki fyrir því að fara. Ég gerði þetta í einn dag í blank- heitum og stóð upp með 5000 kall fyrir fjögurra tíma vinnu. 5000 kall sem kom sér alveg ágætlega eftir að ég reyndi að gleyma hvemig ég hafði unnið fyrir honum. Þetta er illa en skjótfenginn gróði. En ég gat ekki séð neitt að því í einn dag í fíflaskap að standa úti á götu með auglýsingamar í annarri hendi. Að draga ginkeypta sakleysingja með hinni inn á eitthvað braskuppboð þar sem fólk gat svo bara séð um sig sjálft. Meira kom mér hreinlega ekki við...þannig...B

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.