Alþýðublaðið - 31.12.1922, Page 1
Gamlaársdag.
. tbl.
Gleðilegs nýárs
óskar Alþýðublaðið öllum vinum sínum
og samkerjum, kaupendum og lesendum,
með beztu þökkum fyrir gamla árið.
Á gamlárskvöld.
í leynidjúp tímanna liðið er ár;
hjá lýðum er saga þess töld.
En margur, sem leit það með brosandi brár
í byrjun, er hniginn í kvöld,
því árin, sem líða í það eilífðardjúp
frá aldanna rísandi sól, —
þau klœtt hafa margan í mótlœtishjúp
og mörgum veitt síðasta skjól.
En líka’ eru stundir, sem gleði það gaf
og grœddi mörg holuádarsár.
Pað veitli oss margt, sem vér vissum ei af,
því viljinn hjá flestum er smár
að meta rétt tímann og gera’ af því gagn,
sem geymi hver líðandi stund.
Vér höfum ei öðlast það manndáðamagn,
sem mentar til fulls vora lund.
Vér horfum á árs þessa sígandi sól,
er sveipast í kvöldroðablœ
og minnir á tímanna hraðfleyga hjól,
þá hnígur í dimmbláan sœ.
t huga þó margra sé minningin köld,
hjá mörgum var gleðin þó klár.
Með lotning í hjartanu klökkir í kvöld
við kveðjum þig, hverfandi ár!
sem síðasti dagur þess skin nú
yfir landihu, má kalla að á
ýmsa lund hafi verið gott frá
náttúrunnar hendi.
Fyrri hluta þess var einhver
hin mesta fiskigengd, er þekst
hefir hér. Og þó að grasspretta
væri fremur léleg, þá var nýting
víðast hvar góð. Tiðarfar hefir
verið milt og gott og siðustu
mánuðina með einsdæmum.
En — það, sem náttúran gerir
vel, gera stjórnendur þessa lands
að illu. Þrátt fyrir góðærið hefir
hag manna fremur hnignað í
landinu. í*essu veldur úrelt þjóð-
félagsskipulag og þar af leiðandi
óstjörn — óstjófn í menningar-
máium þjóðarinnar, atvinnumál-
um, bankamálum og verzlunar-
málum.
Pessa vegna líður alþýðu illa,
hvernig sem árar.
En úr öllu má bæta, ef farið
er að ineð skynsemi og á eftir
rekið af öflugum vilja.
En til þess þarf samtök. Öll
alþýða þarf að taka höndum
saman til þess að vinna bug á
óstjórninni.
Fau samtök á að nota til þess
aö rífa upp undirrót óstjórnar-
innar og gróðursetja undirrót
skipulegrar stjórnar á landinu —
»velta í rústir« hinu ríkjandi
þjóðskipulagi og »byggja á ný«
þjóðskipulag jafnaðarstefnunnar
og framtiðarinnar,
til þess að góðæri fái notið
sin í landinu.
Þetta ár hefir ekki enzt til
þess að koma því í kring, en
næsta ár mun fá alþýðu gott
tækifæri til þess að hrinda því
áleiðis.
Þá er að vinna að því.
Minnumst þess.
Ágúst Jónsson.