Dvöl - 01.11.1901, Blaðsíða 3

Dvöl - 01.11.1901, Blaðsíða 3
D V Ö L . 48 illt, og hinir góðu gott þeim, sem |)eim eru næstir í hvert skifti; en eg }iar á móti svo framúrskarandi fávís, að eg jafnvel ekki viti það, að ef eg geri einhvern samvistarmann að vondum manni, þá stofna eg mér í þá hættu, að verða fyrir illu af honum, svo að eg, eins og þú staðhæíir, kem hér nhklu illu til leiðar af ásettu ráði; þessu færð þú mig ekki til að trúa, Meletos, og eg hygg að þú fáir ekki nokkurn mann til að trúa því, heldur er það svo, að annaðhvort spilli eg þeim ekki, eða, ef eg spilli þeim, þá geri eg það óviljandi, en þér skjátlast í hvorutveggju. En ef eg spilli þeim óviljandi, þá eru það engin lög að draga nokkurn mann hingað fyrir slíkar óvilja-yfirsjónir, heldur taka hann eins- lega, fræða hann og áminna, því það er auðsætt, að þegar eg er fræddur, þá mun eg hætta við það, sem eg geri óviljandi, en þú forðast að fara tii fundar við mig og fræða mig, en þú hafðir engan vilja til ]>ess og dregur mig hingað fyrir dóm þann, þangað sem lög eru að stefna þeim, sem þarfnast refsingar, en ekki fræðslu. [Framh.] Smalastúlkan á Landamærunum. Eftir Amaliu E. Barr. (Framh.). Inngangur sorg-arinnar. Utan mótlætis er ei margt, oss sem að mönnum féll i vil, þvi liáfleyg gleöi getur vart gagntekið hjarta, er fann ei til. Agnes hefir, ef til vill, ætlað sér að lialda lof- orðið, en þeir hljóta að vera bæði hyggnir og vilja- fastir, sem geta yfirbugað þær óvæntu árásir, sem herja óvörum á hjartað á svipstundu. Eitt sumarkvíild, þegar mikið annríki var, gekk hún einsömul út í aldingarðinn hrygg í huga til að hressa sig. Það hafði verið rigning, og hin sagga- fulla þoku-gofa bar með sér sætan blómailm. Stór runnur með hvítum rósum óx upp við grjótgarðinn og nam hún þar staðar og litaðist um. Henni fannst einhver hugsvölun í að virða fyrir sér náttúrufegurð- ina; henni fannst eins og að hæðirnar, árnar og blóm- in tækju einhvern dularfulían þátt í kjörum hennar, sem hún þorði ekki að trúa neinum fyrir. Hún vissi, að hráðuin var von á RólandGraeme og var að velta fyrir sér, hvað hann myndi segjaog gera og hvað faðir hennar myndi segja og gera, en hún þorði naumast að leggja þá ^spurningu fyrir sjálfa sig, hvað hún myndi segja og gera. Hún leit þá upp og sá, þótt skuggsýnt væri orðið, að hár og réttvaxinn maður nálgaðist hana. Sökum dimmunn- ar gat hún ekki þekkt hver það var, en hún þóttist þó bera kennsl á göngulagið og hinn tígulega höfuð- burð, en áður en hún gat áttað sig fyllilega, var Róland Graeme, sem hai'ði .þekkt hana, kominn upp að veggnum andspænis henni, heygði sig yfir hann, dró hana að sér og kyssti hana. Svo fylgdu mörg ástrík orð og þau hétu hvort öðru órjúfandi tryggð- um. Róland var kominn þangað með þeim ásetn- ingi að biðja fijður hennar um hana, en hún latti hann þess, og sagði að það yrði einungis til þess, að hann þröngvaði sér til að bregða loforð sitt, sem sér yrði með öllu óbærílegt. „Eg skal þá hætta við það og fara héðan“, sagði hann, „en annað kvöld ætla eg að bíða eftir þér við kyrtilbryggjuna“. Hann kvaddi hana með kossi, sneri síðan upp með Öskju- fellinu og svo Jiaðan heim í kastalann. Graeme lá- varður hafði beðið eftir honum og þeir tijluðust við eins og þeir væru vandalausir. Lávarðurinn hafði raunar aldrei verið ástríkur frændi, en heldur aldrei verið vondur við hann. „Róland“, sagði hann, „þú ert nú orðinn myndugur og eg liælti þess vegna að bera umönnun fyrir þér. Þegar faðir þinn dó, lét eg selja eigur hans og setti þær á vöxtu, og upphæðin er 5200 pund sterling (18 kr. í pd.); eg hef ekkert snert af því og uppeldi þitt höfum við systkinin annast, svo að þú getur tekið þessa pen- inga þegar þú vilt. Eg ræð þér til að kaupa fyrir ])á umboð við einhverja góða herdeildarstöð, en þú ræður sjálfur héðan af hvað þú gerir“. Hann sagði þetta hlátt áfram og mjög kurteislega, ]iví að hann var vel siðaður maður. Róland fannst hann fara svo sanngjarnlega í þetta, að þakklætis og velvildar- tilíinningar vöknuðu í brjösti hans. „Graeme lávarður11, sagði hann, „þér heíir farist miklu betur við mig en mörgum myndi hafa farist í þínum sporum, því að ]>að er ekki þín skuld, ])(> að faðir minn gerði mér rangt til og eg get ekki láð þér, þó að þú færðir þér það í nyt. Stundum hefir mér þó fundist, að eg vera hér eins og óboðinn gestur, en eg skal nú ekki lengur liggja upp á þér, og eg hið þig að fyrirgefa mér það fjártjón, sem eg hef ósjálfrátt orðið til að baka þér“. Lávarðinum brá ónotalega við þessa hreinskilni, en hann vildi ekki láta bera á því og sagði: „Hvað áttu við, Róland? Þú ert ]>ó enn ]>á einn af ættinni, ])ótt þú hafir verið sviftur merkis- skildinum við annara yfirsjónir. Mér fellur hrein- skilni þín vel í geð og hve hógværlega þú ber tjón þitt, — og það getur farið svo að úr því verði bætt“. Hann leit niður fyrir sig þegar liann sagði þetta, eins og honum hefði orðið það ósjálfrátt. „Egheld“, bætti hann við, „að hún föðursystir þín vilji finna þig að máli áður en þú ferð héðan, en þér liggur heldur ekkert á ]>ví; rauða stofan stendur þér enn þá til boða“. „Eg þarl' að fara héðan strax, ])ví að nú þarf eg að fara að hugsa um framtíðina“, sagði Róland, „það er líka vinur minn, sem bíður eftir mér og ætlar að verða mér samferða til Lundúnaborgar“. „Hagaðu ])vi eins og þér þóknast, Róland“. Rúm 5000 pund voru miklir peningar i augum Rólands. Fyrst fór hann að hugsa um Agnesi og ætlaði sér, eins og sagt hefir verið, á fund föður hennar, þvi að hann hugsaði, að svo mikil auðlegð myndi hrinda öllum efasemdum hins gamla sambandsmanns, en Agnes kom fyrir hann vitinn og hann féllst á, að leita einskis samþykkis, en taka þá stúlku, sem hann unni svo heitt, án þess að verða neyddur til að sefa hleypidóma og hugsjónir Mattíasar, semvoru honum svo gagnstæðar, og Agnes, sem, þó hún væri kjarklítil, var nokkuð þrálynd og stóð fast á því á-

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.