Dvöl - 01.11.1901, Qupperneq 4

Dvöl - 01.11.1901, Qupperneq 4
44 D V Ö L. formi, að fara með honum, hvað sem ]iað svo kostaði. Það stóð svo á, að mikið var til að gera í Harribec þenna dag. I dögun, áður en Agnes var vel víiknuð, heyrði hún að faðir hennar var kominn út í garðinn, piltarnir vóru að stríða við að ná hest- unnm, og kýrnar vóru óþœgari en venjulegt var. Sumir vóru að nmla í handkvörn og allt var í upp- námi, því að þetta var fyrsti uppskerudagurinn og byggstangirnar nötruðu undir þunga sínum framan í hlíðunum og átti að fara að slá þær. Nokkrir dag- launamenn vóru og komnir og varð að matbúa sér- staklega fyrir ])á, en enginn var fenginn að hjálpa til með innanhússverkin, þó að húsmóðirin væri veik og drengurinn væri að taka tennur. Annríkið var svo mikið, að allir unnu eins og þeir framast ork- uðu, þó að veðrið væri heitt og mollulegt. Um kvöldið, þegar Mattías las að vanda nokkrar ritningargreinar, var hann svo þreyttur, að hann út- þýddi þær ekki, og þegar klukkan sló m'u fóru allir að sofa, nenm Faith, Agnes og litli Davíð, sem var veikur, jafnvel móðir þeirra hafði sofnað vært. Faith bar drenginn inn í svefnherbergið sitt og Agnes var hrædd um, að hann myndi aldrei loka augunum, ]iví að hún hélt að Róland væri farinn að bíða eftir sér við kyrtilbrúna og hún var eins og á glóðum. Chromo-málverk, Þegar myndin er vel þurr, þá er ranghverfan á henni nudduð hægt og jafnt með sandpappír, þar til hún verður gagnsæ, en þó ekki svo mikið að göt komi á hana, það verður að varast. Þar næst eru 6 dropar af Transparent Middel látnir drjúpa á ranga- borðið og dreift vel um myndina alla, eftir })að er hún látin liggja nóttina yíir. (Framh.). Ýmislegt tekið úr „The Family Herald and Weekly Star 28. ágúst 1901. Eg þekki nafnfrægan sjóliðsforingja, sem var einn dag að lesa daghlað og kallaði þá upp: „Eg sé núna hann L., og hann nefndi son, sem hann átti og var undirforingi í sjóliðinu í Vestur- Afríku. „Eg sé“, sagði hann, „að einhverjir sjó- menn eru að bera hann, ])ví að hann er annaðhvort mikið veikur eða að dauða kominn og hann hefir sjómannshúfu á höfðinu. Seinna vitnaðist, að sonur hans, sem var í ein- hverjum erindagerðum úti í landi, hafði þennan dag orðið skyndilega veikur, og sjómenn, sem þar vóru nærstaddir, fluttu hann hurtu. En það, sem var undarlegast, var ])að, að rétt áður hafði hann ein- hvern veginn misst lnifuna sína og fékk því sjó- mannshúfu lánaða eins og faðir hans hafði séð. Margar sögur líkar Jiessari koma oft fyrir, en meðal þeirra skrítnustu og sem jafnframt er sönn, er sjón sú, sem þeir kapteinn Sherbroke — sem var þá í 3B. hersveitinni, en seinna varð yfirforingi, sir John Cope Sherbroke — og Lt. Georg Wynward sáu; hann þjónaðí og í sömu herdeild. Einn eftirmiðdag 1785, þegar þeir vóru með herdeildinni í Canada, vóru þeir báðir að lesa hern- aðarskjöl inni í herbergi Wynwards lcl. 4 og höfðu farið í fyrra lagi frá miðdegisverðinum til þess að geta lesið í næði, og hafði hvorugur smakkað vín. Á herberginu, sem þeir sátu í, vóru tvennar dyr, aðrar lágu út í anddyrið, en hinar inn í svefnklefa Wynwards og ekki var hægt að komast inn um aðr- ar dyr en þær, sem Iágu út í anddyrið. Þeir vóru báðir að lesa í skjölunum, þegar Sherbroke, eins og af tilviljun, leit upp og sá hávaxinn ungan mann, á að geta tvítugan, og var að sjá á svip hans, að hann hefði losnað úr einhverri gæzlu. Hann varð svo hissa á að sjá þarna alveg ókunnugan mann, sem hann átti onga von á inni lestrarstofu þeirra, að hann lét Wynward undir eins vita, hvað um var að vera, og að maður þessi hefði einhvern veginn laum- ast inn til þeirra. Undir eins og Wynward sá mann- inn, brá honurn ákaflega. Sir John Cope Sherbroke var vanur að segja seinna, ])egar hann sagði frá sögunni: „Eg hefi aldrei á æfi minni séð andlit á lifandi manni verða eins nábleikt eins og andlit Wynwards varð á ])essu augnabliki. „Guð almátt- ugur! “ hrópaði hann upp yfir sig, „þetta er hann bróðir minn“. Við sáum, að maðurinn gekk inn i svefnklefa Wynwards og við gengum á eftir honum, en hann hvarf þar. Þeir skrifuða hjá sér stað og stund, Með næsta pósti fékk Sherbroke bréf frá aldavini sínum þess efnis, að hann bað hann að til- kynna Wynward, að bróðir hans, sem hann unni hugástum, væri dáinn, og það kom upp, að það var um sama leyti og þeir sáu svipinn. Það er þó ekki tekið fram, hvað klukkan á Englandi hafi verið þegar maðurinn lézt, en hún var 4 í Canada. Það virðist ónákvæmt í þessum sögum, að mismunurinn á tíma í hinum ýmsu landshlutum og líindum leimsins er ekki nægilega borinn sanmn eða útreiknaður, en eigi að síður lítur út fyrir, að þessi saga hafi við góðar sannanir að styðjast; hún var prentuð í anda- sögubók Mr. Iarvis 1828 og þar stendur vottorð eins ættmennis Wynwards um að sagan sé sönn, og höf- undurinn sjálfur bætir því við, að Sir John Sher- broke hafi oft sagt frá sögunni, og hann hafi lifað full 5 ár, eftir að bókin var gefin út, og rithöfundur, sem virðist hafa ])ekkt ættina, fullvissar um, að sagan sé sönn, og ]>að er vissulega satt, að þeir félagar, Wynward og Sherbroke, sögðu stallbræðrmn sínum frá þessu löngu áður en hún komst í hámæli. (Household Words). Leiðréttiny. í siðasta blaði slæddistinn leiðinleg prent- villa i greinina: „Starf (ocoupation]“ 1. málsgrein 15. línu par stendur: „hærri lilutskifti“ á auðvitað að vera: lægri’hlut- skifti. Blaðið kostar hér 4 landi 1 kr. 25 au., erlendis 2 kr., og borgist helmingurinn fyrir 1. júli, en hinn við áramót. Afgreiðsla blaðsins er i nr. 86 á Laugavegi. Útgefandi: Torfhildur Horsteinsdóttir Holm. Félagsprentsmiðjan.

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.