Dvöl - 01.03.1910, Qupperneq 2

Dvöl - 01.03.1910, Qupperneq 2
IO DV0L Ekki er að efa að margir munu hafa gaman af að lesa söguna og ættu menn að vera það þjóðræknir, að lesa fremur sögur Jóns Trausta, en útlent sögurusl, sem nú er á boðstölum. Allir vita að Jón Trausti er listamannsefni, þó ekki meira enn. — Honum er ekki nærri full- farið fram. Mætti ég gefa þessum liáttvirta höfundi bend- ingu, og héldi að hann veitti lienni eftirtekt, íöllu lofglamrinu, sem hvína honum í eyru, — yrði hún þessi: Mundu að ein blaðsíða með anda og blœ listarinnar geymist mun lengur en þúsund síður með verksmiðjuhandbragði. H. Thyra Varrick. Eftir Amalíu E. Barr. Lauslega þýtt úr ensku. (Framh.). s Fyrir hennar skuld á eg að biðja um líf þessa mac Dónalds? Já, og til endurgjalds fyrir það, bið eg þig um að tala ekki framar um að þú sért að missa »haldið« á þínu egin Iífi«. »Faðir minn, þú sérð sannarlega að eg er að rírna með hverjum degi. Eg get nú varla tekið upp tebollann minn; mér finst bækurnar mínar vera orðnar þungar, og það er vika síðan eg gat snúið landafræðis-hnettinum, og jafnvel þreytir lestur Thyru mig. Við hljótum bráðum að kveðja hvor annann — bráðum — minn elskuríki, góði, kæri faðir! Mjög bráðlega nú — og mig langar til að koma þessu í lag áður. Það er alt sem eg get gert nú ti) að gleðja Thyru mína«. »Eg skal fá þessu undir eins framgengt, Dón- ald. Þín ánægja er mér fyrir öllu«. »Þá lagði Dónald handleggina um hálsinn á föður sínum, með himnesku brosi á vörunum, og hvíslaði þessu að honum : wÞú ert í mynd föður okkar sem er í liimn- inum; eg er ekki hið minnsta hræddur við feður mína; Jieir eiga meiri elsku til en lirekkur um alla eilífð. Hallu nú á mér fáeinar minútur, elskan mín«. Og sterki maðurinn lyfti barninu upp, og skelk- aðisl við að finna að hann var eklti Jiyngri en Iivítvoðungur í fanginu á honum, og á því hátíð- lega augnabliki skildu þeir báðir dauðans bitur- leika, þeir fengu báðir forsmekk lians. Þegar búið var að leggja hann aftur niður í legubekkinn, sagði Dónald: »Þú sérð að við tefl- um ekki framar saman, faðir minn, eg Jioli ekki að færa mennina —«. »Þú hefir teílt miklu liá- tíðlegra tafi, Dónald — og unnið það líka, elsku, elsku drengurinn minn. Eg skal muna eftir því«. Fáeinum vikum eftir Jienna viðburð, eitt heitt sumarkveld, þegar Dónald var mjög vanmegna, fekk liann boð frá Hektor og Söru, sein voru niðri íysalnum, að þau óskuðu eftir að sjá hann. Hann leit framaní Thyru með spyrjandi tilliti og sagði: »Það er til þess að þau geti sagt yður hve mjög þau eru yður þakklát. Kærið þér j'ður um Jiá viður- kenningu? Þau þreyta yður einungis með því, Hektor er þar«, hvíslaði hann að henni. »Það getur skeð að hann þurfi að tala við yður —«. »Eg vil ekki sjá hann — aldréi aftur! Ef hann kemur hingað upp, þá fer eg úr húsinu — hví skyldi hann vilja koma hingað? Það væri skömm mikil!« »Hann skal Jiá ekki koma nálægt okkur. Send- ið honum þau orð mín, að mér þyki vænt um að hann er nú laus orðinn — og guði sé lof fyrir það!« Svo fór hann að sökkva sér niður, eins og hann hafði svo oft gert um þessar mundir, — í umhugsunina um fjarlæga staði; lieimili Thyru og önnur Iönd sem hann hafði hugsað um og ímynd- að sér. Lausn Hektors og hans hæglega unna fyrirgefning, var hið síðasta jarðneska áhugamál Dónalds. Skjótlega þar á eftir livarf liann frá þessu jarðneska lífi. Hátíðleg rósemi, einhver viss tign — sigrandi tign yfir dauðanum og gröíinni fólst i viðskilnaði lians. I nokkura daga hafði hann fengið liimneskar vitranir, og sála han — í því liún snöri sér frá jörðunni — fékk skyndi-sjón af himninum, og forsmekk hinna himnesku krafta, sem voru í aðsigi. Tár féllu ekki lians vegna. Enginn af þeim sem elskuðu hann, mundu hafa viljað endurkalla hann til lífsins; nei, ekki eitt augnablik. — — Þegar búið var að -jarða Dónald, varð Thyra eyrðarlaus. Hún vaknaði einn morgun eins og af draumi, og sjórinn kallaði á liana. Henni fanst hún heyra hans voldugu drunur gegnum sérhverja taug; henni fanst liún finna brimrólið svella í æð- um sínum, og lífsflóð hennar stefndi sí og æ i norður. »Eg verð að fara! Eg verð að fara heim!« sagði liún við sjálfa sig, og sú hugmynd þróaðist hjá henni dag eftir dag. En hún gat ekki kom- ist eins fijólt og hún vildi; hún hafði svo margt að gera áður, sem ekki varð gert í einu hasti; meðan hún var að velta þessu fyrir sér í hugan- um, tók hún útúr biblíunni bréf, sein bæði hafði verið vætt með tárum þeirra sem lifðu og þeirra sem dánir voru. Og enn Jiá einu sinni kysti hún það og endurlas það. Bréfið hljóðaði svona: »Elskan mín! Eg verð komin langt burtu frá yður, þegar liann faðir minn afhendir yður þenna miða. Eg á eina ósk, stóra ósk, Thyra; hún er, að þér far- ið með til Orkneyja allar bækurnar mínar og myndirnar, og stóra veraldarlinöttinn, sem við liöfum liaft til að ferðast yfir veröldina, og sér- staklega myndina af mér sem Leslie Crawforð málaði. Eg vil að þér látið alla þessa kæru muni inn í yðar eigin herbergi þar; herbergið sem mænir út yfir hina þara þöktu kletta, þar sem selirnir eru að velta sér í sólskininu; og sjóiinn sem stóru skipin fara og koma um, nótt og dag. Þetta voru

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.