Dvöl - 01.10.1911, Side 3

Dvöl - 01.10.1911, Side 3
D V 0 L. 39 hinar rósrauðu varir dóttur sinnar. Pétur bar nú fram fyrir þá kaífi, og allt er hann hafði til, bæði brauð og fisk og smjör. Settust þeir svo allir að mat. Gústa litla sat á knjám föður síns var auðséð að honum var ekki tamt að mata hana, þvi honum fórst það lieldur óhöndulega. Pétur sá það, og hauðst að taka við barninu. Faðir þess brosti, er Gústa fór að beyja af, og vildi ekki fara til Péturs. Þegar þeir höfðu mat- ast, bjó Pétur þeim rúm, skildi feðginin hvíla í rekkju hans, en hann og húskarlinn bjuggust fyrir á gólfinu. Um síðir var allt kyrt og hljótt i húsinu, en úti hvein stormurinn og brimið skall og dundi þungan við hamrana. Gústa litla svaf vært og hafði stungið höfðinu undir vanga föðursins, en ekki kom honum dúr á auga, þó hann væri þreyttur eftir sjávarvolkið daginn fyrir. Undir morgun gat hann fyrst blundað stundar- korn. Pétur var á fótum þegar í afturelding, gekk hljóðlega um húsið, svo gestir hans skildu ekki vakna, og setti hvern hlut á sinn stað. »Lof sé guði«, sagði hann, »að eg gat tekið móti þessum sjóhröktu mönnum og léð þeim húsaskjól. Mikið var að þeir skyldu komast af, og það á litlum báti, í veðrinu sem var í gær. Pað er hræðilegt að hugsa til þess, ef blessað barnið og faðir þess hefði týnt lífi sínu á boð- unum hérna á milli skerjanna. Nei, það er á- þreyfanlegt, að þeirra er allra gætt, sem guð gætir. (Framh). Mílly og ræninginn Ejiir F. McElratli. (Niðurlag). Herra Coan Iofaði mjög Milly fyrir hugrekki, og ráðgerði að bregða sér til Briton Hæðar, sem enskur maður að nafni Gore átti, vegalengdin var um tvær mílur, og fá sér þar annan mann til að hjálpa sér til að handsama ræningjann, og fara með hann til borgarinnar. Hann var talsverl upp með sér af því að ræninginn hafði náðst í hans húsi. Svo undir eins og búið var að kveikja eldinn fór hann í för þessa, og eftir tiltölulega stuttan tima, kom hann aftur með Gore sjálfann. Frú Coan sagði honum að ræninginn hefði einlægt verið að berja upp í kjallarahlerann siðan að hann hefði farið. »Eg býst við«, sagði liún, »að garmurinn vilji komast út«. »Pað undrar mig ekkert«, sagði herra Gore, »því það hlýtur að vera óvistlegt þarna niðri«. Þær voru nú búnar að búa til morgunmatinn, og hann stóð heitur á borðinu, inn í dag- stofunni. »Veslings ræninginn hlýtur að vera glor hungraður«, sagði frú Coan, »ef hann hefur ekki etið upp skorpusteikurnar minar, getið þér ekki hleyft honum upp svo hann geti fengið sér heitan mat?« »Nei, eg matast ekki með ræningjum«, sagði herra Coan ákveðið. »Við skulum gera eins og konan yðar vill, því hún er svo góðgjörn«, sagði herra Gore. »Nú, ef þér óskið eftir því«, sagði herra Coan gremju- lega, »þó það hafi ekki verið venja mín hingað til, að sitja að máltiðum með óbótamönnum. Eg sá áðan ókunnugann hest niðri við hesthúsið, það er sennilegt að hann hafi stolið honum líka«. »Hann frelsaði samt líf barnsins«, sagði Milly, sem sat með 'barnið við eldinn. »Jæa þá, fyrst þið viljið það öll«, sagði herra Coan. Hann greip skainmbyssuna og stóð með hana spenta bak við kjallarahlemminn til þess að vera reiðubúinn að skjóta hann, ef hann réðist á þá. Herra Gore lauk kjallaranum upp og kallaði »Halló! hver er þar?« »Góðann daginn«, sagði einhver glaðlega. Herra Gore leit niður í kjallarann og bað fýrir sér um leið. En það var ekki venja lians að brúka æðruorð. En í þetla sinn gekk yfir hann. Maðurinn gekk upp stigann, og herra Gore rétti honum hendina er hann var kominn upp. »Hvað í veröldinni hefur komið þér til að dvelja þarna niðri Melton?« spurði hann hlæjandi. »Pað er einmitt hið sama og eg ætlaði að spyrja þig um«, sagði herra Melton ámátlegur. Hann leit yfir herbergið og sá konurnar þar. Frú Coan og Milly voru í þann veginn að læðast út úr stofunni, og blíndu undrandi hvor framan í aðra á eldhússgólfinu. og Jim var að reyna að fela marghleypuna undir blaðahrúgu er var þar. Það leit helst út fyrir að herrá Melton skildi ekkert í hvernig í þessu lá, því hann liefði komist í þessa gildru, svo herra Gore sagði lionum hvernig á þessu stæði. Melton sagði honum aftur á móti að sér hefði misheppnast. sökum óveðurs- ins, að mæta Coans hjónunum eins og um hefði verið talað, og hann hefði með mestu herkju komist að þessu húsi um nóttina. Hann sagðist hafa he)7rt margt og mikið um gestrisnina í hér- aði þessu, en það sem sér hafði mætt þar gengi langt yfir allt sem sér hefði dottið í liug. Herra Gore leiddi hann þá inn í annað her- hergi til að borða morgunverð, og eftir talsverða fyrirhöfn, vann hann þau hjónin til að koma inn til hans, því þau voru ekki skuld í meðferðinni á honum, þvi það var hann sem þau ætluðu með mesta heiðri að mæta. Milly vildi ekki fara inn og sagðist deyja af skömm ef hann sæi sig. Herra Gore sagði þá: »Herra Melton, er hinn elskulegasti maður sem til er, og eg full- vissa yður nm, að hann mun brátt snúa þessu upp í gamansögu og hlæja svo að öllu saman. Hann sagðist hafa etið mestan hlutann af skorpu- steikunum og sælgætinu niðri í kjallaranum svo sér hefði ekki liðið svo illa. Svo þér skuluð koma óhræddar inn«. Hann sótli barnið, og Milly kom á eftir honum ákaílega smeik og rolu- leg, og tók í hendina á fanganum sinum. Ef herra Melton hefði ekki verið það sem Gore sagði að hann væri, hinn best innrælti maður, sem unt væri að hugsa sér, þá hefði fraministaða Coans-fjölskyldunnar litið illa út i augum hans, en hann sá hið hlægilega við æfintýrið, til allrar hamingju, þegar þau höfðu sagt honum allar

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.