Dvöl - 01.10.1915, Síða 3

Dvöl - 01.10.1915, Síða 3
D V 0 L. 39 vel fyrir því séð. . Eg raðaði niður í koffort öll- um þeim hlutum, sem hún þurl'ti með, bæði kjólum og kápum úr bezta efni og af nýjustu og fegurstu tízku. Og ef Dikk hefði fengið að ráða, þá mundi hann hafa sópað að sér öllu skrautinu bæði í borginni og héraðinu, handa lienni. Eg segi yður satt, að eg varð að loka hyrzlum mínum fyrir honum, til þess að fá að lialda eftir nokkrum kjólum handa sjálfri mjer. t’egar maðurinn minn kemur heim aftur, mun hann sannfæra yður um, að Kalrín hefir hlotið góða giftingu með því að giftast frænda okkar. Og svo verð eg að biðja yður að afsaka mig. Eg hefi orðið svo mikið að llýta mér, að koma liinu og þessu í verk þessa tvo síðuslu daga. og svo á þessi þóka svo illa við mig, og mér líður svo illacc. sÞá skildi Ióris, að hún visaði sér kurteislega burtu. Þó hún gerði það á vinaleg- an hátt. Hann virti þessa ákaflyndu, smávöxnu lconu fyrir sér, og sá að henni lá við að gráta, og hún mundi sennilega fá slæmt krampakast er hann væri farinn, svo hann fór frá henni án þess að segja íleira. Þessi lieimsókn hafði sára- lítið huggað Ióris. Hann hafði í fyrstunni ver- ið hræddastur um, að Katrin hefði ílúið án nokkurrar trúarbragðalegrar staðfestingar. En hann með allri sinni tilfinningarnæmni fór að hugsa um sinn eigin missir og söknuð. Hann gekk frá húsi frá Gordon og til séra Van Lin- den. Hann þótlist vera viss um hluttekningu hans, og liann var lika viss um að hann mundi vera sá allra heppilegasti til að uppgötva alt um þessa giftingu og kunngera lieimildirnar. Frá prestinum íór Ióris svo heim til sín, á veginum mætti hann Bram, sem var mjög skelkaður yfir hvarfi s^'stur sinnar. Ióris sagði honum í fáum orðum alt sem hann þurfti að vita, og sendi hann svo aftur í sölubúðina sína, og gaf hon- um þessa leiðbeiningu: »Sjáðu um að líla stilli- lega út, og lála sem ekkert sé um að vera. Það hvílir á þér að haga þér hjrggilega; því þú átt að varðveita manuorð systur þinnar, og þelta er sorg, sem óviðkomendur eiga ekki að blanda sér inn í. Farðu líka strax til Jóhönnu og segðu henni þetta sama, eg vil ekki gera Kat- rínu að umlalsefni slaðurs-kvennanna hérnacc. Elisabet var enn þá í því skapi að bera blakið af Katrínu, en þegar hún sá Ióris koma heim, fékk hún ilt fyrir hjartað. Hún var að þeyta egg til kökugerðar og hún hélt því verki áfram, liún leit að eins upp og sagði: »Þú ert komin sona snemma, Ióris, miðdegismaturinn verður ekki tilbúin fyr en eflir eina tvo klukkutima! Erlu veikur?cc »Katrín — hún er íarinlcc »Far- in og hverí?cc »Með enska herranum; með Dauntless, hafa þau fariðcc. »Trúðu því ekki Dauntless sigldi héðan í gærmorgun snemma, en Katrin var heima kl. sjö í gærkvöldicc. »0h, hann hlítur að hafa snúið aftur til að sækja hana! Hann vissi vel, að ef hann hefði ekki stolið henni, þá hefði eg tekið hana frá honum. Já, og eg óttaðist hann, því þegar eg heyrði að hann ætti að fara með skipinu til Vestur-Ind- lands, þá hélt eg vörð i kringum skipið. Eftir að eg kyssti Katrínu í gærmorgun, gekk eg rak- leiðis niður að bryggjunni, og beið þar þangað til að skip var komið á stað? Svo sagði hann henni alt sem frú Gordon hafði sagt honum, og sýndi henni tætlurnar af bréfi Katrínar. Móðirin kyssti þær og stakk þeim í barm sinn, og sagði um leið stillilega: »Þetta eru slór vand- ræði Ióriscc. »Það er margfaldur sannleiki, en við verðum lika að komast sómasamlega i gegn- um þau. Séra Linden er farin til að komast eftir sannleikanum i þessu; og þá, ef Katrin er löglega gift, þá verð eg að setja giftinguna í dag- blöðin. Eg veit að eg hlýt að heyra margar spurningar og mikið umtal um þettacc. »EfKat- rín er lögmæt kona hanscc. »Segðu ekki þetta, ekki þetta »Ef«, svo eg heyri; segðu ekkert »Efcc um hana Katrinu mínacc. »Þegar stúlka strikur frá heimili sínu —cc. »Með manninum sínum fór hún. Mundu eftir því þegar fólk talar um það við þigcc. »Hverskonar ektamaður mun hann verða henni?« »Látum svo vera, eg hugsa ekk- ert ilt um hann. Það eru til verri menn nær heimilinu okkar. Nú ef þú ert hygginn, þá muntu fara svo vel í þetta, sem þú hvort sem er orkar ekki að breyta. Sérhver fugl byggir silt eigið hreiður á sinn eigin hátt. Við erum að eins blindir fuglar, og guð byggir hreiðrin fyrir okkur. Þessi gifting hlýtur að vera eítir guðs ráðslöfun, þó hún sé ekki eftir þinni ráð- stöfun, og á móti henni vil eg ekki lengur berj- ast. Eg hugsa að Katrín mín sé hamingjusöm, og eg skal vera það með henni, þó eg sjái hana ekki njóta hennarcc. »0g þvtlík ósköp af slaðri, koma ekki út af þessu. Bæði inni í búðinni minni og úti á götunum, sem eg neyðist til að heyra; sumir munu látast samhryggjast mér, og sumir samfagna mér. Og mér finnst að hvoru- tveggju vera gall og edikcc. »Segðu bæði við vini og óvini þetta, Ióris minn. — Sérhver vill velja fyrir sjálfan sig: Yfirherforingi Hyde elsk- aði dóttur mina, og sökum þeirrar elsku fórn- aði hann nærri því lífi sínu. og dóttir mín elsk- aði hann líka, og það sem liefir skeð síðan heim- urinn var til, mun ské enn þá; segðu líka, verra hefði það getað orðið, þvi hann hefir gott bjarta og er í mesta upp á haldi í hernum, hann er líka stórættaður maður. Ióris láttu mig sjá að þú haldir liugrekki þínu eins og þér sómir. Þetta getur gefist betur en margt, sem betur lít- ur út. Við höfðum líka gott álit á Batavíusi.—cc »Þú lætur þér þetta þá lynda?« »Já, og sértu reiður við veslings Katrínu, þá tataðu um það við mig, en segðu ekkert nema gott um veslíngs barnið okkar við aðra. Nú skal eg færa þér miðdegismatinn; þvi þegar illa liggur á manni verkar góður matur líkt og læknislyfcc. Á með- an þan borðuðu dagverðinn i fyrra lagi, kom Jóhanna hrygg og grátbólgin, og varpaði sér í fangið á móður sinni með ekka. »Hvað geng- ur að þér, barn?cc spurði Eiísabet, mjög rólega. »Æ, móðir mín! Katrín systir mín er strokin! —cc

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.