Dvöl - 01.10.1915, Side 4

Dvöl - 01.10.1915, Side 4
40 D V 0 L. Dansleíkurinn. [Framh.]. »En« sagði Nóra ennfremur, »þegar öllu er á botninn hvolft getið þér ekki farið á ballið. Madama Yoss varð skyndilega ílt, og gerði yður boð að sér væri gersamlega ómögulegt að Ijúka við kjól- inn, því þá var klukkutíma verk eftir við hann« —. Við þessa íregn brá mér mjög, og var sem tilfinningar minar vöknuðu af dvala. — Eg gekk inn í svefnherbergi mitt, án þess að svara, kast- aði mér upp í rúm, og þar fyrir lokuðum d}U’- um svalaði eg hjarta mínu með brennheitum tárum, gremju og reiði tárum, yíir sviknum vonum, tárum, sem enga lækningu eiga, hvorki á himni né jörðu, þvi þau eru hégómadýrðar- innar tár, sem eg ræð öllum frá að útausa. — Eg lá það, sem eftir var dagsins inn i lier- bergi mínu, og vildi ekki Ijúka upp fyrir nein- nm, og kendi um þungum höfuðverk. Hann hafði eg raunar, en þessbáttar viðbárur eru al- gengar, þegar einhverskonar geðgallar eru ann- arsvegar. — Móðir mín var aldrei vön að ganga eftir mér, en lét mig sjálfa jafna tilfinningar mín- ar, þegar þær trufluðust eitthvað, og eins gerði hún enn, en það hepnaðist mér ekki fyr en nóttin kom, og svefninni opnaði mér arma sína, þá kendi eg mér einkis meins, og eg vaknaði ekki fyr, enn sólargeislarnir smeigðu sér hægt fi’am með gluggaskylunni, og inn á andlitið á mér, þá var, sem eg vaknaði af illum draum^ rúmfötin, svæfillinn og alt var yfirstráð með gulldufti, og það var nóg til enn þá einu sinni að koma út á mér tárunum. — Að sjá þessa gulu, nýlega svo fögra lokka rænda öllu gulli sínu, án þess nokkur skyldi hafa séð þá, það var hryggilegt. — Hefði að eins Bélke séð þá, þó ekki hefði verið nema eitt augnablik, þá hefði eg verið ánægð, en það var öðru nær. »En ekki tjáir að syrgja orðin hlut«, — hugsaði eg með mér. »Eg skal vara mig vel. Bráðum er afmælisdagurinn minn, og þá skal þessi dýrð mín verða endurnýjuð og aukin ef hægt er. — Þær sem voru á dansleiknum, hvila nú í örm- um svefnins, eins og eg nýlega gerði; allri dýrð- inni er lokið, og þær vakna tómhentar eins og eg. En í þessari ályktun fór eg vilt, eins og seinna sýndi sig. — Eg klæddi mig eins og ekk- ert væri um að vera, og að undanteknu því, að eg var ögn þrúngin í andliti og rauðeygð, held eg að ekkert haíi séð á mér við morgunverðinn, að minsta kosti nefndi það enginn. Eg var von bráðara vakinn upp af þung- lyndisdraumum mínum við raust þeirra systra, Emeiíu og EIísu, sem komu hlægjandi og mas- andi að herbergisdyrum mínum, og eftir að hafa, sem allra fljótast klappað upp á, luku þær upp og komu inn. — »Ó! hvað þú varst slæm« sögðu þær strax, »að koma eklci i gær, við höfðum svo sterklega vonast eftir þér, og ef þú bara vissir: Bélke var svo utan við sig af sorg. að hann sat hjá 3 fyrstu dansana og vildi enga velja sér fyrir dans- félaga af þvi þig vantaði; hann hélt endilega að þú þá og þegar myndir koma, þangað til Vil- hjálmur bróðir þinn fullvissaði okkur um, að þín væri ekki vori, þá tók hann Maren Thaa- strup, hún hafði svo ljómandi fallegt gullborið hár. Eg held það hafi hreynt töfrað hann gull- duftið, það lá eins og mjöl á frakkanum hans, og heyrðu nú bara hvað þú hafðir fyrir að koma ekki Laurintina: Fyrst dansaði hann valz með henni, og svo »galopade« og svo varð stans þvi þá var borið inn vín og kökur. Næsti dans var tvöfaldur Marsúkka, og Artúr Hansen, manstu ekki eftir honum, lögfræðingnum frá Aarhús, hann var búinn að bjóða henni i þann dans, og þau voru nærri komið á stað þegar Bélki kom og sagði að hún væri sín »dama« þetta kvöld, og svo varð það að vera. Hansen sat eftir með sárt ennið, meðan þau snerust eins og gullhjól um allan salinn, því svo mátti að orði kveða, að valla sæi i hann fyrir gulli; hún sýndi mér tvö armbönd og brjóstnál, sett með eðalsteinum er faðir hennar keypti frá París handa henni. Bélke var við er hún syndi okkur nálina, og hann stakk henni að okkur á- sjáandi í frakkahnesluna, og sagði með þýðing- armiklu augnaráði lil hennar: »Svona, nú heíi eg tvær orðurnar, aðra frá konginum og aðra frá, — þyrði eg bara að segja að hún væri frá«. — »Frá mér«, greip Maren fram í, með augna- ráði, sem hún vildi segja: »Mætti eg bara geta þér hana, teldi eg mig, sem hina hamingjusöm- ustu á jörðiuni«. — Hann sýndist að skilja það, og á næsta augnabliki voru þau horfin út i hóp hinna dansandi, hann með næluna í brjóstinu, og vissulega hafði hann hana í hnezlunni, og eg spái, að þau verði bráðum maður og kona«, enduðu þær mcð. Eg var nú búinn að heyra meira en nóg af öllu þessu. Eg kastaði mér upp í rúm huidi andlit minn og sagði: »Ó farið þið« bannsettar bætti hugur minn við, »mér leiðist að heyra þetta bulf; Bélke er einhver sá leiðasli montari, sem eg þekki. Eg er feginn að eg þurfti ekki dansa við hann, og Maren er mesta hofróða, þau eiga vel saman«. Ýmislegt. Það er golt ráð til að ná ormnum úr mold- inni í blómsturpottum, að stinga kringlóttri mjórri spítu niður í mo.ldina, fram með börm- unum. Þegar þeir eru aftur teknir upp úr, munu ormarnir litlu siðar skríða upp úr hol- unum, og þá er hægt að ná þeim. Útgefandi: Torfhildiir I’orsteinsdóttir Holin. Prenlsmiðjan Gulcnberg.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.