Iðnneminn - 01.12.1934, Page 4
4
IÐNNEMINN
ALLSKONAR:
V erkamannafatnaður.
Olíuklæðnaður,
Gúmmístígvél,
Klossar.
VERKFÆRI fyrir:
járnsmíði,
trésmíði.
MÁLNIN G ARY ÖRUR.
Vörur til húsabygginga, skipa- og bátasmíða.
Útgerðarvörur. Vélaþéttingar. Olíur. Feiti.
Bezt og jafnframt ódýrast hjá
Símar 3605 — 4605. O. ELLINGSEN.
AN - TIOK - SID
er nýtt ryðvarnarefni,
sem með efnabreytingn bókstaflega e y ð i r ryðinu
og fyrirbyggir jafnframt, að það myndist á ný.
Verjið alla járnmuni og mannvirki yðar með
AN - TIOK - SID Einkasali
Málarinn Reykjavík.
»ÁliugaIið iðimema«.
I frímínútum í gærkvöldi, hitti
ég einn skólafélaga minn. Hann kall-
aði á mig og sagðist þurfa að segja
mér merkilegar fréttir. »Nú, hvað er
það?« sagði ég og var ekkert sérstak-
lega lirifinn. »Það er búið að stofna
• Áhugalið iðnnema«.« Eggreip fram
í og bað hann að segja mér nánar
frá þessu. Honum sagðist á þessa
leið:
»Nokkrir nemendur skólans hafa
undanfarna vetur starfað saman að
sínum áhugamálum og um leið ann-
ara iðnnema og má sem dæmi nefna
útgáfu á »Iðnncinanum« í hitt eð
fyrra. Þessi hópur hefir vaxið jafnt
og þétt og nú er svo komið, að við
höfum orðið ásáttir um það, að gefa
sem allra flestum iðnnemum kost á
því, að starfa með okkur í »Áhuga-
liði iðnnema«, eins og við höfum
kallað þessi samtök okkar og----«
»Hvað er þetta! Eruð þið að
sprengja »Málfundafélagið« ?« sagði
ég og greip andann á lofti.
Hinn svaraði ofur rólega, en á-
kveðið:
•Einmitt þvert á móti. Það sem
við fyrst og fremst meinum með
þessu, er að vinna að því af fremsta
megni, að styrkja og efla »Málfunda-
félagið« og gera það að virkilegu
fjöldafélagi okkar, sem megi verða
því hlutverki sínu vaxið, að berjast
fyrir bættum kjörum iðnnema og
styðja einnig hverja þá starfsemi fé-
lagsins, sem menningarlegt gildi hefir.
Og ég skal seinna segja þér frá fleiri
fyrirætlunum okkar.
En bíddu við. Því má ég ekki
gleyma, að allir iðnnemar geta orðið
meðlimir liðsins aðeins ef þeir við-
urkenna grundvallarstefnu þess, al-
veg án tillits til þess, hvaða póli-
tískum flokki þeir til!ieyra«.
Nú var allur efi horfinn. Ég sá
livert nauðsynjamál þetta er.
Þess vegna bað ég »Iðnnemann«,
að birta þessar línur.
Gáttagœgir.
Iðnnemar og aðrir lesendur!
Veitið athygli auglýsingum í
blaðinu. Verzlið við þá, sem
auglýsa í »Iðnnemanum«.
Fataefni
Tilbúin föt.
Allir þurfa að klæðast.
Flestir bæjarbúar og
aðrir, sem koma til bæj-
arins ganga Laugaveg-
inn. Spyrjið um fata-
verð og skoðið fataefn-
hjá
Andrési Andréssyni,
Laugaveg 3.
Verkfæri
frá okkur eru að
verða þau vinsælustu
meðal iðnaðarmanna.
Björn & Marinó
Laugaveg 44. Sími 4128.
•!
-.
i
•>
Hressingar- :•
skálinn
Austurstræti 20 <:
Reykjavík ; •
<: Veitinga-og matsöluhús. Köku- !:
sælgætis- og tóbaksbúð. f
Heitur matur daglega
kl. 12—2 og 7—9. —
Smurt brauð í miklu
úrvali.
Útvarpshljómleikar allan dag-
inn, frá Reykjavík og erlend- j:
um stöðvum.
Tímarit og erlend frétta- *
blöð á 8 tungumálum koma
með sérhverri póstferð.
Ódýrasti veitingastaður
borgarinnar.
ENGIN ÓMAKSLAUN
Prentsmiðjan Dögun.