Ljósberinn - 07.10.1922, Page 2
314
LJÓSBERINN
hafði blessun föður síns að vegarnesti og trúði á
Guð bernsku sinnar. pess vegna sofnaði hann sætt
og vært og dreymdi — ekki illa og óværa drauma,
heldur sá hann engla Guðs á ferli og heyrði Guð
segja við sig hin indælu orð, sem textinn greinir
(sbr. afmælisblað Ljósberans).
Æskulýðurinn er óeirinn heima. Stórbæirnir seiða
hann til sín, og fjarlægu löndin hrópa á hann. En
hvað hefir þú í vegarnesti út í veröldina, ungi vin-
ur? Hjá hverjum ætlarðu að leita þér trausts, þeg-
ar heimþráin tekur að leita á þig?*)
Góður Guð veiti þér gæfu til að ferðast með bless-
un Jakobs í hjarta! Úr Dagbók Kristsvina.
Á. Jóh.
-----o----
Natan litli tók kristni.
1 bæ einum á Gyðingalandi átti heima Gyðinga-
drengur fyrir nokkrum árum, N a t a n að nafni.
Foreldrar hans hötuðu kristna menn og auðvitað
gerði Natan það líka. Kristniboði kom til landsins
og í það hérað, sem Natan var í, og honum var út-
hýst af foreldrum Natans, eins og flestum öðrurn
þar í landi. þá kom upp drepsótt mikil í bæ Natans
og fólk leit alment svo á, að kristniboðinn væri vald-
ur að henni. Natan litli og fleiri drengir læddust
*) Mundu eftir bæninni: „Drottinn, láttu mig
dreyma vel“.