Ljósberinn


Ljósberinn - 07.01.1928, Blaðsíða 5

Ljósberinn - 07.01.1928, Blaðsíða 5
LJÖSBERINN 3 skilur málshætti verður að vitrari um margt pað, sem hann á að gera og ekki að gera, hverju honum beri að keppa eftir og hvað hann eigi að forðast. Málshættirnir eru orðperlur, sem hrot- ið hafa af vörum spekinga á hugsjóna- og hugsanasviði, og síðan fágast. og meitlast á tungu ijóðelskra raanna, sem vel hafa kunriað að fara með »móður- málið mitt góða, hið mjúka og ríka«. I'eir menn eru auðugri eftir, sem auðn- ast að finna pessar perlur og höndla og færa sér í nyt. Einn af okkar ágætismönnum, sem hin illa norn, nautnasýkin — tóbaks- og áfengisnautnin — lagði í gröíina á ungum aldri, sýndi eitt sinn fram á í erindi um »ljóð í mæltu máli«, að pað er hægt að hafa yfir heilar bögur án pess að pær pekkist, pegar pær eru nógu alpýðlegar«. Málshættirnir eru meðal sannananna fyrir pessu. Nú með pví að eg hygg, að einhverj- um, fleiri eða færri, af ykkur, lesendum Ljósberans, fari líkt og mér, að hafa gaman af málsháttum og að pið getið, eins og eg hefi gert, lært ekki svo lítið fyrir lífið af inálsháttunum, ])á ætla eg að senda ykkur í blaðinu smátt og smátt dálítið af málsháttum úr safni mínu, er eg viðaði að mér á unglings- árunum meðan eg gerði dálítiö verulega að pví, »að fara í málsháttaleik« með félögum mínum. Kannske eg biðji Ljósberann fyrir lýsingu af leiknum til ykkar, — hann er mjög skemtilegur, pegar búið er að æfa liarin vel, en okki fyrri, og at'ar- hávaðalaus, — pegar pið eruð búin að læra dálítið marga málshætti til að nota í leiknum. Alt er pá prent er. Árla skal sá rísa, sem gull vill í götu finna. Að leyna fundi, er að líkjast pjóf. Á ilt veit, pá ofarlega klæjar. Betra er seint en aldrei. Brent barn forðast eldinn. Betri er krókur en kelda. Ber er liver að baki, nema sér bróð- ur eigi. Dygð er gulli dýrmætari. Drjúg eru morgunverkin. Dramb er falli næst, Dettur ei sá, sem Drottinn leiðir. (Meira). Rg. I)f. Síðari páttur. Reykjavík! Petta eina orð nægði til pess að koma stúlkunum, sem höfðu verið allra sjóveikastar á 2. farrými strandferðaskipsins, til pess að reisa höfuðið frá koddanum og gægjast út um litla, kringlótta gluggann. Pröngur skipsklefinn hafði verið óaflátanleg vist- arvera peirra að undanförnu, óralangan tíma, fanst peim, af pví að sjóveikin er hörð í horn að taka, og nú brauzt saina spurningin út af vörum peirra allra: »Erum við nærri kominV — 0, hamingj- unni sé lof!« Pað var enginn uppgerðar feginleiki, sem stílaði lofgerð til hamingjunnar aö lokinni sjóferð í stirðri haustveðráttu, og pótt margir væru fölir að yfirlitum í hópnum, sem ruddist að borðstokknum

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.