Ljósberinn


Ljósberinn - 15.02.1934, Qupperneq 7

Ljósberinn - 15.02.1934, Qupperneq 7
L JÖSBERINN 31 »Ég má biðja yður að fyrirgefa dirfsk- una,« sag'ði Oddný og sneri sér að gest- inum. »En okkur langar svo undur mik- ið til að spyrja yður að dálitlu. Yður þykir spurningin sjálfsagt fjarska barnaleg, eins og- hún líka er, og vís- ast að þér getið ekki leyst úr henni. —- En við áttum dóttur, sem við höldum kannske að hafi farið til Ameríku, fyr- ir einum 6—7 árum; allan þann tíma höfum við ekki frétt neitt af henni, — og nú datt mér í hug, að hugsast gæti, að hún hefði orðið á vegi yðar þarna 1 Ameríku. Ég veit reyndar, að þetta er ognarlega barnaleg hugsun, en af því ég hefi altaf verið að vona og vona að —■«. Oddný þagnaði snögglega og leit til svartklæddu konunnar, hún einblindi á gömlu konuna, og allra snöggvast mætt- ust augu þeirra í hálfrökkri hinnar flögrandi birtu frá eldsglæðunum á arninum. Ylur og' angurblíða skinu úr augum aðkomukonunnar, ylur og ang- urblíða, sem gagntók hjarta gömlu kon- unnar, og vakti þær tilfinningar. sem hún hefði ekki getað lýst með orðum. »Bg veit að þetta er barnaskapur,« tók hún aftur til máls, »Jóakím minn segir það líka altaf. Og hvernig ættuð þér að vita .nokkuð um hana? Telpuna okkar! Ameríka kvað vera svo ósköp stór. Og ég hefi ekki einu sinni sagt yður hvað hún heitir og veit heldur ekki hvað hún kann að hafa verið kölluð í Ame- ríku. En skírnarnafnið hennar var Krist- ín og við kölluðum hana oftast Diddu. Æ, nei, það er ekki von að þér kann- ist neitt við hana, enda mun hún geng- in veg allrar veraldar, elsku stúlkan mín, — blessað góða barnið mitt! — Ég lifi í voninni um góða samfundi hinum megin.« —■ Oddný þerraði sér um augun á an greip með hendinni utan um hand- legginn á henni, hitann lagði úr lófanum sínu og strauk honum um andlitið á sér. »Fyrirgefið þér barnaskapinn!« mælti Oddný þvi næst,. »0g' nú ætla ég að kveikja. Mig' langar svo til að sýna yð- ur smámyndir, sem ég á af stúlkunni okkár.« Oddný stóð upp, en svartklædda kon- an greip með hendinni utan handleg'g- inn á henni, hitann lagði úr lófanum í gegnuin dagtreyjuermina og' náði alla leið inn að hjartarótum gömlu konunnar. »Kveikið þér ekki!« sagði hún í lág- um róm og bar ört á. »Ekki strax. Pað er svo notaleg't að sitja í rökkrinu og heyra yður tala - - tala um hana —- dóttur yðar.« Oddný tylti sér aftur í sæti sitt og tók í prjónana sína. »Mér ætti að vera það ánægja,« sagði hún, »að tala um hana blessaða, úr því þér viljið heyra það. Nú orðið get ég talað rólega um það, sem var mér einu sinni svo mikill sársauki, að ég vildi helzt ekki minnast á það einu orði. —

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.