Ljósberinn - 01.05.1953, Qupperneq 2
LJDBBERINN
38
GIIMG L IIM 'Uj^ndaía^a jrá ^Jdína ^
„Pabbi er kominn heim“, hrópaði Ging Lin,
klappaði saman lófunum og dansaði af gleði.
„Pabbi er kominn heim!“ Um leið og hann
sté upp á þilfarið varð honum litið til skurð-
goðahillunnar. „Hvar eru goðin? Hvar eru
guðirnir!“ æpti hann undrandi og reiður. „Við
brenndum þá“, svaraði konan hans. „Kai Ming
veiktist og hinn eini sanni Guð á himnum
læknaði hann. Við trúum nú á hann.“ — „Mér
er alveg sama“, svaraði hann ofsareiður. „Við
og forfeður okkar höfum altaf beðið til guð-
anna. Án þeirra getum við ekki verið.“ —
með tár i augum: „Ég er syndari. Ég get
heldur ekki án Jesú verið“. — „Guð hefur
úthelt kærleika sínum í hjarta mitt“, sagöi
konan hans. „Mér er farið að þykja svo vænt
um „Litlu systur þriðju“. Má ég ekki taka
hana til mín?“ — „Jú, auðvitað. Taktu „Litlu
systur þriðju" heim til þín og innrættu henni
kærleika til Jesú“. — Fjölskyldan var nú öll
sameinuð aftur. „Guð er góður“, sögðu þau
öll hvert um sig. „Já, Guð er góður. Og ekkert
er jafn indælt og að vera hans“. — Endir.
„Þú sækir vel að, pabbi“, sagði Kai Ming,
en pabba hans þótti alveg sérstaklega vænt
um hann. „Jólahátiðin er að hefjast, vertu nú
með okkur.“ Það var ekki annað hægt en að
gera þessum glaða og góða dreng allt til geðs.
Fabbi hans varð að taka þátt í jólafagnaöi
ba:-nanna. Kai Ming hafði lært að syngja
jclavers, en Ging Lin hafði upp fyrir þeim
ritningarstaði, sem hún kunni utan að. „Allir
hafa syndgað og skortir dýrð Guðs“. „Trú þú
á Drottin Jesúm og þú munt hólpinn verða“.
Pabbi þeirra varð svo hrærður, að hann sagði,
Nú er lokið myndasögunni um Ging
Lin. Við vonum, að þið hafið haft
ánægju af að kynnast þeirri skemmti-
legu telpu. — í ráði er að gefa þessa
myndasögu út sérprentaða innan
skamms. Þá ættuð þið að segja kunn-
ingjum ykkar frá henni og jafnvel nota
hana til þess að gefa þeim í afmælis-
gjafir eða þess háttar.
í næsta blaði mun byrja ný, falleg
og skemmtileg myndasaga í stað þess-
arar. Heitir hún HJARÐSVEINN OG
KONUNGUR og er um hjarðsveininn
Davíð, sem varð konungur í ísrael. Hef-
ur sú myndasaga, ásamt myndasögunni
,,Á meðal villtra Indíána“, verið lánuð
Ljósberanum af sænska barnablaðinu
„Framát og uppát“.
i