Ljósberinn


Ljósberinn - 10.04.1926, Blaðsíða 6

Ljósberinn - 10.04.1926, Blaðsíða 6
118 LJÓSBERINN »Hvers vegna fer þú, Svafar?«. Svafar sneri sér ósjálfrátt við. »Svafar er dáinn«, sagði hann. »Nei, sa^ði hún. »Eg veit, að þú hefir látið fríð- leik þinn fyrir lyfin handa föður þínum, en eg þekti þig þó óðara á augunum og málrómnum«. »Elsku sonur minn«, sagði gamli konungurinn, »hví lagðir þú svo mikið í sölurnar fyrir mig?« »Átti eg ekki að gera það?« spurði Svafar, og sá nú að hann gat ekki hjá því komist að segja til sín. »Ef eg hefði ekki gert þetta, þá ætti eg ekki skilið að heita sonur þinn«. »Eg elska þig, þrátt fyrir oprýði þína«, sagði Gerður. *l'að er gagnlaust«, sagði Svafar örvinglaður, því að eg hefi gefið fríðleik minn, konugstign mína og þig sjálfa fyrir læknisdómana, Gleymdu, gleymdu mér, lofaðu mér að fara«. »Vesalings sonur minn«, sagði konungurinn, en hvað þú ert heillum horfinn«. Og Gerður grét beisk- lega, en Agnar fagnaði með sjálfum sér yfir óförum Svafars. En þástóð gamli maðurinn undan Svörtuloftum alt í einu frammi fyrir kongssjmi. »Far þú hvergi«, sagði hann alvarlega. »Nú er reynslutími þinn á enda. Fyrir mörgum, mörgum ár- um var eg ungur maður, sem lagði þá hamingju annara í sölurnar fyrir sjálfs míns hamingju, með mikilli ráðkænsku. En fyrir það var eg rækur ger til Svörtulofta, og þar skyldi eg fá að eiga vist, unz eg hitti mann, sem legði sjálfan sig í sölurnar til að

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.