Ljósberinn - 15.08.1931, Síða 1
——-»
Jfesus sqijöi: J+eyf iV bjsri'iiiinum
/i’orifa fil mtn ocj bártUtÍ þeim þa% eliki,
•i>í ctií slíkuni heut'ít'
.......-
Reykjavík, 15. ágúst 1U31
32. tbl.
Yernd Drottins.
Ef Drottinn verndar ekki borgina,
þá vakir vörðurinn til ónýtis. Sálm.
127, 1.
Jesús sagði við lærisveina sína:
Hjörtu yðar skelfist eigi! Trúið á Guð
og trúið á mig. Jóh. 14, 1.
Kæri, ungi vinur minn!
Þessum tveimur orðum máttu aldrei
gleyma, ef þú vilt, að þér farnist vel.
Getur þú fundið, aó þessi tvö indælu
orð frá Drottni séu nokkuó skyld?
Mér finnst þau bæði renna saman í
þessu eina orói:
öll mannleg hjálp er ánýt; engin
hjálpar nema Guð.
»Ef Drottinn verndar ekki borgina,
þá vakir vörðurinn til ónýtis« lýtur að
I>ví, að allt sé undir hjálp Drottins kom-
]ð í tímanlegwtn efnmm 1 staóinn fyrir
»borgina« getur þú sett »Reykjavík«
eða hvern annan staó þar sem þú átt
heima, og í staðinn fyrir »vörðinn« get-
ur þú sett þá, sem yfir þér eiga að
vaka, foreldra þína eða kennara eða
aúsbændur, — eða jafnvel: lögregluna
(í borginni). —
Allur þessi vörður er ónýtur, ef Drott-
Din verndar þig ekki. En »þeim, sem
Drottinn ver-ndar, er engin hætta búin«,
eins og segir á öðrum stað.
»Guð verndi þig, en vak og bið
og varóveit, barn, þinn sálarfrió;
á herrans traustu hönd þig fel —
ef hann er með, þá farnast veU.
En þetta traust á Drottni er oft erfitt
að varðveita í hjarta sínu; en ekkert
annað getur veitt frið og hvíld — í t:m-
anlegum efnum.
»Hjörtu yðar skelfist ekki! Trúió á
Guð og trúið á mig«. Láttu þessi orð í
sífellu minna þig á, að það er Drottinn,
sem allt er undir komið — í andlegum
efnum. Þar hjálpar heldur enginn,
nema hann.
En því er eins varið og um traustið
í Drottni í tímanlegum efnum, aó mörg-
um veitir erfitt að treysta því, að Guð
hjálpi. Maður sér synd sína og sekt og
hjartað »skelfist«. Enginn getur fund-
ið sálu sinni frið og hvíld fyr en honum
er af Guði gefið að treysta þessum orð-
um Jesú: »Trúið á Guð og trúið á mig«.
Það var lærisveinum hans gefið á
hvítasunnudeginum, fyrir bænir þeirra
dagana á undan.
---. --------