Ljósberinn - 15.08.1931, Side 8
252
LJÖSBERINN
»Hann er ef til vill útlendingur«,
hugsaði Ligthon meó sér. Eftir dökku
augunnm hans að dæma virtist honum
að svo gæti verið. Svo reyndi hann að
tala vió hann frakknesku Og ítölsku til
I>ess að gera sig skiljanlegan.
Drengurinn litli hafði aldrei augun 3f
honum, og lýstu þau tilfinningu, sem
ómögulegt er að lýsa; j>au voru full af
ringli og kvöl, svo að læknirinn fylltist
meðaumkvunar, sem hann gat alls eigi
dulió. Varir drengsins bærðust og hann
sagói mjög skýrt og skilmerkilega:
. »Eg skildi yóur vel áðan, en eg get
vel talað frakknesku. Er þetta Frakk-
land?«
»Nei, við erum á Englandi, litlrvinur
minn, og munum brátt finna vini þína.
Hvað heitir þú?«
Það var eins og skýi angistar og fáts
brygði yfir svip drengsins.
»Eg veit þaó ekki«, svaraði hann.
»Veiztu þaó ekki?« sagði Ligthon
læknir blíólega. »Jæja, þér mun bráó-
lega renna þaó í hug aftur«.
Nú varó löng og eftirvæntingarfull
kyrð í litla herberginu. Davíð hélt niðri
í sér andanum of ótta fyrir því, aó hann
kynni að trufla hugsanir litla kóngsson-
arins. Móðir has hneigði höfuðið af vork-
unnsemi og mælti fyrir munni sér:
»Veslings lambið, veslings lambið«, en
læknirinn horfði rannsakandi á andlit
drengsins, en "auðsætt var, að mikil
hræósla var inni fyrir hjá honum.
Dökku augun brunnu af kynlegum
ljóma, og hljóðandi þrýsti hann hönd-
um að höfði sér og stundi upp:
»Eg get ekki munað — eg get ekki
munað! Það er allt horfið«.
Læknirinn lagói aðra höndina á
hendur litla drengsins. »Hvað gerir það
til«, sagði hann blíðlega, til þess að friða
hann. »Þaó ryfjast aftur upp fyrir þér.
Reyndu ekki að hugsa, þú hefir illt af
því. Drekktu eitthvað af þessari mjólk
og sofnaðu svo. Þegar þú vaknar aftur,
þá er eg viss um að þú manst allt«.
Frh
Dagdómar.
Það köllum vér dóm, er vér heimfær-
um tvö hugtök hvort til annars. Er hann
kveðinn upp með setningu, er þá annað
hugtakið frumlag, en hitt umsögn. Dóm-
ur er hið fyrsta stig hugsun'arinnar.
Hann getur bæði verið réttur og rang-
ur. Réttir dómar auka þekkingu vora
og geta yfir höfuð haft margvísleg áhrif
til hins betra á sálarlíf vort. Til þess
að dómurinn verði réttur, þarf sá, er
dæmir, að vera vel kunnur því málefni,
er dæma skal um. Allir vilja heldur
verða fyrir góóum dómum af öðrum
heldur en vondum, og þess'végna hefir
dómur annara manna misjöfn áhrif á
oss og þess vegna leyna menn oft hinu
illa, að þeir óttast vonda dóma. Menn-
irnir dæma hver annan og dómar þeirra
eru bæói réttir og rangir. Maðurinn
hefir frjálsræði til þess að velja og'
hafna; hann þekkir mismun á réttu og'
röngu, og er honum því dómgreinóin
meðsköpuð, þótt hún sé á lágu stigi
sumstaóar.
Frh. ,
Prentsmiðja
Jóns Helgasonar
leysir af hendi alls honar prentun.
Bergstaðastræti 27. Sími 1200.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.