Ljósberinn - 01.03.1936, Síða 4

Ljósberinn - 01.03.1936, Síða 4
Drottinn Jesús er góður gestur. Svo reyndist það á heimili þeirra systra, Mörtu og Maríu, í Betaníu. En nú kem- ux Jesús ekki persónulega, eins og í þá d,aga, heldur sendir hann vini sína 1 sinn stað. Hér skal nú segja frá ferðamanni, sem rak erindi Drottins síns og frelsara í nafni hans. Það var í Bandaríkjunum árið 1797. Maðurinn var einu sinni á ferð að vanda; en þá skall á hann óveður úti á víðavangi; leitaði hann þá sk.jóls í kot; einu úti í skógi. Par bjó kona. Hún var fjarri Guðs ríki, en gestrisin var hún að eðlisfari og tók vinsamlega á móti þessum ókunna gesti. Maðurinn gaf sig nú brátt á tal við hana, eins og Jesús við þær Mörtu og Maríu forðum, Fljótt komst hann að því, að það var ekki Bet- anía, sem hann var kominn til. Að vísu fetaði konan í spor Mörtu með það, að standa honum fyrir beina. En af lif- andi kristindómi átti þessi kona ekki neitt, heldur sagði hún ferðamanni eins og var, að hún ætti enga Biblíu og væri öUu ókunnug, sem heyrði Guðs ríki til. Af jiessu réð hann þó, að hún væri ein- læg og gaf henni því amerískan dal til þess að kaupa sér Biblíu fyrir. Hér um bil 50 árum síðar kom ókunn- ur maður til þessa sama ferðamanns. Hann spurði hinn ókunna. mann tíðinda, og hvernig trúarlíf manna væri í bygð- arlagi hans. Hinn ókunni svaraði, að þar væri hafin andjeg vakning og væri næsta einkennilegt, hvernig hún hefði byrjað. Það væri kona, sem fyrst hefði vaknað, sem byggi í koti einu úti í skógi. Þar hefði áður ferðamann borið að garði undan óveðri og beðist gistingar og sá ferðamaður hefði gefið konunni dal, til að kaupa sér Biblíu fyrir. Þetta atvik varð til þess, að margir sneru sér til Guðs á þeim slóðum. Ferðamaðurinn hlustaði undrandi á Jressar fréttir, lyfti síðan höndum til himins og þakkaði Guði, er svo hefði blessað næturgistinguna í skógarkotinu. Ef, frelsari minn, við fætur þér, sem forðum María, sæti ég hér með barnsins bljúga geði, og yfir mig lýsti auglit þitt og orðin þín féllu í hjarta mitt, það yrði mér eilíf gleði. Ég vil trúa. Bg vH trúa, -Jesús Kristur, ég vil reyna að fylgja þér. Hjá þér vú ég hadis leita, hvað sem kann að ógna mér. Bg vil trúa, Jesús Kristur, ég vii biðja þig um náð, orð þín vil ég lesa og lœra, líknarorð um hjálparráð. Ég vil trúa, Jesíis Kristur, ég vil biðja þig um mátt, þegar freisting þung mér mœtir þú munt sigur vinna brátt. Ég vil trwa, Jesús Kristur, ég vil eiga frið hjá þér, hvílast rótt við hjartað blíða, helgun svo að veitist mér. M. R

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.