Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Síða 2
242
NÝTT KIRKJUBLAÐ.
Sá jarðvegur sem manneðlið einvörðungu getur vaxið í,
|>að umhverfi sem það getur dafnað í og náð fullum þroska
án þess að nokkuð tálmi vexti þess, er samfélagið við guð,
hina eilífu uppsprettu alls sem lif nefnist.
Ágæti hins kristilega lífs er í þessu fólgið: að það leysir oss
frá valdi syndarinnar og setur oss í lifandi samband við guð.
Hér verður spurning á vegi vorum : Hvor þessara tveggja
hliða endurlausnarinnar fer á undan hinni? hin neikvæða eða
hin jákvæða? lausnin frá valdi syndarinnar eða sameiningin
við guð?
Spurninguna mætti einnig orða þannig: Verð ég að
leysast frá syndinni til þess að geta sameinast guði? eða verð
ég að sameinast guði til þess að geta losnað undan valdi
syndarinnar?
Hvað er hér orsök og hvað afleiðiug?
Seg ekki: Þetta er ein af hinum mörgu hártogana-spurn-
ingum, sem guðfræðingarnir ávalt eru að plága með sjálfa sig
og aðra engum til gagns. Því skal sízt neitað, að guðfræð-
ingar hafa á öllum tímum plágað sjálfa sig og aðra með
fjölda ónytju-spurninga; en þetta er ekki ein af þeim. Saga
kirkjunnar á öllum tímum ber þess vott, að hér er um þá
spurningu að ræða, sem hefir hina mestu þýðingu fyrir kristilegt
líf mannsins í reyndinni. Þess vegna verður ekki gengið
fram hjá þessari spurningu. Og hér verður að rannsaka ná-
kvæmlega og gæta hinnar mestu varúðar að oss skjátlist ekki.
Vafalaust er oss öllum geði næst að hugsa á þá leið,
að það atriði endurlausnarinnar, að hún leysir oss undan valdi
syndarinnar, hljóti að fara á undan hinu, að hún setur oss i
samband við guð. Það er að skilja: áður en vér syndugir
menn fáum komist í samband við heilagan guð, verðum vér
að endurleysast frá syndinni; svo syndugur sem ég er get ég
ekki nálgast hinn heilaga né komist í samband við hann.
Þannig hugsaði fornkirkjan. Þannig hugsaði miðaldakirkjan.
I raun og veru hefir kirkja mótmælenda, er stundir liðu fram,
komist inu á sömu hugsanabraut. Rétttrúnaðarstefnan mynd-
aði kerfi sitt með hliðsjón á þessari bugsun, og heittrúnaðar-
stefnan, bæði fyr á tímum og síðar, befir reynt að leiða kerfi
þetta í framkvæmd í lífinu.