Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Blaðsíða 16

Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Blaðsíða 16
256 KÝTT KIKRJTIBLAÐ. sóknarpresti sínum, er þeir ávalt hefðu haft á hinar mestu mætur. Kirkjustjórnin hefir nú skipað biskupi að afturkalla afsetningu prestsins, en steína honum i þess stað fyrir prófasts og sýnódalrótt til þess að fá málið löglega útkljáð. — Síðan grundvallarlögin öðluðust gildi hefir slíkt mál uppkomið aðeins einu sinni áður, og varð hlutaðeigandi prestur þá að víkja úr embætti. Er helzt búist við, að eins fari hér að lokum, þrátt fyrir leyfi dómsmála- stjórnarinnar til skilnaðarins og hins nýja hjúskapar. Amerika. Eins og kunnugt er, heimila lög ýmsra ríkja i Norður-Ameríku einstökum bæjarfélögum að fyrirbjóða áfengis- gjörð og áfengissölu ýmist að nokkru leyti eða öllu, og færa ýmsir bæir sér það í nyt. Til þess að sannfærast um hvern þátt áfeng- isnautn á í glæpsemi manna, þarf ekki annað en bera saman, skýrslur um glæpi framda í þeim bæjum, er.ekkert áfengi leyfa og hinum, sem leyfa það. í Massachusetts-ríki hafa verið samdar og útgefnar lærdóms- rikar skýrslur um þetta efni fyrir árið 1895; þar sést hve margir menn hafa verið handsamaðir fyrir framin brot í hvorum þessara bæja fyrir sig, og kemur þar í ljós, að í annars jafnstórum bæj- um hafa hálfu færri menn verið handsamaðir þar sem ekkert áfengi er leyft, en í hinum. í Ameriku eru 26 bæir, þar sem öll áfengissala er samkvæmt borgarasamþykt fyrirboðin, hvort heldur er í sölubúðum eða í gistihúsum. Hér hefir glæpum fækkað svo, síðan áfengissalan hætti, að ekki nær helmingi þess, er var á meðan hún var leylð. Sameiningin, mánaðarrit hins ev.lút. kirkjuf. ísl. i Vesturhoimi. Ritstjóri: síra Jón Bjarnason i Winnepeg. Hvert númer 2 arkir. Barnablaðið „Börnin“ er sérstök doild i „Sam.“ undir ritstjórn sira N Steingrims Þorlákssonar. Yerð hér á landi kr. 2,00. Fæst lijá bók- sala Sig. Kristjánssyni i Rvik. Siigulegur uppruni nýja testamentisins, einstakra rita þess og safnsins í heild sinni. Höfundur Jón Helgason, prestaskólakennari (VH.-|-879 bls. i 8°). Verð innheft kr. 3,25. Höfuðútsala hjá bókbind- ara Guðm. Gamalielssyni. Útgefendur: JON HELGASON og ÞÓRHALLUR BJARNARSON. Félagsprentsmiðj an.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.