Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Síða 1
NYTT KIRKJUBLAÐ
HALFSMÁKAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1909. Reykjavík, 15. júni
12. blað
Jorgarljóð frd tólftu öld.
Ilelóísa kveður yfir moldum Abelarðs.
Nunnurnar:
Hvíli sætt frá sárum þrauta,
sorg og ástum jarðlífsbrauta,
dyggur sonur sannleikans,
sá er þráði
þar til náði
lífsins dyrum lausnarans.
Stjarna blið í banaleynum
brosir vini sálarhreinum;
sjálfur var hann ljósa ljós;
þess hann nýtur
þar til lítur
Drottins koma dýrðarhrós.
Helóísa:
Heill þér kæri, krýndur sigri,
kappinn girtur ljóssins vigri;
inn til þín með öll mín tár,
unaðsfegin
eg mig hneigi —
ástin beygir bel og fár!
Eitt nam yfir okkur ganga,
eitt skal lika helið stranga;
loks i fögnuð fylgi eg þér!
Ljóss að hnossi
heims frá krossi,
hjartans-vinur, Iyftu mér
Nú má enginn ástir meina!
Eftir það sem máttum reyna,
frjálsan engil festi eg þig!
Sektin grætir,
baninn bætir
bæði fyrir þig og mig.
Himinbúar, helgur andi,
heyrið, sjá, eg stíg frá landi!
þeg, eg heyri yndisóm:
Andar gladdir,
gleði raddir
syngja skært við hörpuhljóm.