Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Side 3

Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Side 3
^ NÝTT KíRK.JUBLAÐ 139 Friðþægingarkenningin reikningslega var þá að mótast í kirkjunni, að sumu nýstárleg og heimfærsla úr réttarfari heiðinna germanskra þjóða. Þar reis Abelarð á móti: Aherzlan liggur eigi á fórninui, heldur á hinu, hvernig maðurinn tileinkar sér guðs kærleika í Jesú Kristi. Kristur er opinberun guðs kærleika, guðmaðurinn í æðstri fullkomnun. Endurkærleikurinn bugar syndina og veitir hið sanna guðsbarna frelsi. I nánu sambandi við þetta hvortveggja, rannsóknai'frels- ið og tileinkun Iivors um sig, byggir hann allan siðalærdóm- inn á dómi samvizkunnar hjá hverjum einum. Skólaspekin, sem barði kenningar hans niður, er mjög svo skyld bókstafs- þrældóm vorra tíma, og skólaspekin bjó algerlega í haginn fyrir hina samvizkulausu siðfræði Jesúítanna. En niiklu kunnari öllum almenningi verður Abelarð þó af ástum sínum og raunum. Hann var orðinn heimsfrægur maður, eins og þá var hægt að verða frægur. Þar sem hann tók sér vist, var kom- inn upp háskóli, hvort heldur var í borg eða á mörkum úti. Aðsóknin var svo mikil. Kennarinn var lærisveinunum alt annað og margfalt meira þá, í bókleysinu, og samvistirnar mestan hluta dagsins. Enginn stóð honum snúning í rök- fræðum. Og stærilætishugurinn óx jöfnum höndum. All var vitað og rakið. Ekkert varð eftir — til að skoða í skuggsjá og ráðgátu. Þá er það að ríkisklerkur ræður hann fertugan fyrir kennara bróðurdóttur sinnar. Hún var enn ekki tvítug, en bar af öllum Parísarmeyjum að gáfum og fegurð. Og jafn- framt átti hún að verða lærðust allra kvenna. Helóísa hét hún, og óvarlega var þetta ráðið af klerkin- um, því að „brátt varð meira um kossa en kenningar“, að því er sagan hermir. Og þá kveður Abelarð fræga mansöngva, og nafn Helóísu ílaug með þeim um allan heim. Þau giftust síðan, en Helóisa krafðist þess, að þvi væri haldið leyndu, til þess að það spilti eigi fyj ir Abelarð í kirkju- valdastiganum. Hún ætlaði vini sínum páfastólinn. Hann var í hennar augum allra manna beztur og vitrastur til að silja þar. Svo eru þeim meinaðar samvistir. Abelarð er sví- virtur af frændum Helóísu. Hann verður fyrir ofsóknum og

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.