Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Qupperneq 4

Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Qupperneq 4
140 NÝTT KIRKJUBLAÐ hrakningum, og gerist nú munkur. Eun flykkjast námsmenn og reglubræður til hans. Helóísa verður líka nunna, og Abelarð ánafnar henni klaustrið sitt, og þar verðurbún abba- dís, og varð hún ágæt af stjórn sinni á því klaustri um langan aldur. Um hrið var Abelarð ábóti i klaustri á öðrum landsenda og skiftust þau á ástúðlegum systkina-bréfum, og i viðlögum sótti hann Helóísu heim i klaustrinu og hélt fyrirlestra fyrir nunnunum. Efstu árin tvö þyrmdi alveg yfir Abelarð. Hann varð að flýja klaustrið sitt, munkarnir reyndu að ráða hann af dög- um, kirkjufundur og páfi dæmdu hann villumann. Og boðið var að geyma hann i ströngu klausturvarðhaldi til æfiloka. Sú vist varð honum þó svo góð sem orðið gat, hjá á- gætum manni, Pétri ábóta hinum virðulega Klaustrið það var í námunda við nunnuklaustrið, þar sem Helóísa sat. Franska stjórnarbyltingin mikla gjörspilti og eyddi hinum fornu klaustrum, en eftir stendur þó linditréð, sem Abelarð sat undir öllum stundum. Afhæðinni þeirri eygði hann klaust- ur ástmeyjar sinnar fornu, og þangað mændi hann. Klaustur- kroníkan segir það eitt af honum þar, að „hann las og bað og þagði.“ Helóísa fékk Ieyfi til þess að vinur sinn mætti fá legstað við klausturkirkjuna hjá sér, og hún festi á kistulokið synda- kvittunarbréf frá Pétri ábóta. Ilún kveður svo útfararsönginn yfir vini sínum, sem síra Malthías hefir þýtt svo snildarlega. Fullum 20 árum síðar andast Helófsa, og h'kami hennar er látinn í sömu málmkistuna. Allir vilja nú göfga ástina þeirra. Kistunni þeirra var eigi spilt í stjórnarbyltingunni, og nokkru síðar var hún flutt til Parísar. Kistan þeirra er enn til sýnis í kapellu sem stendur þar í kirkjugarði. Vitringnum mikla og málsnillingnum hafa allir gleymt, nema fáeinir guðfræðingar. En söguna um ástir þeirra og raunir kann hvert barnið sem um garðinn gengur. Og meyjar og sveinar sem fylgt hafa jrangað ástvin til grafar, fara með nokkuð af grátsveigunum og blómunum til að prýða með kistuna þeirra Helóísu og Abelarðs.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.