Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Blaðsíða 7

Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Blaðsíða 7
_ _ KYTT KIHKJURLAÐ 143 verður samlíking frelsarans um vínviðinn og greinarnar að trúarreynslu. Þá kemur hin sæla samkend lífssafans streym- andi um stofn og greinar. Hugsaðu um það, kristni vin, hvaða blessun það væri að mega langa í guðs hús á helgum tíðum. Að þú vissir það fyrir og fyndir það á þér, að í kirkjunni fengir þú frið og endurnæring og hvíld og styrk, og að þú færir þaðan glaðari, með meiri þolinmæði, meiri von og meiri kærleika, og færari og styrkari til að lifa guðhræddu og dáðríku lifi. Altaf kallai- fleira og fleira að til að taka upp tíma vorn og starfskrafta. Verkefnin eru svo mörg og svo góð, sjálfum oss og niðjum vorum til þroska, andlega og líkarnlega, og til margskonar félagsheilla. Lífið verður svo ört — og um leið svo stutt.—Og það verður að halda svo vel á tímanum. Þessi þysjandi dagverknaðar fer sívaxandi. En þrátt fyrir hann, — og enda einmitt vegna hans, ætti safnaðar-samkom- an í kirkjunni að geta orðið kærsti staðurinn ogstundin, sem endilega þarf að gefa sér tóm til að sækja. Og það beint af því að sú stundin er arðmest fyrir framsókn lífsins, af því hún lyftir oss inn í lffsstrauminn — til hans, sem alt er frá og alt er fyrir og alt streymir til. Hjáróma. Jlirðskáldin heita áfram Guðmundur og Þorsteinn, þótt alt aðrir séu mennirnir. Minnir það eitthvað á hefðarbrag tiginna heimila — erlendra þó — þar sem vinnukonan heitir óbreytt áfram hjá frúnni Marja eða Stína, þótt vistaskifti séu á hverri krossmessu. Skáldið Þ. E. sætir svo lagi til að koma því að í Ijóði við vígslu Heilsuhælisins, að í kirkju Krists á jörðinni hafi aldrei um dagana verið varmi eða von, né 1 jós og birta. Flestöll blöðin fara með orðin, þar sem verið er að lýsa blessuninni í hælinu: „i kirkjunni fyrstu, sem vermist af von og vígð er þér himinn og dagur.“ Þetta var sungið á Hvítasunnunni, yfir fjórum þúsundum

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.