Nýtt kirkjublað - 15.06.1909, Page 8
144 ^ NÝTT^IRKJtJBLAÍ)
saman komnum til að fagna dýrðlegasta mannúðarverkinu,
sem unnið hefir verið með íslenzkri þjóð.
Fyrir bindast hátíðahaldinu, eða koma þar fram sem
ræðumenn, ráðherra, landritari, Iandlæknir.
Eg veit að það er mjög fjarri huga þeirra manna að
samsinna þessum dómi — hvað þá að láta fara með svona
orð við slíka athöfn.
Þetta er slys. Þeir sem að stóðu, þessir menn og aðrir
í stjórn félagsins, hafa alls eigi séð kvæðið áður, eða litið svo
lauslega á það, að þeir hafa eigi tekið eftir þessu.
Svo veit ég um þann manninn i félagsstjórninni, er ég
benti á þetta. Hann kvaðst hafa handleikið kvæðið áður, en
ekki komist lengra í lestrinum en yfir tvö fyrstu erindin.
Annar maður í félagsstjórninni reit mér um kveldið:
„Eg náði ekki í þig í dag suður frá til þess að segja þér að mér
var ami að kirkjusneiðinni í kvæði Þorsleins. Eg sá ekki kvæðið fyr
en sungið var........I dag átti sízt heima að amast við kirkju og
kristindómi, sem hefir verið höfuðmáttarstoð allrar líknarstarfsemi."
Þetta var svo hjáróma við hina fögru vígsluathöfn.
Kvæðið er lesið af rétt öllum landsins lýð, ogorðinsæra
marga. Og mest verður mönnum um það, að farið skuli
með þetta við slíka vígslu. Þetta gæti ef til vill spilt fyrir
Heilsuhælinu, en með engu móti má svo fara. Þvi er betra
að drepa á þetta, og alþjóð viti, að hér er um óviljaslys
að ræða.
Prestkosning.
Einar prófastur í Kirkjubæ í einu hljóði kosinn prestur að Desjnvmýri.
Prestaskólinn.
Embættispróf verður ekki í þetta sinn. Einn stúdent var í elzlu
deild, og ætlar sér að vera 4. árið á skólanum.
Unga ísland 1909, 3.-4. tölublað.
Bandaríkjaforsetinn nýi (mynd). — 10 boðorð heilsunnar. — Sunnu-
dagskyrð (kvæði). — Washington IV. — Býflugur. — Dagur (kvæði),
G. G. — Virkisrústir (kvæði), Fr. Fr. (mynd). — Kartöílur. — Elztu
menn. — Smáleikni. — Töfrar o. m. fl.
Ráðherraskifti (mynd). — Vormenn (kvæði), G. G. — Býflugur. —
Búskaparfólkið. — Dvergar og risar (mynd). — Ormurinn í bláberinu, Z.
T. —■ Elztu menn. — Sitl af hverju. — Skrítlur o. m. fl.
Ritstj óri: ÞÓRHALLPR BJARNARSON.
FélagRprfintsraiOjan.