Nýtt kirkjublað - 15.03.1910, Side 4

Nýtt kirkjublað - 15.03.1910, Side 4
68 NÝTT KIRKJUBLAÐ sem rætt er og framfer á safnaðasamkomunum; má þá um leið sjá, hvað hver einstakur söfnuður — eða félög safn- aða — hafa fyrir stafni. Þar koma hinar ýmsu starfsnefnd ir fram og skila skýrslum og álitsmálum; þar eru bornar upp tillögur, nýmæli, aðfinslur, umkvartanir, vandræði, tilkynt mannalát, ný fyrirtæki stofnuð, fundarhöld ákveðin, fagnaðar- samkomur, kirkjuvígslur, prestaskifti eða — vígslur; þar er og leitað allskonar liknarráða og samskota til styrktar trú- boðum, fátækum, sjúkum, og ótal margt annað, sem fyrir kann að koma, svo sem að fá sér valda fræðimenn til að halda fyrirlestra eða góða prédikara til að stíga í stól þar sem menn óska — auk þess, sem það er alsiða að prestar em- bætti hvor fyrir annan. Þá má og ekki gleyma starfsemi kvennanna, enda nægj- ir að segja, að þeirra starfsemi og hluttaka i flestum málum er engu minni en karla. En þó er sumt fremur falið konum á hendur en körlum, t. d. stofnun líknar-basara, svo og sjúkra- gæzla, eftirlit með barnauppeldi, og sjúkrahælum fyrir börn og gamalmenni. Nefndir og verkefni þeirra verður varla töl- um talið og vekur hina rnestu furðu ókunnugra, sem ekki eru sliku kirkju- og félagslífi kunnugir. Hin verklega hagsýni og dugnaður Englendinga má vekja undrun allra þjóða, enda er stórbæjalífið þar sú veröld og það völundarhús, að slíkt má íljótt æra hvern einstaks manns heila. Aldrei læra vorir Iandar, sízt prestsefni vor, verulegt frí- kirkjulíf að þekkja fyr en jafnóðum og þeir næðu að kynn- ast ensku frísafnaða lífi. Því skal enn við bætt, að fríkirkjur láta sig varða ná- lega öll mannfélagsmál — nema stjórnarsakir; til stjórnar- mála hlutast þær einungis, þegar mikið er í veði og þær neyð- ast til. M. J. í Nýju Kirkjublaði frá 15. okt. 1909 birtist kafli úr bréfi frá síra Birni B. Jónssyni i Minneota, forseta Kirkjufelagsins,

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.