Nýtt kirkjublað - 15.12.1914, Síða 6
286
NÝTT KIRKJUBLAÐ
Til kaupenda og lesenda við áramótin.
N. Kbl. leggur út á 10. árið 1. janúar næstk. Horfur
blaðsins heldur örðugri nú en áður. Hefir útgefanda aldrei
til hugar komið að fá bættan stórskaðann frá fyrstu árunum;
þakkar hitt, ef hóldist, að inn kæmi beint útborinn eyrir, svo
sem síðustu árin. Verður blaðið að treysta á forna vini og nýja.
Mikið er til af 9. árgangi, og velkominn nýjum kaupend-
um ókeypis, er óska kynnu og vitjuðu. Var við síðustu ára-
mót strikað yfir á 3. hundrað kaupenda vegna vanskila, og
J>arf aftur nú að gera umsóp, Jiótt miklu minna verði. Kaup-
endur sem ekki fá blaðið úr nýári, athugi ])ví, hvort sök kann
eigi að liggja nær sjálfum þeim, en blaðinu eða burðarliði
póstmeistara.
Jólaglaðning' til fátækra í Reykjavik.
Prestarnir í Reykjavík gangast nú sern áður fyrir samskotum
til slíkrar glaðningar, og verður þeim eflaust vel tekið. Vart mun
þörfin minni en undanfarið. Vinna þeir væntanlega í sameiningu
allir, dómkirkjuprestarnir og síra Ólafur fríkirkjuprestur. Losuðu
gjafirnar í fyrra 1000 kr., liafa þær farið vaxandi ár frá ári.
Jólakveðja
til islenskra barmi, frá dönskum sunnudagaskólabörnum kem-
ur nú í 6. sinn, og mun sömu tölu útbýtt liér sem áður, 10 þús.
eintökum. Grein er þar írá sira Hauki Gíslasyni um barnaguðs-
þjónustu í dönsku sveitunum. Hann er nú prestur í Tvede, skamt
frá Randers á Jótlandi. Fallegar myndir eru að vanda í Jóla-
kveðjunni, í þetta sinn eru 3 myndir af stórum barnahópum við
sunnudagaskóla og barnaguðsþjónustu.
Gefins biblía í sunnudagaskóla.
Breska Biblíufélagið hefir látið biskupi heimilt að gefa ofur-
lftið af vasaútgáfu biblíunnar til sunnudagaskóla. En svo fátt er
um þá enn hjá oss, að eigi hafa nema þrír kaupstaðir notið þetta
ár, Reykjavík, Akranes og Blönduós. Þar á Blöuduós er gamall
raaður, Sigurður Sölvason, er kyntist suunudagaskólastarfi hjá lönd-
um vestra, og liefir stundað það af mikilli alúð síðan liann kom
heim. Hefir honum verið til aðstoðar Ingibjörg Einarsdóttir frá
Reykholti, kennari á Blönduós.
Biblíugjöfin er eigi síst til uppörfunar því, að upp rísi sunnu-
dagaskólar. Hverjir bætast við 1915?
Til Breska Biblíufélagsins.
Sent hafa, til 26. nóv., H. N. 5 kr., S. Bj. 15 kr.