Nýtt kirkjublað - 01.08.1916, Qupperneq 3
NÝTT KlkKJUBLAt) l7l
postula höfuni vér alls ekkert, því Jakobs bréf og Júdasar
eru ekki postulleg rit, eftir því sem margir ætla“. Um Pét-
ur segir hann, að hann sé hinum postullega anda eigi jafn-
gildur, með tilliti til 2. Pét. 3,9. Þetta var árið 1524, og
það var eftir skoðunum rétt-trúnaðarmannanna árinu eftir að
hann hafði náð þeim aldri, að hann gat ekki látið sér skjátl-
ast. Matteusarguðspjall er eftir sannfæringu Lúters ritað af
postula. Samt skipar hann því skör lægra en Jóhannesar-
guðspjalli. Til þess að ná hámarkinu er ekki nóg, að eitt-
hvert rit sé eftir postula, heldur að efni þess svari til þess,
sem hann álítur aðalkjarna biblíunnar. Á þeim tíma, er Lú-
ter fann sárast til þess, að hann þyrfti að styðjast við úr-
skurðarvald biblíunnar, neitaði hann að beygja sig jafnvel
fyrir postullegum orðum. I Leipzig efaðist hann í umræðun-
um við Eck um, að Jakob væri postuli, en kannaðist þó
við, að hann hafi kunnað að vera það. En þótt hann hafi
verið postuli, neitar hann að leggja sig undir úrskurðarvald
hans. Jafnvel við orð Krists vill ekki Lúter binda sig, þeg-
ar þau sé ekki til hans töluð. „Ef Kristur hefði ekki bælt
við: Prédikið allri skepnu, hefði eg ekkert látið það koma
mér við og farið með það á sama hátt og eg nú fer með
Móse; um hann kæri ég mig ekkert; hann kemur mér ekki
við“.
Biblían og trúarvitundin.
Samt sem áður var hið sögulega sjónarmið ekki aðal-
atriðið í skoðan Lúters á biblíunni. Hann var of mjög barn
sinnar eigin aldar til þess. Síðan hafa hin sögulegu sjónar-
mið rutt sér til rúms í hverjum hlut. En eins og tekið var
fram hér að ofan, var trúarþörfin það sjónarmið, sem Lúter
aðallega dæmdi um bibliuna frá. Að þeirri leið hafði hann
sjálfur fundið hana og um leið sálu sinni frið. „Þú verður
með sjálfum þér í samvizkunni að finna til Krists og ótvíræð-
lega til þess finna, að það er guðs orð, þó jafuvel allur
heimur væri á móti því. Á meðan þú hefir ekki þessa til-
fmningu, hefir þú enn þá vissulega ekki hragðað guðs orð,
en liggur með eyrun við munn og penna mannanna". „Ef
vér vildum ekki trúa fagnaðarerindinu, en létum tilleiðast af
áliti allrar kristninnar, þá væri það rangt og ókristilegt. Ein-