Nýtt kirkjublað - 01.08.1916, Qupperneq 4

Nýtt kirkjublað - 01.08.1916, Qupperneq 4
172 NÝTT KlRKJtTBLAÍ) ungis þess vegna ber sérhverjum að trúa, aS það sé guðs orð og að finna það innvortis, að það sé sannleikur, jafnvel þó engill af himni og allur heimur prédikaði á móti“.“ „Guðs orð verður sjálft að fullnægja hjartanu, að umlykja manninn og ná tökum á honum, svo hann finni sig gagntekinn af því, hve satt og rétt að það sé.“ Fyrir því talar Lúter um tvo prófsteinn réttrar kenningar: „Vér verðum að halda fast við þá kenningu og prédikan, sem vér höfum bæði ákveðinn stuðning fyrir í biblíunni og líka i reynslunni. Það skulu vera hin 2 vitni og eins og 2 prófsteinar réttrar kenningar“. Einatt talar Lúter svo um biblíuna, eins og væri úrskurðar- vald hennar skilyrðislaust. Hann vill ekki heyra, að neinn bókstafur sé til hjá Páli, sem eigi allri kirkjunni beri að halda og hlýða. Samt sem áður er það ávalt reynslan, rödd sálar hans, sem segir honum til. Hann talar um „heilaga ritningu og guðs orð“. Með öðrum orðum: „Alt í heilagri ritningu er honum ekki guðs orð“. Hann spyr sjálfan sig: „Hvernig getum við vitað, hvað er guðs orð?“ Hann vísar úrskurðarvaldi páfans og kirkjuþinganna á bug. Svo heldur hann áfram: „Þú átt á hættu oð fara i gálgann, þú átt líf þitt á hættu. Þess vegna verður guð að segja þér það í hjarta þínu: Þetta er guðs orð, annars er það óvíst“. Og á öðrum stað: „Guð verður að draga manninn lengra, svo að hann, þegar maðurinn heyrir orðið, gefi honum það í hjartað, svo að hanu sé viss um að það sé orð föðursins“. „Það er nauðsynlegt, að samvizkan og hjartað finni það, annars er það eintóm hræsni“. Samvizkan og hin innri til- finning eru settar jafnhliða. Hann segir, að enginn skuli hrekja sig frá því, að guð kenni honum. „Frá því orði skal mig enginn hrekja, sem guð kennir mér .... Guð verður að tala i hjartanu". „Eg verð að vera eins viss um það, eins og tveir og þrír sé fimm“. „Hvað ákveður mig þá? Eng- inn maður, heldur einungis sannleikurinn, sem er svo öldung- is hárviss, að enginn fær borið á móti honum“. Það er sama hugsunin og sú sem hann lætur í ljós i ritinu um her- leiðinguna í Babýlon: „Mannssálin verður svo hrifin af sann- leikanum, að hún neyðist til að segja með óbrigðulli vissu að þetta sé sannleikur“. Þessi sannleikskraftur orðsins til að þrýsta sannfæringunni fram í hjarta mannsins er vitaskuld

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.