Nýtt kirkjublað - 01.08.1916, Blaðsíða 8

Nýtt kirkjublað - 01.08.1916, Blaðsíða 8
176 NÝTT KTRKJUBLAÐ trúardeyfð og trúleysi sé langtum almennara nú, heldur en fyrir nokkrum tugum ára; að nú sé allur fjöldinn fráhorfinn sönnum kristindómi, vilja ekki heyra gubsorð í heimahúsum, né fara til kirkju. Ef þetta er rétt hjá gömlu mönnunum, ætli það sé þá ekki af þvf, að hver þykist vera sjálfum sér nógur, og trúa að eins á mátt sinn og megin, eins og sum- ir fornaldarmenn gerðu. Er þá heimurinn með öllu sinu striti, eymd og vesöld, og eftirsókn eftir fallvöltum og fánýtum hlutum sjálfum sér nógur? Eða er trúarþörfm minni nú en var? Ellegar hefir sarsauki lífsins minkað við mentunina? Eg held ekki; því við aukna mentun verður vaxandi sársauki. Afarmikið svartsýni er þá trúleysið. Að hugsa sér „þau harmasárin djúpu“, að skilja við ástvin sinn á dauðastund- inni; hversu átakanleg hlýtur þá sú sorg að vera að skilja við hann um alla eilífð. Eg hugsa að margir falli frá trúnni um tíma, á meðan blóðið svellur í æðum og áhuginn og mentaþráin er mest eftir vísindalegum sönnunum um lífið og tilveruna, en svo komi hún aftur þegar áhuginn minkar og sorgir og erfiðar kringumstæður þrengja að. Hér er eitt dæmi efalaust af mörgum. Þegar ég var fermdur trúði ég miklum hluta af því, sem i kverinu mínu stóð. Mér þótti þó sumt ótrúlegt, einkum um hinn eilífa eld og fl. En ég hafði ekki einurð á að spyrja prestinn um það; ég hugsaði, að presturinn ætti að spyrja, en ég að svara með orðum kversins. Eftir ferminguna las ég allar bækur, sem ég náði til, bæði sögubækur og fræðibækur. Og með tímanum þóttist ég svo komast að þeim sannindum, að kverið væri fræðikerfi mjög ósennilegt, og biblían væri að nokkru leyti skáldsaga, og jafnframt saga Gyðingaþjóðarinnar og Krists og postul- anna, sem ekki væri áreiðanleg vegna mótsagna. Eg trúði ekki á guðdóm Krists eða upprisu hans, og skoðaði Krist sem mannkærleikans postula, er dó fyrir gott málefni. Lífeðlisfræðin kendi mér, að sálin deyr jafnt líkam- anum. Og ég hugsaði, þar sem ekkert lif væri eftir dauðann, þá væri engjnn guð til, og hefði aldrei verið til, nema guðir þjóðanna, sem þær hef'ðu hugmyndað sér á umliðnum öldum.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.