Nýtt kirkjublað - 01.08.1916, Blaðsíða 16
184 NÝTT KIRK.TUBLAÐ _
fiútersminninqin að dri.
C^9 J
Sameiginlegt hátíðahald er viðkvæðið hjá bræðrum vor-
um fyrir vestan haf, og verður það varla með öðru rnóti en
einhverjir þeirra sæki oss lieim. Við hér heima það gelu-
minni og viljaminni að fara vestur um haf.
Siðbótarminningin er dagbundin við 31. október, verður
þá að sjálfsögðu á næsta helgum degi eða næstu helgum
dögum haldin minning siðaskiftanna í kirkjum landsins. En
sá tími ársins væri löndum vorum vestra illa og óheppilega
valinn til ferðarinnar. Er beztur timinn fyrri hluti sumars,
rétt um og eftir Jónsmessu, eða einmitt venjulegi synódus-
tíminn.
Varla getur maður hugsað sér það hátíðahald annarstað-
ar en i Reykjavík. Þar yrði safnaðarfólkið lang-flest við,
og þar er beztur húsakostur.
Aðallega yrðu það ræðuhöld um Lúter og lifsstarf hans,
umtalsefnið yrði saga siðbótarinnar úti í heimi og hér heima,
og minning hennar beztu manna, er næst tóku við.
Verkefnið svo mikið og margvíslegt, að eigi sér út yfir.
Þessa er nú þegar minzt svo snemma vegna landa vorra
í Vesturheimi. Heyrist betur frá þeim síðar, hvernig þeir
hugsa sér hluttökuna. 1 annan stað er skorað á alla þá
presta, er flytja vildu í sambandi við sýnodushald í Reykja-
vík 1917 erindi um eða út af siðbót Lúters að gefa sig fram
um það við biskup hið fyrsta.
Áskorun þessari er beint til presta, þar sem minningin
eða hátiðahaldið fer fram á prestastefnu landsins, en ekki
mundi hendi stungið við verklegri hluttöku leikmanna. Síð-
ur en svo.
Blaðið telur sér sérstaklega skylt að flytja nú um sinn
minningargreinar á marga vegu um Lúter og siðbót hans, og
væntir hluttöku vina sinna, að gera alla þá minning sem
fylsta og rækilegasta, og sem sannasta í alla staði.
N. Kbl. 24 nr. á ári, 2 kr. — 75 cents í Vesturh. Eldri ár-
gangar fáanlegir fyrir hálfvirði, þó ekki 3. árg. nema allir sóu keyptir.
~ Ritstjóri: ÞÓRHALLUR BJARNARSON. ~
Félagsprentsmiðjan.