Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1958, Síða 1

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1958, Síða 1
6. hefti 31. árg. 1958 9 GEFIÐ UT AF LANDSSAMBANDI IÐNAÐARMANNA Frá 12. Norræna Iðnþinginu í Osló. Dagana 3. og 4. október s.l. var háð í Osló 12. Norræna Iðnþingið. Var það lialdið í hátíðarsal iðnaðar- mannahússins í borginni og sett af formanni Norræna iðnsambandsins, Norðmanninum Iíaare Aass. Var þingsetningin mjög hátiðleg og má geta þess að hljómsveit norskra iðnaðarmanna lék við þetta tæki- færi. Auk kjörinna fulltrúa voru við- staddir þingsetninguna iðnaðar- málaráðherra Noregs Gustav Sjaa- stad, sendiherrar Norðurlanda i Noregi og helztu forvígismenn iðn- aðarins í landinu. Flutti iðnaðar- málaráðherrann þinginu kveðjur ríkisstjórnar Noregs og árnaði því heilla í störfum sinum. Siðan fluttu formenn norrrænu iðnsambandanna þinginu kveðjur sinna samtaka. Frá Landssambandi iðnaðarmanna talaði Sveinbjörn Jónsson, forstjóri, en liann mætti á þinginu fyrir forseta Landssam- bandsins, Björgvin Frederiksen, sem gat ekki sótt þingið af óviðráðanleg- um orsökum. FYRIKLESTUR UM FRÍVERZLUN. Þegar formennirnir höfðu lokið ávörpum sínum, tók til máls Kaare Petersen, fulltrúi í Verzlunarbank- anum í Osló og hélt ítarlegan fyrir- lestur um fríverzlunarmálin. Gat liann þess m. a., að samkvæmt athugun, sem iðnaðarmálaráðuneyt- ið í Noregi hefði gert, myndi 42% af iðnaði landsins, reiknað eftir framleiðsluverðmæti, ekki verða fyrir neinum áhrifum af fríverzlun, en liins vegar mun fríverzlun hafa óveruleg áhrif á 18%. Nálægt 20% af iðnaðinum mun í raun og veru finna fyrir samkeppninni. Ef fríverzlun Evrópu yrði komið á með skjótum hætti og án fyrir- vara, myndi spá bölsýnismannanna rætast. En engin ástæða er til þess að halda að svo verði, þar sem gert er ráð fyrir því, að tollar verði smám saman lækkaðir á næstu 12—15 árum. Fari svo sem búist er við, mun friverzlun hafa i för með sér út- þenslu. Löndin nninu þarfnast nýrra tækja tii þess að keppa á nýjum Stjórn Norræna iðnsambandsins við setningu þingsins, talið frá vinstri: Sveinbjörn Jónsson (mætti fyrir Björgvin Frederiksen), Lauri Viljanen, Finnlandi, Kaare Aass, Noregi, formaður, Stig Stefanson, Svíþjóð og Poul Persson, Danmörku.

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.