Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1962, Síða 16
Nýjungar
og notkun þeirra
2
Fjölhæí sög fyrir byggingamenn
Á sög þessari er blaðið fest á
hverfikringlu svo að hægt er að snúa
því um i8o° til hvorrar handar og
jafnframt halla því allt að 45°. Sög-
inni má því beita við skurð á öllum
hornum þótt efniviðurinn sé óhreyfð-
ur (sjá mynd).
Sagarbúnaðinum er komið fyrir
undir kringlunni og er undir hlíf,
meðan stilling fer fram. Sagarblað-
inu er lyft áður en vinnsla hefst,
með því að þrýsta á stöng.
Tvær gerðir eru til. Hin eldri er
með 16 þuml. blaði, knúin 3 ha
hreyfli, og hefur hún verið fáanleg
um nokkurt skeið. Nýrri gerðin er
með 12 þuml. blaði og er knúin 1V2
ha hreyfli. Hún er úr þrýstisteyptu
alúmíni og inniheldur ýmsar nýjung-
ar í gerð.
Meðal hjálpartækja, sem fylgt
geta, má nefna hraðvirka einingu
fyrir samfelluskurð (dovetail). Einn-
ig fylgir nákvæmur stillanlegur leið-
arbekkur. Með sérstökum blöðum
hefur sög þessi mikið verið notuð
til steinskurðar.
Ný gerð með 3 ha olíuhreyfli er
nú væntanleg á markaðinn.
1. Handgrip
2. Stútur 8. Gúmhosa
3. Gúmhlíf 9. Kornahólf
4. Þrýstitakki 10. Kornaloki
5. Endurheimt- 11. Loftloki
arpípa 12. Loftleiðsla
6. Skilhólf 13. Rykpoki
7. Rykpoki 14. Grip
13
SECTION A-A
Framleiðandi er Gjerde Saw
Company, Jevnaker, Noregi.
Úr „Norway Exports" nr. z, 1961.
I.T.D. nr. 027J
Hljóðlaus steinsteypuborun með
kornblæstri
Léttmeðfærilegur steinsteypubor
(eining), sem borar djúpar holur
hljóðlaust, notar hraðstreymt loft,
er ber með sér svarfkorn eða agnir
til að skera stein eða steinsteypu.
Borinn er einnig búinn sérstöku end-
urheimtarkrafti, sem gerir unnt að
nota svarfkornin aftur, með því að
skilja þau frá mulningi og svarfi
efnisins, sem borað er í. Við borun-
ina myndast mjög lítil óhreinindi og
hún er laus við hinn háværa skark-
ala og titring, er venjulegir steinbor-
ar og lcfthamrar hafa í för með sér.
Einingin stjórnast af tveimur sam-
tengdum lokum. Þegar loftlokinn er
opnaður, dregur tengingin einnig frá
kornalokanum svo að svarfkornin
streyma út og blandast saman við
loftstrauminn. Blandan streymir eft-
ir gúmhosu inn í miðleiðsluna í bor-
hausnum, en þaðan er henni hleypt
út um stút, sem haldið er þétt að
fletinum, sem borað er í.
Gúmhlíf utan á leiðslunni lokar
af skurðsvæðið, kemur í veg fyrir
burtkast agnanna og veldur því, að
hið innilokaða loft þvingar kornin og
mulninginn niður eftir endurheimt-
arpípunni inn í plastfóðrað skilhólf-
ið. I hólfinu skiljast hinar þyngri
agnir frá, en fíngerður sallinn leggur
leið sína inn í rykpokann.
Tækið er fundið upp hjá Technic-
al Service Department, U.S. Army
Engineer Research and Develop-
ment Laboratories, Fort Belvoir,
Virginia.
Úr „Product Engineering", 16. okt. 1961.
I.T.D. nr. 0067
Lyftisegull með rafgeymi
Þarnast ckki orku frá raf-
hlcðslukerfi svo að rafleiðsl-
ur eru ekki til hindrunar við
notkun hans. Hagkvæmur við
margvísleg lyfti- og flutninga-
störf.
Með tæki þessu má lækka til
muna lyfti- og meðhöndlunarkostn-
að. Tækinu má beita á margvíslegan
hátt ,t. d. á vélaverkstæðum, sam-
setningarverksmiðjum, vörugeymsl-
um o. s. frv. og má festa það við
hreyfanlega krana, gaffalvagna eða
annan lyftiútbúnað.
Lyftisegullinn fær orku frá raf-
geymi og er því algjörlega óháður
rafleiðslukerfum og á engan hátt
hindraður af leiðslum. Það er hægt
að nota hann með þeim vélum, sem
fyrir eru, án nokkurs sérútbúnaðar
eða breytinga til aðlögunar. Við
notkun er hann aðeins hengdur á
krók.
108
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA