Glettingur - 11.05.1932, Blaðsíða 1
(
J
TTINGUR
^ árg.
Siglunrði, Miðvikudaginn 11. maí 1932
4. tbl.
Síðustu afrek
bæjarsíjórnar.
Ár 1932, hinn 9. dag maímán-
aðar var 342. fundur bæjarstjórnar-
innar í Sigló háður í „Kvennfélag-
inu". Á dagskrá var aðallega:
Sveinn, Hafliði og Brynjólfur, Por-
móður og Guðmundur. Allt eru
þetta mætir menn og miklir fyrir
sér, hver uppá sinn máta, og því
ærinn starfi að disputera þeirra
mannkosti og meta þá til verðs.
sérstaklega þegar þar við bætist
smávegis athugasemdir um per-
sónugildi hinna bæjarfulltrúanna
(Porm. og Guðm. voru á dagskrá)
og Ieita uppi snögga bletti á gáfum
þeirra-og tókst þetta altsaman fuið-
anlega vel eftir ástæðum. Gletting-
ur sat fundinn eins og hans er
vandi og hlýddi á spakleg oið full-
trúanna. Stóð Giettingur vel aö
vígi, sérstaklega seintii hluta fundar-
ins. því hann brá sér um stund á
Bíó til að horfa á Siðferðispostul-
ana þar. Var gott ti! samanburðac
þegar hann kom aftur í þíngsalinn,
og hlýddi á hina kjörnu siðíerðis-
postula og fulltrúa bæjarins. En
það er nú svona, að það getur orð-
ið örðugt að dæma og gera upp á
milli hlutverkanna, ¦ þegar horít er
og hlýtt á tvö bíóin sama kvöldið.
Enda er það sannast mála, að vér
treystum oss eigi að gera þar upp
á milli. Pví í báðum stöðunum var
leikið af snilld. Nú viljum vér hér
með nota tækifærið til að „agitera"
fyrir báðum með því, að benda
þeim miklá fjölda, er sat fundinn, á
það, að nauðsynlegt er fyrir þá að
horfa á Siðferðispostulana í Bíó
næst þegar þeir verða sýndir, til
þess að gera samanburð á leik
hvorrá tvéggja, og vita svo hvort
ekki fer fleirum en oss á þá lund,
að illt sé að gera upp*á milli leik-
endanna á báðum stöðum. Og eitt
er víst og sem vér ætlum að slá
föstu, að mórallinn sem báðar sýn-
ingarnar skilja eftir í hugskoiinu,
mun verða nauðalíkur, enda þótt
sitt sé á hvoru sviði.
Fyrst eftir að fundur var settur
gerðist fátt sögulegt, eins og von
y.ar; það var einungis forleikur.
Menn höfðu mætt sæmilega til að
hhsla á snillingana, sem setiust há-
tignarlega í sæti sín, snússuðu sig
eða skrouðu eða tóku það í vörina
uppá1 sænsku, ræsktu si^( eins og
venja er hjá ræöumönnum sem
ætla »é: að brilliera. Pó var sam-
þykkt mílilsvért frumvarp til laga
fyrir gufuskip þess efnis, að þau
mega ekki gera neinn hávaða að
næturlagi meðan skikkanlegir barg-
arar eru í svefhi; Sétstaklega er
þeim stranglega bannað að pípa frá
miðmunda máttmala og allt !il miðs
'morguns. En sennilega mega síldar-
bræðslurnar fiemja sitt vanalega
trio næturlangt. Og ekki minnumst
vér, r,ð minnst væri á í frumvarp-
inu ketti eða ballfólk sem oft er
með gleðskap um nætur kring um
hús og á götum út. Lætur oft litlu
lægra í því og með líkum hætti, en í
gufuskipunum. Er þessi þáttur var
á enda kljáður, hófst hin vanalega
borgarastyrjöld milli stórveldanna,
hafnarsjóðsins og bæjarstjórnarinnar
Fór þá heldur að harðna á daln-
um. Urða deilur strangar milli fó-
getans og Jóns í hafnarnefndinni
um ölvun dómara einhvets, sem
ekki hafði verið alveg ryklaus er
hann kvað upp dóm. Bar Jón fyrir
s\g Tíminn þessu til sönnunar, en
fógeti b:ir af sinni stétt og fórst það
riddaralega.
Er þessum skylmingum hafði
farið fram um hríð, datt einhverj-
um fulltrúa í hug, að ræðumenn
mundu vera komnir út fyrir mál-
efnið, en þá voru þeir til umræðu
Hafiiði, Brynjólfur og Sveinn. Var
nú rætt um, að þeim er eventuelt
hlyti hnossið að verða hafnarvörð-
ur til aðstoðar, væri skylt að vera
bindisma'íur — á vín — skildist
oss. Ekki var Jón í hafnarnefndinni
ánægður með þetta eins og ekki var
von, og kom því með tillögu þess
efnis, að viðkomandi skyldi vera
reglumaður í stað þess að vera
bindismaður. Er með því að full-
trúunum hefir sennilega þótt það
ofraun einum manni að vera hvort
tveggja, var sú tillaga drepin, er