Vikan - 05.03.1953, Blaðsíða 14
Andlát Edgware lávarðar
Framháld af bls. 6.
hann væri drukknari en vera bar og það kom í
ljós að ég hafði rétt fyrir mér, þegar hann bætti
á sig kampavini. Hann virtist ákaflega hryggur
í bragði. Pyrri hluta máltiðarinnar mælti hann
ekki orð af vörum. En þegar fór að líða á kvöldið
gerði hann mig að trúnaðarmanni sínum, auð-
sjáanlega í þeirri trú að ég væri gamall vinur
hans.
— Hvað ég vildi sagt hafa, kæri gamli vin-
ur . . . er ekki . . . Orðin runnu dálítið saman.
— Ef maður rekst á réttu stúlkuna — ég á við
að maður heldur áfram að eyðileggja allt fyrir
sér. Að vísu hefi ég aldrei minnzt á það við hana
— hún er ekki þannig stúlka, þú skilur —- pabb-
inn er púritani . . . Fjandinn hirði það allt
saman — hún er góð og hreinskilin. — Ég varð
að fá lán til að borga klæðskeranum mínum.
Ákaflega bóngóður maður, klæðskerinn minn.
Ég er búinn að skulda honum í mörg ár. Það
tengir menn saman. Ekkert jafnast á við vin-
áttuna, þú og ég . . . Hver ertu annars?
— Ég heiti Hastings.
— Ég hefði svarið fyrir að þú værir Spenser
Jones. Við gengum í skóla saman. Hann hristi
höfuðið dapur á svipinn og drakk dálítið meira.
— Ég er þó ekki bölvaður svertingi, sagði hann
og við það hresstist hann svo mikið að hann
bætti við glaðlega:
— Líttu á björtu hliðina, vinur minn. Það geri
ég alltaf. Einhvern tíma — þegar ég er orðinn
sjötugur eða meira — verð ég ríkur. Þegar frændi
minn deyr get ég borgað klæðskeranum.
Hann brosti ánægjulega við tilhugsunina. Hann
var kringluleitur og svarta yfirskeggið átti illa
við andlitið á honum.
Ég sá að Carlotta hafði gætur á honum. Hún
hafði einmitt litið til okkar nokkrum sinnum,
þegar hún stóð upp.
— Þér voruð ákaflega elskulegar að koma
hingað upp, sagði Jane. — Mér finnst svo gam-
an að framkvæma hugmyndir mínar um leið og
mér detta þær í hug. Finnst yður það ekki?
— Nei, svaraði Carlotta. — Ég legg allt niður
fyrir mér, áður en ég framkvæmi það. Það spar-
ar manni — áhyggjur. Framkoma hennar var
dálítið þvinguð.
— Jæja, árangurinn réttlætir það, sagði Jane
hlægjandi. — Það er langt síðan ég hefi skemmt
mér eins vel og meðan ég horfði á sýninguna
ýðar.
— Þakka yður fyrir, sagði Carlotta hlýlega.
-—• Mér þykir gaman að heyra það. Ég þarfnast
uppörvunar. Það gera allir.
— Carlotta, sagði ungi maðurinn með yfir-
skeggið. — Kveddu Jane frænku og komdu svo.
Það var næstum kraftaverk hvernig honum
tókst að ganga beint út um dyrnar. Carlotta fór
á eftir honum.
— Hver var maðurinn sem greip frammi og
kallaði mig Jane frænku? spurði Jane. — Ég
hafði ekki veitt honum athygli áður.
— Þú skalt ekki taka mark á honum, elskan,
sagði frú Widburn. — Hann var ákaflega efni-
legur i skóla, þó maður eigi erfitt með að trúa
því núna. Nú verðum við að fara.
Þau fóru og Bryan Martin með þeim.
— Jæja, M. Poirot?
Hann brosti til hennar: — Eh bien, Lady
Edgware ?
— 1 guðs bænum kallið mig ekki þessu nafni.
Lofið mér að gleyma þvi, ef þér eruð ekki sá
mest harðbrjósta maður sem til er í Evrópu.
— Néi, nei, ég er ekki harðbrjósta.
Mér datt i hug að Poirot hefði drukkið of
mikið kampavín.
— Ætlið þér að þá að fara til mannsins míns ?
Og fá hann til að samþykkja óskir mínar?
— Ég skal fara og tala við hann, lofaði Poirot
með varkárni.
— Og ef hann neitar því — og það gerir hann
áreiðanlega — viljið þér þá finna eitthvert gott
ráð ? Það er sagt að þér séuð gáfaðasti maður-
inn í Englandi, M. Poirot.
661.
KROSSGÁTA
VIKUNNAR
Lárétt skýring:
1 listastefna — 7 við-
fangsefni dómara — 14
borða — 15 venju — 17
kvenmannsnafn — 18
sögn -— 20 hengi — 22
æðir — 23 skart — 25
hljóma — 26 samteng-
ing — 27 forsetning —
28 framkoma — 30
reika —• 32 fangamark
félags — 33 enskur titill
-—■ 35 himinhvolf — 36
bur —; 37 húsdýrið —
39 flatarmál —- 40 næði
—■ 42 holdug — 43 ein-
kenni — 45 í hús — 46
ávítaði — 48 togaði —
50 tveir samstæðir —— 51
öndum — 52 greinir —
54 keyr — 55 ekki beint
— 56 tónn — 58 enginn
— 60 nema — 62 berja
— 64 mannsnafn — 65
græðgi -— 67 bíta ■—• 69
ættarnafn -— 70 aurasál
— 71 opið.
Lóðrétt skýring:
1 flýta sér — 2 erfingi — 3 kemiskt efni, þf.
— 4 tveir eins -—- 5 munur — 6 samkomuhús
— 8 forfaðir — 9 = 32 lárétt — 10 óhreina -—
11 fornafn -— 12 ílát — 13 tötrana — 16 vinnu-
félagar — 19 vörumerki — 21 hljóði — 24 hindruð
-— 26 matur —• 29 ári — 31 hryggði — 32 hljóð
— 34 illgjörn -—36 ógoldið fé — 38 biblíunafn
— 39 samtenging — 40 bráðum — 41 ástundunar-
samur— 42 tala — 44 landshlutann — 46 þrir
eins — 47 líkamshluti — 49 skakkan — 51 titraði
— 53 neitun — 55 björt — 57 risti — 59 afleiðslu-
og beygingarending — 61 hraði -— 62 gap •— 63
refsa — 66 frumefnistákn ■—- 68 tvíhljóði.
Lausn á 660. krossgátu Vikunnar.
Lárétt: 1 óns — 4 kónguló — 10 kví — 13 rekk
— 15 fóarn — 16 árin — 17 ótæru — 19 alt —
20 friða — 21 trana — 23 kunna — 25 andkanna-
leg -—• 29 rá — 31 ii — 32 una — 33 L. S. ■— 34
óm ■— 35 æla — 37 rek —39 mas — 41 óma —
42 skrafs — 43 starir — 44 aum — 45 esa •— 47
ske — 48 ala — 49 rr — 50 er — 51 mók —• 53 rs
— 55 dg. — 56 silkisokkar — 60 þokir — 61 lum-
ar — 63 vafin — 64 tif ■— 66 rakin — 68 ærin
— 69 manar •— 71 nagi —• 72 lin •— 73 klungur
— 74 rat.
Lóðrétt: 1 óró — 2 nett — 3 skæra — 5 óf —
6 nóa — 7 ^galinn — 8 urt — 9 ln — 10 kring
— 11 viða — 12 Ina — 14 krani — 16 Árnes —
18 undirferlin — 20 fullsterkur — 22 ak — 23
K. A. — 24 fræsari — 26 auk — 27 nam — 28
smaragð -— 30 álkur — 34 ómild — 36 arm —
38 ess — 40 ask — 41 óra — 46 ami — 47 sko
— 50 eikin —• 52 ósvinn — 54 sama — 56 sofin
— 57 kr. — 58 kl. — 59 rakar — 60 þari — 62
Riga — 63 væl — 64 tau — 65 fag — 67 nit —
69 ml — 70 ru.
—' Þegar þér talið um að ég sé harðbrjósta
miðið þér við alla Evrópu, en þegar um gáfur
er að ræða nefnið þér aðeins England.
—. Ef þér fáið þessu framgengt, skal ég miða
við allan heiminn.
Poirot veifaði hendinni: — Madame, ég lofa
engu. Af áhuga fyrri sálfræðinni skal ég reyna
að fá viðtal við manninn yðar.
— Sálgreinið hann eins mikið og yður lystir.
Kannski það verði honum til góðs. En þér verðið
að fá þessu framgengt — mín vegna. Ég verð
að fá ástaræfintýrið mitt, Poirot. Hugsið yður
hvílíka athygli það vekur, bætti hún við dreym-
andi.
Svör við „Veiztu —?“ á bls. 5:.
1. Láttu úrið liggja lágrétt og eldspýtu standa
á glerbrúninni við endann á vísinum. Snúðu
svo úrinu þangað til skugginn af eldspýtunni
fellur á vísirinn. Þá er suður nákvæmlega
miðja vegu milli tölunnar 12 og púntsins
sem eldspýtan stendur á.
2. Emily Bronte.
3. Haraldur blátönn.
4. Komið af flaumur = gleði.
5. Riga.
6. 24 eggjum. Ef hálf önnur hæna verpir hálfu
öðru eggi á hálfum öðrum degi, verpa þrjár
hænur þremur eggjum á sama tíma. Þess-
vegna verpa sex hænur sex eggjum á hálfum
öðrum degi, 12 eggjum á þrem dögum og
24 eggjum á sex dögum.
7. Þeir voru allir mjög auðugir.
8. Helgi Sigurðsson prestur á Setbergi og Mel-
um (1815—1886),
Sigurður Guðmundsson (1833—1874),
Þórarinn B. Þorláksson (1867—1924).
9. Karat er upprunalega nafnið á hinum þurrk-
aða kjarna Jóhannesarbrauðsins, sem menn
notuðu í Suður-Afríku til að vega með gull
og gimsteina.
10. 1 Kyrrahafinu, 695 enskar mílur vestur af
Ecuador.
BRÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og heimilisfangi
kostar 5 krónur.
VIGDlS STEFÁN SDÓTTIR (við pilta 20—30
ára), FRlÐÁ ISAKSDÓTTIR (við pilta 17—21
árs), SIGURÐUR ISAKSSON (við stúlkur 10—
21 árs) og GUÐJÓN E. EIRlKSSON (við stúlk-
ur 20—30 ára) öll til heimilis á Ási, Ásahreppi,
Rang. — SÓLEY HALLDÓRSDÓTTIR (við pilt
eða stúlku 20—30 ára) Dunhaga, Hörgárdal,
Eyjafjarðarsýslu. — ÁSTÁ SVEINBJARNÁR-
DÓTTIR (við pilta eða stúlkur 18—28 ára) Hús-
mæðraskólanum Laugalandi, Eyjafirði. — SIG-
RUN STEFÁNSDÓTTIR (við pilta 22—25 ára)
Arnardrangi, Landbroti, V.-Skapt. — SIGUR-
LAUG ÞORLEIFSDÓTTIR (við pilta 14—16 ára)
Þykkvabæ, Landbroti, V.-Skapt. — RADDY
ÓSKARS (15—19 ára) og UNNUR SIGURÐAR
(14—18 ára), báðar í Þykkvabæ, Rang. —
BÁRA EGILSDÓTTIR, HULDA KRISTJÁNSr
DÓTTIR, MARlÁ HALLGRlMSDÓTTIR, SIG-
RlÐUR ELlSDÓTTIR og GUÐBJÖRG STEF-
ÁNSDÓTTIR (við pilta 16—18 ára), GUÐRlÐ-
UR HAFLIÐADÓTTIR, ÁSTA JÓNSDÓTTIR og
GUÐRlÐUR AUSTMANN (við pilta 17—19 ára)
allar á Héraðsskólanum Reykjanesi, N.-lsafjarð-
arsýslu. — ANDRÉS SIGURÐSSON, GUÐ-
MUNDUR PÉTURSSON, HARALDUR VAL-
STEINSSON og MAGNÚS ÞORSTEINSSON
(við stúlkur 17—25 ára) allir á m/b Ásdísi G.K.
22, Hafnarfirði. — KRISTJÁN PÉTURSSON
(við stúlkur 17—25 ára) m/b Hafdisi G.K. 20
og JENS PÉTURSSON (við stúlkur 17—25 ára)
m/b Hafbjörg G.K. 7, Hafnarfirði. — GUÐRÚN
ÞORSTEINSDÓTTIR (Hafnarsbroti 41) og INGA
HAFBERG Ránargötu 7, (við stúlkur eða pilta
17—21 árs) báðar á Flateyri.
14