Vikan - 08.10.1953, Síða 2
í FRÁSÖGUR FÆRAIMDI
I NÆSTSlÐASTA tölublaði var á þessum stað farið nokkrum
orðum um kvennamál soldánsins í Marokkó, þess sem Frakkar settu
af fyrir óhlýðni sakir og sendu i útlegð til Korsíku. I>ið munið ef-
laust hvað maðurinn hét: Sidi Mohammed Ben Yusef.
Eins og lesendur kann lika að reka minni til, lét Yusef það
verða sitt fyrsta verk á Korsíku að framkvæma vörutalningu í
kvennabúri sínu, við hvað hann
uppgötvaði sér til skiljanlegrar
skelfingar, að hann var bara með
fjórar konur meðferðis.
1 beinu framhaldi af þessu gerði
Yusef þá kröfu til frönsku stjórn-
arvaldanna, að þau sendu honum
með fyrstu ferð að minnsta kosti
30 konur, og einmitt þessa réttlátu
kröfu gerðu þessir dálkar að um-
talsefni í næstsíðustu VIKU.
N t) er það okkur þessvegna
mikið gleðiefni að geta upplýst, að
mjög hefur rofað til í ástariífi upp-
gjafasoidánsins. Frakkar brugðu
semsé við og afgreiddu pöntun hans
í snatri: þéir pökkuðu umbeðnum
kvennabúrskonum inn í flugvél í
Marokkó og sendu þær express til
Korsíku.
I>eir voru Iíka svo nærgætnir, að taka mynd af sendingunni um leið
og hún steig upp í flugvélina í Rabat, og þó við höfum ekki borið
þá mynd undir neina fegurðarsérfræðinga, þá virðist einsætt, að
Yusef vilji hafa sínar konur í góðum holdum. Um andlitsfegurð meyj-
anna er hinsvegar ekkert hægt að segja; þær eru með andlitsblæjur
. að hætti kvenna þar um slóðir.
Ég vil segja frá því til gamans í þessu sambandi, að um svip-
að leyti og verið var að senda kvennabúr uppgjafasoldánsins til
Korsíku, reyndi málarameistari í Babat að keyra yfir nýja soldán-
inn, herramann að nafni Sidi Mohammed Moulay Ben Arafa. Úg
birti hér mynd af honiun. Arafa er tuttugu árum eldri en fyrir-
rennarinn og kvað hafa miklu meiri áhuga á sterku kaffi heldur en
kvenfólki.
Mér var svona að detta í hug, að kannski hafi málarameist-
aranum fundizt þetta slæm býtti.
Eg var svo óvarkár, að skrifa í síðasta blað nokltur orð um
leikritið Einkalif, einkum og sér í lagi í tilefni af slagsmálunum
í öðrum þætti, sem mér fundust ákaflega góð. Nú hef ég hinsvegar
verið að lesa leikdóma sérfræðinga dagblaðanna, og þrír þeirra
minnast eklíi einu orði á slaginn og einn segir, að hann hafi verið
afleitur.
Þetta mun auðvitað kenna mér, að vera ekki að sletta mér fram
í það, sem ég hef ekkert vit á.
En þó það hljóti annars að vera afskaplega mikill \andi að gagn-
rýna leiklist, þá hlýtur samt að vera ennþá meiri vandi að fylgja
leiðbeiningum gagnrýnendanna. Ef þið haldið, að þetta sé eintómt
slúður, þá þurfið þið ekki annað en slá upp í Tímanum 26. septem-
ber og Morgunblaðinu 30. september, þar sem birtir eru dómar um
Einkalif.
FiFXIR það sem ég var búinn að segja inn slaginn, taldi ég mér
skylt að lesa þessa dóma, og þegar ég var búinn að þvi, þá vor-
kenndi ég engum eins mikið eins og leikstjóranum, honum Gunnari
Hansen.
■ 1 greininni í Tímanum, sem Halldór Forsteinsson skrifaði, segir
meðal annars: „Leikaraskapur (play-acting) og trúðkennd víðvik
spilla heildarsvip sýningarinnar, og mun leikstjórinn eiga mesta sök
á þvi. Þótt Gunnari Hansen séu mislagðar hendur, eins og mörgum
öðrum, þá er það samt stórfurðulegt og raunalegt í senn, hversu
báglega þessi sýning hefur tekizt fyrir honiun.“
1 greininni i Morgunblaðinu, sem Sigurður Grímsson skrifaði, segir
hinsvegar: „Gunnar R. Hansen hefur sett leikinn á svið og annazt
leikstjómina af sinni aikunnu smekkvísi og öruggum skilningi á
anda og efni leiksins."
Ég veit bara ekki, hvort Iiann Gunnar Hansen veit sitt rjúkandi ráð.
SIMI DG
HJÚNABÖND
í REYKJAVlK kváðu nokkrar þús-
undir manna bíða eftir að fá sima.
Forráðamenn sínums hafa verið allir af
vilja gerðir, en þá hefur vantað pen-
inga og leyfi til þess að stækka síma-
kerfið. En hvað Iiggur á? Bæjarsíminn
í Tokyo (segir i frétt í Time) tilkynnti fyrir skemmstu, að nú mimdi
hann byrja að afgreiða símaumsóknir allt frá 1906.
Ennfremur kynni einliver að hafa gaman af að heyra, að brezka
blaðið Observer hafði nýlega eftirfarandi eftir kollega sinum í Finn-
landi: „Hjónaböndum fer sífellt fjölgandi. Skýrslur sýna, að 64,464
manns giftu sig í Finnlandi 1952. Þar af vom 32,230 konur."
LoKS finnst mér það í frásögur færandi, að Cliristian Jörgen-
sen, bandariski uppgjafahermaðurinn, sem lét danska lækna breyta
sér i „ltonu“ (og VIKAN birti mynd af í sumar), þénar nú þús-
undir dollara á þvi að sýna sig í næturklúbbum. Ágóðamun kvað
Jörgensen mestmegnis verja í kjóla og skartgripi.
Fólkið, sem borgar peninga fyrir að fá að skoða manngarminn,
virðist eklti kæra sig hót um það, þótt kunnir læknar liafi lýst
yfir, að það sé alls ekki hægt að breyta ósviknum karlmanni í konu.
— G.J.Á.
PÓSTURINIM
Það litur út fyrir að Róbert Arn-
finnsson leikari hafi unnið hugi og
hjörtu ungu stúlknanna úti á landi í
sumar, þegar hann lék Topaz, því
síðan hafa okkur borizt nokkur bréf,
þar sem beðið er um mynd af hon-
um og allskonar upplýsingar, m. a.
hvort hann sé giftur, bróðir Jóns
Arnfinnssonar o. s. frv. Nú hefur
Róbert sjálfur gefið okkur greið svör
við öllu því, sem spurt hefur verið
um.
Róbert Arnfinnsson er ættaður frá
Eskifirði, en fæddur í Leipzig í
Þýzkalandi 1923 og þar var hann
fyrstu árin. Hann á engin systkini,
en giftur er hann Stellu Guðmunds-
dóttur frá Vestmannaeyjum og eiga
þau tvær dætur.
Róbert stundaði leiklistarnám hjá.
Lárusi Pálssyni og síðan í Kaup-
mannahöfn. 1945 lék hann fyrsta
hlutverkið sitt í Kaupmanninum L
Feneyjum. Hann hefur verið fastráð-
inn leikari við Þjóðleikhúsið frá opn-
un þess og leikið mörg hlutverk bæðl
þar og í Iðnó. Síðustu hlutverkin.
hans, Topaz og Victor Prynne i
Einkalíf eru einhver þau allra beztu,
sem sést hafa hér á leiksviði. Topaz
hefur hann leikið hvorki meira né
minna en 75 sinnum á þessu ári, en
alls hefur hann haft 166 sýningar-
kvöld á leikárinu 1953.
FORSÍÐUMYNDIN
er af Helga Finnbogasyni
bónda á Reykjarhvoli, Mosfells-
sveit. Ljósmyndari: Gunnar
Rúnar.
Forsíðumynd síðasta blaðs
tók Beata Bergström, Stokk-
hólmi.
FM- MOTOR
Afgreiðum með stuttum fyrirvara allar stærðir af þessum vinsæln
norsku vélum:
3 _ 4 — 6/7 — 8/12 _ 14/18 hestöfl
F M-vélin er með tveggja ára ábyrgð, og mjög ódýr samanborið við.
flestar aðrar smábátavélar. tJtbúnaður:
SKIPTISKRÚFA,
GANGSKIPTI,
VENDITÆKI,
NÚNINGSTENGSLI,
SPÚLDÆLA,
RAFALL.
Leitið tilboða í FM:
F. MATTHIASSON, Vesímannaeyjum
Otgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmað ur: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.
2