Vikan


Vikan - 14.01.1954, Síða 4

Vikan - 14.01.1954, Síða 4
Hér er umrœðuefni handa saumaklúbbnum ÍM“ar ---------------------—-------------------------------------Ef ég skyldi deyja, vil ég hinsvegar, að maðurinn minn haldi áfram að vera hamingju- _ samur. Kœrastinn hans Stjána Send úr landi VÉmm. mmmm ÞESSI litla telpa er aðeins sjö ára, en þó er hún í miklum vanda. Hún er gri.sk. Fyrir þrem- ur árum fékk hún dvalarleyfi til bráðabirgða í Bandaríkjunum, vegna veikinda, og settist að hjá frænku sinni í New York, sem tók henni tveim höndum. Hún vildi láta Maríu litlu dvelja áfram hjá sér, og María, sem nú er batnað, vill ólm vera hjá henni. En það lítur ekki vel út. Dvalar- leyfi litlu stúlkunnar er útrunnið, og þegar síðast fréttist, voru bandarísku stjórnarvöldin staðráð- in í að flytja hana úr landi. HÉR er kindug „kerling“. Það er hinn makalausi Kristján Jörg- ensen (til vinstri), eða Kristín, eins og hann nú kallar sig. Eins og menn muna, lét Stjáni, sem er Bandaríkjamaður, gera á sér einhverskonar uppskurð i Danmörku, og hefur haldið því fram síðan, að hann væri orðinn ósvikinn kvenmaður. Hinsvegar segja læknar, að það sé ekki hægt að breyta karlmanni í kvenmann. Stjáni lætur það samt ekkert á sig fá, klæðist kvenmannsfötum, málar sig og rakar inn peningum með því að sýna sig í næturklúbbum vestra. Nýjasta uppátæki þessa þrautleiðinlega — og ógeðslega — manns er að fá sér einskonar kærasta, og er hann hér á myndinni til hægri. Sá fugl er listmálari og búinn að gefa Stjána — af- sakið, Stínu — forláta demantshring! ■ ■ ■ Eftir Eileen Morris EF ég skyldi deyja á undan manninum mínum, þá vildi ég helzt, að hann gifti sig aftur. Margir kunningja minna eru þó á allt öðru máli. Ein vin- kona mín orðaði það svona: ,,Ég má ekki til þess hugsa, að cinhver ókunnug kona fari að stjórna mínu húsi, taki við öllum þessum fallegu hlutum, sem ég hef eignast um dagana, sofi í mínu rúmi. Tilhugsunin ein gerir mig bálreiða.11 Flestar konur óska þess í hjarta sínu, að þeirra ást ein sé nóg. Þetta er ósanngjarnt. Ég held því fram, að kominn sé tími til að losna að fullu og öllu við andstöðuna gegn því, að eiginmenn giftist aftur. Ég er ekki að halda því fram, að ekkjumaðurinn eigi að grípa fyrsta kvenmanninn, sem birt- ist á sjónarsviðinu. En ég er á móti þeim annarlega hugsunar- hætti, sem byggist á því, að ekkjumaður megi ekki giftast aftur „af tillitsemi við“ hina látnu konu sína. Nýlega bar þetta á góma í húsi, þar sem ég var stödd. „Það kæmi auðvitað aldrei til greina með manninn minn,“ sagði ein frúin. „John er orð- inn 53 ára. Mér kæmi það mjög á óvart, ef hann færi að gera sig að athlægi.“ Horfin tíð En eigum við ekki að horf- ast 'í augu við staðreyndirnar ? Sá tími er liðinn, sem eldra fólkinu var ekki ætlað veg- legra hlutverk en að húka úti í horni. Þó að John sé orðinn 53 ára, þá er síður en svo kom- inn tími til að hann setjist í helgan stein. Framundan eru mörg starfsár, margskonar nyt- samar framkvæmdir, margar gleðistundir. Hversvegna skyldi hann þá ekki gjaman vilja halda áfram að njóta ástar og félagsskapar góðrar eigin- konu? Sú kona, sem hyggst neita honum um þetta, veit ekki, hvað ást hins þrt)skaða manns er. Hún ruglar saman ástinni og eignaréttinum. Eða er það ekki einmitt hin sanna ást, sem setur hamingju hins öllu ofar? Við skulum hætta að vera barnaleg, og reyna að líta á lilutina í sínu rétta ljósi. Það er bæði eðlilegt og heilbrigt að lifa í hjónabandi. Það skiptir engu máli, hve vinsæll ekkju- maðurinn er; sú staðreynd, að hann er einn, útilokar hann að nokkru leyti frá eðlilegu félags- lífi. Hann verður „aukagestur- inn“ — „staki maðurinn" í samkvæminu. Sumir kynnu að segja, að þetta skipti ekki miklu máli. En sannleikurinn er sá, að einmitt þetta gerir hann ennþá meira einmana en ella; Sá maður, sem giftist aftur, er í rauninni að sýna fyrri konu sinni hinn mesta sóma. Vilji hann giftast öðru sinni, hlýtur hann að hafa kunnað vel við sig í hjónabandinu. Hin and- stæðan er svo ekkjumaðurinn, sem aldrei þreytist á því að lýsa yfir, að aldrei framar muni hann skipta sér af kvenfólki. Maður getur naumast annað en velt því fyrir sér, hvernig hjóna- band hans hafi í raun og veru verið. Ég vildi að maðurinn minn giftist aftur, svo að hann hefði að nýju eitthvað takmark í líf- inu. Ég vildi að hann hefði einhvern sér við hlið, sem hann gæti tjáð drauma sína og sorgir. Góða konu, sem gæti búið til uppáhalds réttina hans og hjálpað honum að leita að bíllyklunum, sem hann sífellt er að týna. Ef við eigum eftir að eign- ast börn, þá er ennþá meiri ástæða til að hann giftist aft- ur. Barn þarfnast góðs heim- ilis og föðurs og móður, sem þykir vænt um það og um hvort annað. (Þýtt og endursagt) 4

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.