Vikan


Vikan - 14.01.1954, Page 6

Vikan - 14.01.1954, Page 6
VÍSINDI OG GRIN Vísindamenn geta verið gamansamir, segir E. Schelde Möller og gefur hér nokkur dsmi. Það er til saga um amerískan lífeðlisfræðing, sem boi-ðaði á matsöluhúsi, þar sem mat- urinn var mjög vondur. Matseljan var ákveðir. í fasi og vísaði öllum kvörtunum á bug með fyrirlitningarsvip — hún kvað matinn alltaf nýjan og góðan og ef gestirnir leifðu, voru þeir mestu hrokagikkir. Mánudag nokkurn kom prófessorinn með saltbauk að borðinu og saltaði matinn á fatinu. Þessu hélt' hann áfram alla vikuna. Matseljan gat auðvitað ekki haft neitt á móti þvi — allra síst næsta laugardag, þegar hún bar ólystuga kássu í brúnni sósu fyrir, gestina. Þá dró lif- eðlisfræðingurinn lítið tæki upp úr vasa sínum og bar að fatinu. Undir eins heyrðust úr því undarlegir brestir. Matfélagar hans störðu undrandi á þessar aðfarir, en lifeðlisfræðingurinn ýtti með viðbjóði frá sér kássunni. Hann sagði, að saltið sem hann hefði stráð yfir matinn alla vikuna, hefði veriö geislandi og að tækið mældi geislavirkni. Vísirinn á því fór alltaf að sveiflast, þegar það kom nálægt þessari dularfullu kássu og sannaði þar með, að hún var bú- in til úr matarafgöngum, sem höfðu safnast saman alla vikuna. Það getur verið að sagan sé ekki sönn, en hún gæti verið það. Og hún sýnir okkur, að nútíma vísindamenn eru ekki gersneyddir allri kímni, enda hafa þeir flestir lagt skeggið og hroka háskólaborgarans á hilluna. Það er ekki gott að segja hvaða vísindamenn gera mest að gamni sínu, en dýrafræðing- arnir hljóta að standa framarlega í þessum efnum. Fram að þessu hefur það verið óleyst gáta, hvernig lífið hefur kviknað á jörðinni. — Líf kviknar af lífi, það vitum við, en við vit- um ekki af hverju lífið kviknar, sagði frægur prófessor. Það hefur verið talið öruggt merki um að eitthvað sé lifandi, ef það tímgast. En sviss- neski vísindamaðurinn Szent-Gyögyi, sem fékk Nobelsverðlaunin 1937 og fann P-vítamínið, segir, að þá sé ekki hægt að kalla eina kanínu lifandi, því það þarf tvær til að búa til kan- ínuunga. — Ein kanína er þá alls engin kanína, segir hann, — en tvær kanínur eru aftur á móti kanína. Fyrir nokkrum árum flutti prófessor við Harvardháskóla í Bandaríkjunum skyndilega til Burma. Hann var ástfanginn af leikkonunni Normu Talmadge og hafði flúið land af þeim ástæðum. En hinn vonsvikni biðill náði sér niðri á stúlkunni. Þegar hann fann nýja tegund af „fljúgandi sporðdrekum“, skýrði hann þá Scorpio normatalmagensis. Og þetta er ekkert einsdæmi. Englendir.gar kalla afríkanska antiloputegund ,,Frú Gray“ í höfuoið á konu dýrafræðings nokkurs. Og til heiðurs þýzka''landstjóranum í Vestur-Afríku, skýrðu Þjóðverjar einu sinni zebradýr i höfuðið á konunni hans og kölluðu það „Frau Gen- eralgouverneur von Hartman Ber-Zebra.“ Margar skrýtnar skepnur hafa lifað á jörðinni. Ein tegundin af hinum útdauðu risa- eðlum nafði t. d. tvo heila, annan í höfðinu en hinn í halanum. En þrátt fyrir það hefur þetta risastóra dýr ekki staðizt próf þróunarinnar og önnur vera, maðurinn, sem aðeins hafði einn heila, er nú herra jarðarinnar. Frægur stærðfræðingur og eðlisfræðingur segir, að maðurinn standi öðrum dýrum framar, af því hann kunni að tala. Danskur ,,heimspekingur“ komst að sömu niðurstöðu og sagði: — Apinn er að því leyti ólíkur manninúm, að hann kann ekki að tala .Ef hann gæti sagt: Ég er api! — þá væri hann maður. En snúum okkur að fleiri vísindamönnum. Þegar fyrst var farið að senda símskeyti 'milli landa, átti hinn gamansami símstjöri, Peter Faber, að útskýra fyrir Karolínu prinsessu, dótt- ur Friðriks 6., hvernig það færi fram. Faber útskýrði málið í smáatriðum og prinsessan hlustaði með vaxandi athygli og virtist fylgjast með. Þegar hann hafði lokið máli sínu, tók hún brosandi undir handlegginn á honum og sagði: -— Og nú langar mig aðeins til að vita, hvers vegna símskeytið blotnar ekki, þegar það fer í gegnum sjóinn. Þýzki atomfræðingurinn Lenard hélt því fram, að Einstein hefði stolið öllum sínum upp- götvunum frá Þjóðverja að nafni Hanenöhr. Það er þessvegna gaman að heyra, hvað Ein- stein segir sjálfur um afstæðiskenningu sína: — Ef kenning mín reynist rétt, munu Þjóð- verjar segja að ég sé Þjóðverji og Frakkar. að ég sé heimsborgari. En ef afstæðiskenningin reynist röng, segja Frakkar að ég sé Þjóðverji og Þjóðverjar að ég sé Gyöingur. en nú vissi hún, að hann var það ekki. Henni fannst hún vera ein og yfirgefin. Lestin kom til New York klukkan sjö og tveim tímum seinna hringdi Lydia til Eleanoru og þær ákváðu, að aka saman heim til hennar út á Long Island og borða saman. Það var milt veður og Lydia ók hægt. Þannig sýndi hún Eleanoru, að henni þætti vænt um að hitta hana. Stúlkurnar röbbuðu saman eins og skólastelp- ur. Lydia sagði Eleanoru frá ferðinni til Wash- ington og hve vel fylkisstjórinn hefði varið mál sitt. Lengi vel minntist hún þó ekki á annað í fari hans. En yfir matnum úthellti hún hjarta sínu og sagði henni alla söguna. Hún var svo áköf að trúa einhverjum fyrir þessari nýju upp- götvun sinni, að hún veitti því varla athygli, þegar Eleanor var kölluð í símann, og hélt áfram sögunni, þegar hún kom aftur. Eleanor var góður hlustandi. Hún hvorki sagði hvað hún hefði gert, ef eins hefði staðið á fyrir henni, né minntist svipaös atviks, sem hafði kom- ið fyrir hana sjálfa. Hún hlustaði, en sagði ekk- ert. Þegar Lydia þagnaði, sagði hún aðeins: — Ég kenni í brjósti um Albee. — Trúirðu því þá ekki að hann sé svona? -—• Jú, ég veit að hann er alveg eins og þú lýsir honum. En ég kenni í brjósti um fólk með galla, sem gera það varnalaust og hlægilegt. Albee er mikill hæfileikamaður. En þér finnst hann einskis virði, af því hann er ekki fullkom- inn. — Ég krefst þess ekki, að karlmenn séu full- komnir, svaraði Lydia. — En þeir eru heppnir, að geta elskað, án þess að bera nokkra virðingu fyrir stúlkunni, en stúlka veður að halda, að maður- inn, sem hún elskar, hafi einhverja yfirburði, jafnvel þó það sé aðeins slægðin. Ég vil að minnsta kosti ekki að gallarnir geri menn lítil- fjörlega. Þeir verða að vera menn. — Það virðist samt ekki alltaf falla þér í geð. — Ertu að hugsa um Ilseboro. En mér geðjað- ist að Ilseboro. — Nei, ég var að hugsa um Dan. Lydia rak upp stór augu, eins og hún hefði enga hugmynd um hver Dan væri. — Dan? — Dan O’Bannon. Þér geðjast einmitt ekki að honum, vegna þess að hann er sterkur og ákveð- inn, þó þú segist dást að þeim eiginleikum. — Það sem mér mislíkar er, að þú skulir taka hann svona alvarlega, og gera þig hlægilega með því. — Mér finnst ég ekki gera mig hlægilega, þakka þér fyrir. — Ég átti ekki við, að þú tapaðir virðingu þinni, heldur að það væri hlægilegt, að hafa slík- ar mætur á ungum írskum sveitalögfræðingi. Ég vil helzt ekki nefna nöfn ykkar í sömu setning- unni. Eleanor rétti úr sér. — Ég á von á honum eftir nokkrar mínútur. — Hingað ? Þá fer ég. — Þú ættir ekki að gera það. Ef þú hittir hann oftar, mundirðu skipta um skoðun. — Ef ég hitti hann oftar, móðga ég hann. Viltu senda eftir bílnum mínum. Eleanor, ég veit að ég hef rétt fyrir mér í þetta sinn og einhvern tíma viðurkennirðu það. — Eða þú fellst á mína skoðun. Nokkrum mínútum seinna var Lydia á leið heim. Henni fannst allt vera sér andstætt i dag, en nú var tækifæri til að létta skapið. Það var engin umferð á vegunum um þetta leyti og hún steig fastar á benzínið. Hún var að hugsa um það, að ef Eleanor giftist O’Bannon, þá mundi hún missa hana. Það vildi hún koma í veg fyrir. Hún hefði getað breytt áliti flestra stúlkna með því að gera manninn hlægilegan í þeirra aug- um, en Eleanor var ákveðin. Hún fór að velta því fyrir sér hvort nokkrar líkur væru til þess, að henni gengi betur, eftir að þau væru gift. Hún hafði aldrei hatað nokkurn mann eins mikið og hún hataði O’Bannon. Hún naut þess að vissu leyti að hata hann. Henni létti í skapi, þegar bíllinn þaut áfram eftir veginum, sem var nýr og rennisléttur og hafði þolað vetrarfrostin vel. Nú var farið að þiðna og yfirborð hans var rakt, svo bíllinn rann til og varð eins og lifandi vera. Það jók ánægju Lydiu og í hvert sinn, sem bíll varð á vegi hennar, greip hún fastar um stýrið. Þegar hún þaut framhjá hliðargötu, kom hún auga á lögregluþjón, sem var að stíga á bak mótorhjóli. Hún horfði nógu lengi til hliðar, til að fullvissa sig um, að þetta væri rétti lögreglu- þjónninn. Hún sá, að hann rétti upp hendina og heyrði, að hann kallaði til hennar að stanza. -—- Ekki fléiri armbönd, vinur minn, hugsaði hún og jók hraðann. Lögregluþjónninn átti sýnilega erfitt með að komast af stað, því hún heyrði ekki í mótorhjól- inu á eftir sér. Hún vissi, að rétt áður en hún kom að næsta þorpi, lá fáfarinn stígur út af aðalbrautinni, næstum samsíða henni. Ef hún kæmist þangað, hefði hún beinan veg margar mílur framundan. En þá yrði hún að snúa bílnum næstum alveg við, um leið og hún tæki beygj- una, og það yrði ekki auðvelt á annarri eins ferð. Nú heyrði hún reglulegt hljóðið i mótorhjólinu, og sá sem hún átti von á, kom í ljós i speglinum. Hún beindi allri athygli sinni að því að halda bilnum á hálum veginum, um leið og hún hugs- aði: Það er verra fyrir hann á aðeins tveimur- hjólum, en mig á fjórum. Þetta gerði hana enn ákveðnari í að láta ekki ná sér og hún var fús til að hætta á hvað sem var. Samt sem áður færð- ist maðurinn á mótorhjólinu nær. Bíllinn hent- ist til, þegar framhjólin fóru yfir ójöfnu á veg- inum, en hún náði aftur valdi yfir honum. Hún kunni sem betur fór að aka! Hún var því fegin, þegar hún kom auga á hlið- argötuna framundan til hægri. Hún mundi geta náð beygjunni, jafnvel án þess að draga úr ferð- inni, ef hún léti bílinn renna til á veginum. Það gæti maðurinn á mótorhjólinu ekki gert og hlyti því að þjóta áfram inn í þorpið, svo börn og hundar yrðu að forða sér í allar áttir. Hún skemmti sér vel við tilhugsunina um þetta, þó alvörusvipurinn á andliti hennar breyttist ekki. Hún tók fastar um stýrið, sveigði til vinstri, steig á hemlana og bjóst við að finna bílinn renna til hliðar. 1 þess stað hentist hann til, og hún heyrði brothljóð í gleri og stáli og einhver æpti. Framhald í næsta blaði. 6

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.