Vikan


Vikan - 14.01.1954, Síða 14

Vikan - 14.01.1954, Síða 14
BEÉFASAMBÖND MADLI SVARTVEIT (við pilta 17—22 ára) og- RAGNHILD RISVELD (við pilta 18—24 ára) báðar í Hardanger folkehögskule, Lofthus, Hard- anger, Norge. — GUNNAR GUNNARS (við stúlkur 14—16 ára), JÓN JÓHANNESSON og JAKOB ÞÓRARINSSON (við stúlkur 15—17 ára). — RAFNAR GUÐMUNDSSON og GUÐ- MUNDUR SVERRISSON (við stúlkur 16—18 ára), allir á Héraðsskólanum í Reykholti, Borg- arfirði. — EYGLÓ SIGFÚSDÓTTIR (við pilt eða stúlku 11—13 ára), Tjarnargötu 4, Keflavík. Drengirnir og fjallið '■ Framhald af bls. 3. á jafnsléttu, gengum við að hinni hlið klettsins, en gáfumst upp við að klifra suðaustur hlið hans. En þar sem við vorum ungir, vorum við ákveðnir í að komast upp. Við völd- um norðvestur hliðina. Þarna gekk okk- úr vel af stað, því þar var auðvelt að ná hand- og fótfestu. Þegar við vorum komnir nokkuð áleiðis, komst ég út á sillu, sem iá til suðurs, fann auðvelda leið upp og innan skamms var ég kominn hálfan annan meter upp fyrir Doug og var þremur metrum lengra til vinstri en hann. Skyndilega lét sillan, sem ég stóð á, undan. Um leið og hún hrundi, náði ég taki á góðri sprungu. Þarna hékk ég nú á höndunum í 60 metra hæð og hrópaði á hjálp. Doug lagði undir eins af stað í áttina til mín, um leið og harin æpti: — Haltu þér! Ég er að koma! Og ég hélt svo sann- arlega dauðahaldi. Hver sekúnda virti'st eins og heil mínúta og hver mínúta eins og klukkutími. Ég missi takið, hugsaði ég, og í hug- anum sá ég urðina fyrir neðan. Hún virt- i^t draga mig til sín. Ég reyndi að kalla til Doug, en hljóðið kafnaði í þurrum hálsinum á mér. Ég minntist orðanna, sem pabbi hafði sagt, áður en hann gekk undir uppskurð, sem leiddi hann til dauða: Ef ég dey, verður það sæla, en ef ég lifi, verður það fyrir miskunnsemi. Ég skildi ekki, að það gæti verið sælt að deyja, en kannski lifðum við fyrir miskunnsemi einhvers, sem væri sterkari en bæði ég og Doug. Ég bað guð að gefa mér styrk til að gera hið óframkvæmanlega. Ég fann að einhver ýtti vinstri fæti Tímaritið SAMTÍÐIN flytur kvennaþætti, framhaldssögur, smásög- ur, bókafregnir, getraunir, bráðfyndnar skop- sögur, víðsjá, ferða- og flugmálaþætti, sam- talsþætti, frægar ástarjátningar, bridgeþætti, úrvalsgreinar úr erl. tímaritum, ævisögur frægra manna o. m. fl. 10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr. Póstsendið í dag meðfylgjandi pöntun: Nýir áskrifendur fá 1 eldri árgang í kaup- bæti. Ég undirrit..... óska að gerast áskrif- andi að SAMTlÐINNI og sendi hér með ár- gjaldið, 35 kr. Nafn ................................. Heimili Utanáskrift vor er: SAMTlÐIN, Pósthólf 75, Reykjavík. mínum upp á við, og heyrði eins og í draumi rödd Dougs. — Þú hefur fótfestu 5 sm. fyrir ofan vinstri tána á þér. Doug kom fætinum fyrir á réttum stað. Ég dró mig upp og lét olnbogana hvíla á sillunni, sem ég hafði hangið á. Ég rétti úr fingr- unum og beygði úlnliðina, til að fá líf í þá aftur. Þegar við vorum komnir rétt upp fyr- ir staðinn, þar sem Doug hafði bjargað lífi mínu, fundum við ágæta leið upp á tindinn. Það var klettaskora, sem lá næst- um alla leið upp. Við klifruðum upp á sokkaleistunum og studdum bakinu og höndunum ’við vegginn á móti. Þegar við komum upp, var sólin að setj- fast. Við vorum kátir og galsafengnir og ræddum um útsýnið. Við æptum og hróp- uðum til sléttunnar, sem lá fyrir fótum okkar. Þennan júlídag á Kloochmantind- inum kunnum við Doug betur að meta lífið, af því dauðinn hafði staðið svo ná- lægt okkur. Það virtist svo dásamlegt að vera á lífi, draga andann, nota vöðvana, hrópa og horfa. IMýtt vopn ... Framhald af bls. 13. menn eru ýmsu vanir í útvarps- og sjón- varpssendingum sínum, og enginn varð hót hneikslaður. Og það sem var jafnvel betra: hin nýstárlega aðferð byrjaði strax að gefa góða raun. Tveimur mínútum eftir að sjónvarpað var mynd af einum lögbrjóti, hringdi húsmóðir nokkur og sagði: ,,Ef þið send- ið menn á kjötmarkaðinn á Exposition- götu, þá munið þið finna þann, sem þið leitið að, bak við eitt afgreiðsluborðið.“ Hálfri stundu síðar var sá eftirlýsti kom- inn niður á lögreglustöð. Eftir að sjónvarpað var myndum tveggja ungra manna, sem brotist höfðu út úr fangelsi og farið með ráni og rupli um borgina og nágrenni hennar, var hringt frá San Fernando dalnum og til- kynnt, að þeir hefðu sést fara þar um á norðurleið. Árangurinn var sá, að þeir náðust samdægurs. Þjónustustúlka í veitingahúsi, sem að staðaldri fylgdist með hinum nýstárlegu sjónvarpssendingum, þóttist kannast við tvo eftirlýsta menn, þegar hún afgreiddi þá. Hún skrifaði hjá sér númerið á bíl þeirra hringdi síðan á lögregluna. Götu- lögreglan hafði þá mjög fljótlega í sinni vörslu. Stundum er þetta eins og í bíóreyfara. Eftir að lögreglan hafði auglýst eftir konu nokkurri fyrir ávísanafölsun, hringdi maður, sem ekki vildi láta nafn síns get- ið, og sagði að konuna væri að finna í til- greindu húsi í Hollywood. Þegar lögreglu- menn fóru þangað í skyndi, sáu þeir ferðatöskur á tröppunum. Hin grunaða opnaði sjálf fyrir þeim, þegar þeir hringdu dyrabjöllunni. Hún átti von á leigubíl. I staðinn fékk hún ókeypis far í lögreglubíl. Ofan á allt þetta, hafa sjónvarpssend- ingar lögreglunnar oftar en einu sinni orðið til þess að lögbrjótar hafa sjálf- viljugir gefið sig henni á vald. Það gerði til dæmis maðurinn, sem var að horfa á sjónvarp í anddyri hótels nokkurs, þegar hans eigin mynd allt í einu birtist á sýn- ingartjaldinu. Og sömu sögu er að segja af stúlkunni, sem gerðist félagi forherts glæpamanns, ruddist inn í verzlun um há- bjartan dag með byssu í hendi, tókst á við gjaldkerann og slapp burtu með tals- verða peningaupphæð. Þegar mynd henn- ar var sjónvarpað, komu upphringingar 699. krossgáta Vikunnar Lárétt skýring: 1 ávöxtur — 7 fjall í Asíu — 12 llffæri — 13 nautnalyfi — 15 á flík —• 17 títt — 18 viðdvöl — 20 einkennisstafir ■— 21 gras •— 23 biblíunafn — 26 tveir eins — 27 fyrir skömmu — 29 slarka — 31 sæma tign — 32 þráður -— 34 gap — 36 skammstöfun — 37 band — 38 poka — 39 þrír eins — 40 tónn — 41 snyrta — 43 ásökun — 45 titill, sk.st. — 46 eyða — 48 miskunna — 50 veður -— 52 starf — 53 æðir — 55 athugaðu — 57 þynna — 60 vera til — 61 áflog' — 62 gefa frá sér hljóð — 64 hvetji — 66 greinir — 67 kveikur — 69 líkamshluti — 71 mannsnafn,, þf. — 72 mannsnafn — 75 þagga niður — 77 verkamaður — 78 bærði á sér. Lóðrétt skýring: 1 kuldaáverki — 2 steinefni — 3 tveir sam- stæðir — 4 gimsteinn — 5 tónn — 6 sigað — 7 tveir samstæðir — 8 flokka — 9 keyr — 10 bók — 11 seinlegur — 14 fjöldi — 16 fé —- 17 gruna — 19 vaða — 21 skjótráður — 22 ill — 24 tímabil, þf. — 25 korti — 28 óhreinka — 30 fugl — 33 dvelja —• 35 greinir ■— 37 lét af hendi — 38 tímabil — 38b gæfa — 40 læknissetur — 42 blíðu- hót — 44 bætir — 45 tákn •— 47 mark — 49 hús- dýra — 51 óðagot — 54 flokkaði — 56 svif — 58 fold — 59 = 18 lárétt — 63 vatnadýr — 65 hérað í Noregi — 68 fjörug — 70 raálmur — 71 þrír eins — 73 fangamark skóla — 74 frum- efnistákn — 75 forsetning — 76 skammstöfun. Lausn á 698. krossgátu Vikunnar. Lárétt: 1 nýár — 5 ábati — 8 Rúna — 12 aflar — 14 örður — 15 gil — 16 eta —• 18 gat — 20 ama — 21 an —■ 22 flækingur — 25 dr. — 26 galli — 28 glata — 31 lóa — 32 kná — 34 afi — 36 volk — 37 klifa -— 39 slor — 40 Adua —- 41 rusk — 42 fals — 44 lumar — 46 Ingi — '48 akk — 50 fum — 51 sný — 52 skóla •— 54 Danir — 56 op — 57 rafölduna — 60 ek — 62 las — 64 gin — 65 ugg — 66 aga — 67 grána — 69 aukir — 71 aðla — 72 uglan — 73 mana. Lóðrétt: 1 naga — 2 ýfing — 3 áll -— 4 ra ,— 6 blak — 7 tign — 8 rr — 9 úða — 10 numda — 11 arar — 13 rella--14 ötula — 17 tæi ■— 19 agg — 22 flókaskór — 23 iðni — 24 Rafskinna — 27 alí — 29 til — 30 svífa — 32 klauf — 33 áfram — 35 grein — 37 kul — 38 aur — 43 lak —• 45 musl —• 47 nýi — 49 klaga -— 51 sanga — 52 sparð — 53 afi — 54 dug — 55 regin — 56 Olga — 58 önug —- 59 dula — 61 kara—• 63 sál — 66 aka — 68 na — 70 um. Svör við „Veiztu —?“ á bls. 5: 1. Red Skelton, kvikmyndaleikari. 2. Fjóra: vömbina, keppinn, lakkann og vinstr- ina. 3. Montreal. 4. 1881. 5. Pokastrigi. Hún vex mest í óshólmum árinn- ar Ganges á Vestur-Indlandi. 6. 1940. 7. Fylgdarmaður Garðars Svafarssonar, sem varð' eftir á íslandi. 8. Verdi. 9. Belgía, Frakkland og Þýzkaland. 10. Herðakistill. frá nokkrum veitingakrám, þar sem hún hafði sést. En á meðan lögreglan leitaði hennar í nánd við þessa staði, gaf hún sig fram á lögreglustöð. „Ég get ekki þolað að sjá mynd af mér í sjónvarpinu," sagði hún. 14

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.