Vikan - 17.03.1955, Síða 16
/
Aukið þægindi og verðmæti íbúðar yðar
með því að nota
♦
Tvöfalt einangrunargler
Eitt bezta ráð er fundist hefir til einangrunar gegn kulda.
í mörg ár hafði fjöldi hugvitsmanna glímt við þá þraut, að ráða bót á þeim óþægindum, sem tvennir
gluggar hafa í för með sér. Þeir höfðu leitast við að finna rúður í þeirra stað, sem með hægu móti gerðu
tvenna glugga óþarfa/
Allir vita af eigin raun um þau óþægindi og þær skemmdir, sem af því stafa, að vatn safnast í
gluggakistur, og þá ekki síður hið mikla hitatap er einfaldir gluggar valda.
Með því að nota THERMOPANE eru allir slíkir annmarkar úr sögunni
: Rúöan í THERMOPANE glugga er ein,
þó hún sé tvöföld.
Fœst meö Vi og V2 tommu loftrúmi eftir
óskum kawpanda.
Höfuðkostir THERMOPANE:
Sparar stórkostlega hitakostnað.
Dregur verulega úr hávaða.
Jafnari hiti vetur og sumar.
Húsið betra til íbúðar sökum þess að það er hlýrra. Vatn
hættir að safnast í glugga. Minni hávaði berst inn utanfrá.
Ibúðin verður bjartari því glugga má hafa stærri án þess
að hiti missist.
Gluggar með þessum rúðum hafa alla kosti tvennra glugga,
en enga ókosti.
Auðveldara er að halda gluggunum hreinum, því hvorki er
um að ræða raka né ryk á milli innri og ytri rúðu.
AthUgíð að Thermopane getið þér aðeins keypt hjá okkur
Verð og sýnishorn getið þér fengið á skrifstofu okkar
w
II I
16
STEINDÓRSPRENT H.F.