Vikan


Vikan - 05.07.1956, Blaðsíða 5

Vikan - 05.07.1956, Blaðsíða 5
wetsky, varð að draga sig til baka, þar sem samlyndið var ekki sem bezt milli hans og stjarn- anna tveggja. 1 hans stað kom hinn þolinmóði Edmund Goulding, en það gekk heldur ekki vel. „Það var uppreisnarandi í Gilbert frá byrjun,“ sagði einn af aðstoðarmönnunum. „Hann ætlaði að sýna Gretu hve duglegur hann væri og í hvet'ju einasta atriði tók hann fram fyrir hend- urriar á Goulding. Hann vildi helzt stjórna sjálfur. Greta hélt því fram að hún gæti ekki leikið ef einhver horfði á og vildi helzt að ljósameistar- arnir og aðstoðarmennirnir færu út á meðan hennar atriði voru filmuð. Allir reyndu að gera henni til hæfis, en það var hreint ekki svo auð- velt. Greta kvartaði líka oft yfir því að hún væri ,,svo þreytt, að hún yrði að sofna“ og var vön að hverfa til búningaklefa síns eftir hvert atriði til að hvíla sig eða drekka kaffi, sem herbergis- þerna hennar varð alltaf að hafa heitt. Starf stjórnandans var enn erfiðara vegna stöð- ugra breytinga á einkasambandi þeirra Gretu og Gilberts. Einn daginn voru þau beztu vinir, en næsta dag töluðu þau ekki saman. En á hverju sem gekk á milli þeirra . . . skaut Greta öllum vandamálum undir úrskurð Gilberts. Svar hennar var alltaf: ,,Ég ætla að spyrja John.“ Þrátt fyrir alla þessa erfiðleika meðan á mynda- tökunni stóð, tóku gagnrýnendur myndinni með ágætum og slegist var um miða að sýningunum. „Gieta Garbo er fallegri en nokkru sinni fyrr . . . myndin er stórkostleg, og stjörnurnar hefðu ekki getað leikið betur.“ Þannig hljómuðu dómarnir eftir frumsýninguna í New York. Og til þess að áhorfendurnir þyrftu ekki að vera í neinni óvissu um hvað þeir ættu í vændum, hafði kvikmynda- hússtjórinn látið mála geysistórt blóðrautt hjarta á tjaldið. , Jafnvel þótt Svíar hefðu ekki smekk fyrir svo óviðeigandi auglýsingar, var ,,Ást“ vel tekið í Svíþjóð. Greta hafði ekki lagt gagnrýnendur heima fyrir að fótum sér með fyrri myndum sín- um. 1 mesta lagi höfðu þeir komizt að þeirri nið- urstöðu, að hún væri sæmilegur gamanleikari, sem hefði möguleika til að taka framförum, en hún væri enn óþroskuð. Þessi skoðxm breyttist eftir sýningu „Ástar“. „Greta Garbo hefur aldrei sýnt betri leik,“ skrifaði Robin Hood. „Nú er hún allt önnur en í fyrri myndum sínum í Ameriku — fallega vaxin, grönn og liðug eins og vafnings- jurt, og hefur tvö seiðandi augnalok sem gefa til kynna heitar tilfinningar. Hún hefur smátt og smátt breytzt úr gamanleikara í leikara, sem hefur til að bera dýpt og alvöru. Leikur hennar í hinu erfiða hlutverki Önnu Kareninu er áhrifa- mikill, oft hrífandi og mannlegur." Nú áleit Metro-Goldwyn að timi væri til þess kominn að kynna Gretu sem stjöi'nu, eina og út af fyrir sig. 1 næstu mynd skyldi mótleikari hennar vera gamanleikari, sem ekki væri mjög þekktur. Og skörpustu mennirnir í þjónustu Metro fengu skipun um að finna nú hlutverk, sem hæfði henni. Eftir margar og miklar umræður ui'ðu menn loks á eitt sáttir: Garbo átti að leika Eeinhardt. Handritið átti að byggjast á sögu Gladis Ungei’s um Söru Bernhardt: „Stjörnublik". Meti-o fannst nafnið of bragðdauft og ákvað að breyta því í eitthvað meira töfrandi, og úr því varð „Guðdómleg kona“. Lars Hanson vai'ð mót- leikari hennar, og i hlutverkaskránni voru nöfn ágætra annarsflokks leikara: Lowell Sherman, Polly Moran og John Mack Brown. Þetta var hugmynd sem Stiller var hlynntur. Stjax-nan, sem hann hafði uppgötvað, átti að leika hina frægu Söi'u, og þetta var tækifærið til að sýna að skjólstæðingur hans væi’i þeim hæfi- leikum búinn, sem hann hafði alltaf haldið fram. Hinn ágæti vinur hans, Lars Hanson, átti að leika aðalkarlmannshlutveikið. Auk þess voru hinir ágætu aðstoðai’leikarar. Þetta var mynd sem hann, Stiller, vildi stjórna! Hann reyndi á allan hugsanlegan hátt að koma því til leiðar, að honuixx yrði fengin stjói-nin i hendur, en honum íxxistókst. Metro réð samstarfsmann hans, Victor Sjöströnx. Stiller áleit þetta lokamóðgxinina •— hversu mikið sem honum faixnst til Sjöströms koma. Stiller hafði nú gengið Hollywoodgötuna á enda. Eftir „Hótel Imperial" hafði hann stjórnað tveim myndum, en engri sem var að hans skapi: „Mót- læti konunnar“ með Pola Negri og Einar Hanson og „Gata syndarinnar" með Emil Jannings og Fay Wray. Báðai' þessar myndir voru algjörlega misheppnaðar. Meðan á töku Janningsmyndar- innar stóð hafði deila komið upp á milli hans og Paramount og endað í óvináttu. Þar sem hann vai' nú kominn á svarta listann hjá bæði Metro og Paramount var ekki nema um eitt að ræða fyrir hann. Hann pakkaði niður og fór heim. Sjöström og Greta voru þau einu, sem fylgdu honum i lestina. Greta og Stiller grétu bæði þegar hann kyssti hana að skilnaði. „Við sjá- umst iixnan skamms," hrópaði hún þegar lestin í-ann af stað. Þetta var síðasta sinn sem hún sá velgjörðarmann sinn. Þegar Stiller kom aftur til Svíþjóðar þjáðist hann af lungnasjúkdómi, en einnig af ólæknandi blóðsjúkdómi, sem honum var ókunnugt um. Hann neitaði að leita læknis, en treysti á nudd og leikfimi, sem auðvitað gei-ði ástandið enn verra. Hann kvartaði aldrei, og vinir hans héldu að hann væri fullkomlega heilbrigður. Hann seldi húsið sitt rétt utan víð Stokkhólm og flutti til borgarinnar. Ái'ið 1928 gerði hann samning við Oscarsleikhúsið, senx þá var í’ekið af þre- menningunum Gösta Ekman, Pauline og John Brunius, um að gera kvikmynd eftir ameríska leikritinu „Broadway" með Gösta Ekman og Inga Tidblad í aðalhlutverkum. Kvöldið, sem myndin hafði verið sýnd, ráfaði hann um göt- urnar fram undir morgun með vini sínum Olof Andersson, sem var einnig i sænska kvikmynda- iðnaðinum. Olof Andersson segir, að hann hafi ýmist verið æstur eða niðurdreginn. Þegar hann hafði keypt morgunbloðin og lesið í þeim, að myndin væi’i vel heppnuð, grét hann. Þessi upphefð, eftir svo mikil vonbrigði, vakti aftur sjálfstraust Stillers. Nú var hann aftur uppfullur af nýjum hugmyndum. Hann tók að rannsaka möguleikana á því að gera kvikmynd í Englandi, en þvemeitaði að gera nýja samn- inga í Hollywood. Ester Juhlin hafði sýnt honum handrit, sem hann gerði sér miklar vonir um, og þau ráðgerðu að fara til Ameríku um Madeira, þar sem Stillei' vonaði að loftslagið myndi hafa góð áhrif á heilsu hans. Hugo Lindberg, lögfræð- ingur Stillers, man eftir því, að Stiller minntist á þetta verkefni sitt á hátíð nokkurri, árið 1928. Þeir gengu saman frá hátíðahöldunum. „Þegar við komum út í svalt næturloftið tók Stiller að hósta," segir Lindberg. „Þú getur ekki látið þetta afskiptalaust,“ sagði ég, „þú verður að gera eitthvað við þessu.“ Hann svaraði að þetta væri ekkert hættulegt og fór að tala um eitthvað ann- að. Þrem dögum síðar féll hann í öngvit og var fluttur á sjúkrahús Rauða Krossins. Þar var hann enn þegar Sjöström kom aftur til Stokkhólms í nóvember. „Ég sá að dauðinn hafði sett merki sitt á hann, um leið og ég kom inn í sjúkrastofuna," sagði Sjöström. „Þvílíkir endur- fundir! —- Hann hafði yfii’gefið Hollywood fyrir einu ári síðan, glaður yfir því að vera nú að fara heim. Hann vissi að ég myndi koma og hafði beðið mín óþolinmóður. Hann grét eins og barn þegar hann sá mig.“ En Stiller náði sér fljótlega. Hann var ekki búinn að gleyma hinni venjulegu gesti’isni sinni, og hafði því fengið leyfi læknisins til þess að taka i’ausnarlega á móti Sjöström. Dyrnar opnuðust skyndilega og hjúkrunarkona kom inn með kampavínsflösku, sem vinii'nir gæddu sér á. „Ef ég lifi þetta af, er það þér að þakka,“ sagði Stiller þegar Sjöström fói'. Sjösti-öm kom daglega til Stillers, sem var sólginn í fréttir, einkum af Gretu. Hún hafði skrifað möi’g bréf, en Stiller þurfti samt margs að spyi'ja. Sjöström talaði sig móðan um sigur hennai' í „Guðdómleg kona“, sem hafði verið vel tekið. Eftir að hafa lokið við þá mynd, hafði hún leikið rússneskan njósnara í „Dularfulla konan", sem stjói-nað var af Fred Noblo, en hann hafði tekið við af Stiller í „Freistarinn". Þegar Sjö- ström sagði honum, að „Dularfulla konan" hefði verið lítilfjörleg — þrátt fyrir leik Gretu — sagði Stiller biturri í'öddu, að hann fui'ðaði ekkert á Apj afplánar 1r fangelsi í Bogota, Colombíu, er api að af- plána sex mánaða dóm. Apagreyið beit eiganda sinn og eigandinn vildi láta farga honunx. Dýraverndunarfélagið á staðnunx skarst þá í leikinn og krafðist þess að dónxur yrði látinn ganga yfir sökudólgnum. Apinn var færður fyrir dónxara, sem kvað upp þann mannúðlega úrskurð, að þai' senx hér væri um fyrsta brot að ræða yrði sex mánaða fangelsi að nægja. Þegar apinn er búinn að afplána, verður hann annaðhvort af- hentur eiganda sínurn eða dýragarði borgar- innar. því. Vinsældir hennar jukust stöðugt, hélt Sjö- strönx áfram, og hún hafði lokið við leik sinn í „Græna hattinum" ef.tir metsölubók Michaels Ai-lens. Nú var hún að leika í áttundu amerísku myndinni „Villtar orkidíur". Og mótleikari hemx- ar þar var landi hennar, Nils Asther. Metro hafði fengið henni nóg að starfa, kannski full mikið fyrir heilsu hennar, sagði Sjöström. Þegar hún hefði loltið leik sínunx í „Villtar orkidíur" ætlaði hún að hvíla sig i nokkrar vikur og konxa svo heim fyrir jól. Stillei' þótti vænt um að heyra þetta og hann vonaðist til að vera laus af sjúkra- húsinu fyrir þann tíma. En heilsxx hans hrakaði skyndilega eftir upp- skurð. — Dag nokkurn, þegar ég var nýkominn heim frá sjúkrahúsinu, hringdi hjúkraunarkonan hans til mín og sagði, að Stiller vildi að ég kænxi strax aftur til sín, þar sem hann þyrfti að segja mér eitthvað áríðandi. Ég flýtti mér aftur til sjúkrahússins og sát hjá honum í heila klukku- stund til þess að hlusta á það sem hann hafði að segja mér. En hann talaði bara um einskisverða hluti. Að lokum sagði hjúkrunarkonan, að ég mætti ekki dvelja lengur. Þá varð Stiller æfur. Hann þreif í handlegginn á mér og vildi ekki sleppa mér. Ég er ekki búinn að segja þér það sem ég ætlaði að Segja, hrópaði hann. Hjúkrunar- kona losaði tak hans um handlegg mér og ýtti mér út að dyrunum. Ég í’eyndi að róa hann og sagði að við gætum talað betur saman næsta dag. Eix hann varð bara enn æstari. Andlit hans var baðað tárum. Og svo sagði hann: „Ég ætlaði að tala við þig unx mynd —- stórkostlega mynd — um sannar manneskjur, og þú ei't sá eini, sem getur séð unx hana.“ Ég vissi ekki hverju ég ætti að svara. Já, já, Moje, var það eina senx ég gat stunið upp. Við skulum tala um þetta strax á morgun. Hann hvildi grátandi í örmunx hjúkrunarkonunnar þegar ég fór. Það urðu engar samræður næsta dag. Stiller dó 9. nóvember 1928, fjörutíu og fimm ára að aldri. Sjöströnx tilkynnti Gretu þetta íxleð símskeyti. Hún fékk það þegar hún var að leika í „Villtar oi'kidíur", mitt í ástarsenu með Nils Asther. — Hún varð náföl, var sagt, og nxenn héldu að hún mundi falla í öngvit. Hxin gekk xit úr salnum eins og í leiðslu. Þegar hún kom út, hallaði hún sér upp að húsveggnum og þrýsti höixdunum fyrir augxm, og þannig stóð hún góða stund. Svo rétti hún úr sér, fór inn aftur og laulc við atriðið. Hún sagði engurn hvað hafði staðið í símskeytinu. Stiller lét ekki eftir sig neina arfleiðsluskrá og — hvað sem xuxx það hefur verið sagt — fékk Greta ekkert eftir hann. Hún fékk þó xxxjög fallegt olíumálverk eftir hann. Peningaeign Stillers nam 626.000 krónum, sem aðallega stóð á þrenx bönkum í Santa Monica. Það var ósk hans, sagði Hugo Lindberg, að tveir bræður hans í Anxeríku fengju peningana. En það konx brátt í ljós, að lánardrottnar hans, og þá fyrst og fremst Sænski kvikmyndaiðnaðurinn, gerðu tilkall til þeii-ra, en þeir nægðu engan veginn fyrir skuldununx. Vinum 'hans konx engan veginn á óvart að hann skýldi deyja eignalaus. Hann hafði alltaf lifað x'xxx cfni fram — á öllunx sviðxirri. Framhálcl í nœsta blaði. 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.