Vikan - 27.06.1957, Qupperneq 15
PÓSTURINN
Framhdld af bls. 2.
legur, þegar maður ber saman launa-
greiðslur hérna og í Svíþjóð.
Svar til Nonna: Síminn auglýsti
fyrir skemmstu, að óhjákvæmileg
töf yrði á því, að þeir Kópavogsbúar,
sem pantað hafa síma, kæmust í sam-
band við umheiminn. Ástæða: drátt-
ur á efnissendingu frá útlöndum. En
þó munu Kópavogsbúar mega reikna
með að fá símann í sumar.
Dóttir mín er sendill í sumar hjá
stóru fyrirtceki í Reykjavík. Hún er
fimmtán ára. Vinnutíminn átti að
vera frá níu til sex.
Bn nú bregður svo við, að hún er
sjaldnast komin heim fyrr en um sjö,
er látin vinna klukkutima lengur en
um var samið.
Auk þess er hún oft látin vinna
á lager fyrirtœkisins, en það verzlar
meðal annars með vélar og vélahluti.
Þetta virðist vera í meira lagi óhreint
lagerpláss, þvi að vinnuföt telpunnar
eru oft útötuð í oliu og einhverskon-
ar feiti, þegar hún kemur heim.
Nú vil ég spyrja, hvort VIKUNNI
finnist ekki sem fyrirtœkið sé að
ganga á gerða samninga f Mér sýnist
sem það sé þarna búið að fá sér
„lagermann“ fyrir svosem þriðjung
þess sem slíkir menn venjulegast
kosta. — Gröm móðir.
SVAR: Öneitanlega virðist lager-
vinnan eiga lítið skylt við sendils-
stöðu. Hversvegna talið þér ekki við
forstjórann ?
1 vetur sagði VIKAN frá þvi, að
verið vœri að búa til nýja mynd eft-
ir leikriti Shaws um mærina frá
Orleans. Ung og óþekkt leikkona var
valin i hlutverkið. Mig langar að
skrifa henni, en er búin að týna blað-
inu. Hvað heitir stúlkanf — Kata.
SVAR: Jean Seberg. Hún er átján
ára og á heima í Marshalltown, Iowa,
U.S.A.
Þessi spurning hefur víst áður ver-
ið lögð fyrir „Póstinn", en þó vildi
ég mega endurtaka hana: Er hægt að
komast í vist til Bandarikjanna og
hver eru launinf Eg er 22 ára og á
LOFTKÆLDAR
DIESELDRÁTTARVÉLAR
VERÐLÆKKUN
Þrátt fyrir hækkandi verðlag bjóðum viö íslenzkum
bændum Deutz-dráttarvélarnar á lækkuðu verði. Meö
stóraukinni framleiðslu og nýtízku framleiðsluháttum
hafa Deutz-verksmiðjumar lækkað framleiðslukostn-
aðinn til muna.
Auk 11 ha. og 15 ha. Deutz-dráttarvólanna, sem þegar
eru íslenzkum bændum að góðu kunnar, útvegum vér
tvær nýjar stærðir, 18 ha. og 24 ha.
Bændur, kynnið yður verð Deutz-dieseldráttarvélanna,
áður en þér festið kaup á dráttarvél.
Hlutafélaqið HAMAR
heima í sveit, en hef verið einn vet-
ur á húsmœðraskóla. — K. K.
SVAR: Hægt mun það vera, en
það tekur langan tíma og talsverða
fyrirhöfn að koma þessu í kring. Til
dæmis getur það tekið nokkra mán-
uði að fá vegabréfsáritun — og fæst
hún þó ekki undantekningarlaust. —
Samkvæmt góðum heimildum, munu
útlendar stúlkur mega reikna með
100—150 dollara mánaðarkaupi t. d.
í New York. Allt frítt að sjálfsögðu
og venjulegast einn og hálfur frídag-
ur á viku.
Finnur! Þú getur eflaust fengið
upplýsingar um þetta, ef þú snýrð
þér til Barnaverndarnefndar. í>ú
getur naumast látið þetta afskipta-
laust.
BRÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og' heimilisfangl
kostar 5 krónur.
Sigurbjörg Isaksdóttir, Kelduhverfi,
N.-Þing. og Kristin Erlingsdóttir,
Ásbyrgi, Kelduhverfi, N.-Þing., báð-
ar við 16 til 19 ára pilta. — Hulda
Hraundal (við 19—24 ára pilta) og
Elsa Júlíusdóttir (við 17—20 ára
pilta), báðar á Klapparstíg 3, Kefla-
vík. — Þuríður Bjarnadóttir, Hverf-
isgötu 60, Rvík., og Inga Gunnars-
dóttir, Laugaveg 68, Rvk., báðar við
18—22 ára sjómenn. — Huida Tómas-
dóttir (við 15—18 ára pilta), Kamba-
stíg 6, Sauðárkróki.
1 flestum stórborgum, við helstu gatnamót og á fjöl-
förnum strætum fylgist SOLARI-klukkan með tíman-
um og birtir vegfarendum vikudag, klukkustimd og
mínútur.
ÍTTMnMpjp
8 44
Klukkan sýnir á ljósan hátt hvað tímanum líður
og birtir auk þess auglýsingar frá ýmsum fyrirtækj-
um.
Hver auglýsing birtist 20 sinnum á klukkustund.
I Reykjavík er SOLARl-klukka á Söluturninum við
Arnarhól.
Þeir, sem eiga leið um Hverfisgötuna, vita hva'ð tím-
anum líður.
H.F. EIMSKIPAFELAG islands
AUKAFUNDUR
Áukafundur í hlutafélaginu Eimskipafélag Islands, verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardag-
inn 9. nóvember 1957 og hefst kl. 1% e. h.
DAGSIvRA :
1. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
Aðköngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa, dágana 6.—8. nóvember næstk. Menn
geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn í
aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný um-
boð og afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félags-
ins í hendur til skrásetningar 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi
síðar en 30. okt. 1957.
Reykjavík, 11. júní 1957.
STJÓRNIN.
VIKAN
15