Vikan - 05.10.1967, Blaðsíða 4
DANSKAR 0 G NORSKAR
HARÐVIÐARHURÐIR í ÚRVALS
GÆÐAFLOKKI
Q
Q1 ffl
■■ UJ
Ú T I H U R Ð I R Verð fró kr. 2.400,00.
Bílskúrshurðir með iórnum, læsingu og karmi.
Verð: Harðvið, kr. 11.900,00.
Verð: Furu, fró kr. 7.900,00.
Innihurðir úr harðvið með karmi lömum og læsingu.
Verð: Frá kr. 1.900,00.
FÁST í: E I K, TEK, MAHOGNI.
SJÖUNDÁRMORÐIN.
Kæri Póstur!
Getur þú ekki frætt mig svo-
lítið um morðin, sem framin voru
á Sjöundá einhvern tíma á öld-
inni sem leið. Ég man óljóst eft-
ir því, þegar mér var sagt frá
þessu fyrir löngu síðan, en get
hvergi fundið neinar heimildir
um þetta.
Ó.
Morð þessi voru framin árið
1802 á Sjöundá í Barðastranda-
sýslu. Bjami Bjarnason og Stein-
unn Sveinsdóttir, sem bæði voru
gift, tóku sig saman til þess að
geta losnað við maka sína og
gift sig innbyrðis. Þetta komst
strax upp, og vom þau bæði
dæmd til lífláts í Kaupmanna-
höfn.
Bjami var aflífaður í Kaup-
mannahöfn, en Steinunn komst
aldrei út því hún dó hér heima,
skömmu eftir þetta.
Ágætar heimildir um þessi
morð er að finna í bókinni Öld-
inni okkar, svo hefur Gunnar
Gunnarsson skrifað bráðsnjalla
skáldsögu um þessa atburði. —
Svartfugl, heitir hún.
BRÉF FRÁ FANGA.
Kæra Vika!
Ég er einn af þeim ólánsmönn-
um, sem ekki kunna fótum sín-
um forráð. Ég sit í hegningar-
húsinu að Skólavörðustíg 9 hér
í borg. Mér hefur nýskeð verið
birtur dómur, sem hljóðar upp
á 15 mánaða fangelsi, og vænti
meira af því tagi. Það er langt
frá því, að ég sé að miklast af
þessu, en bezt er að sannleikur-
inn komi strax fram.
Nú sný ég mér að efninu: Væri
hægt að koma því í kring, að ég
eignaðist pennavin fyrir ykkar
milligöngu, án þess þó að nafn
mitt sé birt í blaðinu. Það vildi
ég síður, því að ég er búinn að
baka eftirlifandi aðstandendum
mínum miklar sorgir vegna fram-
ferðis míns á undanförnu ári, þó
ekki sé meira sagt. Ég vona, að
þið verðið við ósk minni, ef þið
sjáið ykkur fært að koma mér í
samband við einhverja persónu,
sem teldi það ekki fyrir neðan
virðingu sína að standa í bréfa-
skiptum við fanga.
Með fyrirfram þakklæti.
Viff þökkum þetta óvenjulega
bréf. Þeir sem vildu verða viff
ósk bréfritara, vinsamlegast
sendi bréf sín til Vikunnar
merkt „Fangi“. Vikan mun síff-
an sjá um aff koma þeim rétta
leið.
SIR GERALD OG TARRANT.
Kæri Póstur!
Mig hefur lengi langað til að
skrifa þér, og læt ég nú verða
af því um leið og ég þakka allt
gott og skemmtilegt efni, sem
hefur birzt í Vikunni. Þá langar
mig til að spyrja þig, hvort það
sé einn og sami maðurinn í sög-
unni Tígristönn, Sir Gerald og
Tarrant.
Að lokum þessi hvimleiða
spurning: Hvernig er skriftin?
H. S.
P. S. Hvað heldurðu að ég sé
gamall? Ef þú svarar rangt, —
skrifa ég aftur seinna.
Sami.
Jú, Sir Gerald og Tarrant eru
einn og sami maffurinn. Fullu
nafni heitir hann því Sir Gerald
Tarrant. Samkvæmt brezkri
venju ber aff titla þá menn, sem
hafa veriff afflaffir, meff Sir og
síffan fornafninu. — Skriftin er
alls ekki svo afleit. Hún er tals-
vert fastmótuff og þess vegna
gizkum viff á, að þú sért að verða
átján hundruð ára.
FLJÓT AÐ REIÐAST
OG FLJÓT AÐ FYRIRGEFA.
Kæri Póstur!
Ég ætla að leita til þín í mín-
um stökustu vandræðum. Ég er
aðeins 16 ára, en það mætti halda
að ég væri 116 ára. Ég er svo
agaleg í skapinu, en bara með
köflum. Ég er fljót að reiðast,
en fljót að fyrirgefa aftur. Það
þarf mjög lítið til þess að ég
reiðist, og þá ræðst ég á við-
komandi og veit varla hvað ég
geri. Þetta getur komið sér mjög
illa fyrir mig. Samt á ég góða
vini og vinkonur, sem ég um-
gengst mikið, og þau taka ekk-
ert eftir þessu. Þetta bitnar mest
á þeim sem ég umgengst dag-
lega i vinnunni, og þau eru sjald-
an fús til sátta. Ég hef reynt
eins og ég get að halda mér í
skefjum, en ekkert gengur. Hvað
finnst þér að ég eigi að gera?
Fara til sálfræðings eða hvað?
Ég vonast eftir fljótu og góðu
svari.
Þakka fyrirfram birtinguna og
einnig allt gott í Vikunni.
Ein skapmikil.
4 VIKAN 40' tw.