Vikan - 04.11.1971, Page 18
er hún orðin glæsikona, fyrirmynd
um smekklegan klæðnað og fram-
komu meðal léttúðarfullra Parísar-
búa. Hún hafði sex manns í þjón-
ustu sinni, las Hugo, Eugéne Sué og
de Musset, hún umgekkst aðalinn og
annað hástéttarfólk, var vel séður
gestur í veizlusölum á Fauborg
Saint Germain og hún féfletti rík-
asta mann Frakk!ands“.
Hvernig gat hún skapað sér þenn-
an furðulega frama?
Það byrjaði reyndar þegar Marie
var sextán ára og fór með tveim vin-
konum sínum til Saint-Cloud. Þær
fóru inn á ódýrt veitingahús nálægt
Palais Royal. Eigandi veitingahúss-
ins, feitlaginn ekkjumaður, tók strax
eftir Marie og töfraðist af fegurð
hennar. Hann bauð henni að koma
aftur í næstu viku, og þá átti hún
að vera ein. Það leið ekki á löngu
áður en hún var orðin ástmey hans
og hann kom henni fyrir í laglegri
íbúð við Rue de 1‘Arcade. I fyrsta
sinn á ævinni hafði hún nóg fyrir
sig að leggja og innan tíðar kynnt-
ist hún lika munaðarlífinu í Paris.
Kvöld eitt liitti hún Ferdinand de
Monguyon greifa i leikhúsinu og
það kvöld yfirgaf hún kaupmanna-
stéttina og fluttist yfir til aðalsins.
Næsta skref: á dansleik hitti hún
hinn auðuga, unga glaumgosa, An-
genor de Guiche, sem síðar varð
Guiche-Gramont hertogi og að lok-
um utanríkisráðherra Napoleons II.
keisara. Guiche gerði Marie betra
tilboð en greifinn og þau fóru sam-
an til hinna glæsilegu baðstaða í
Þýzkalandi um sumarið. Það er svo
gott sém sannað að með Guiche
eignaðist hún dreng, sem var fædd-
ur í Versölum 1841. Guiche kom
honum strax í fóstur. Eftir því sem
enski ævisöguritarinn Joanna Rich-
ardson segir, þá hefur þessi sonur
hennar náð fullorðinsaldri. „Árið
1869 kom ungur maður, að öllum
líkindum 27 ára gamall, til eldri
systur Marie Duplessis og bað hana
að lofa sér að sjá mynd af Marie.
Þegar hann fór, skildi hann nafn-
spjald sitt eftir. Á því stóð: Judelet,
bókaútgefandi, Tours. Hann var
mjög líkur myndirini af Marie.“
Eftir sambandið við Guiche átti
Marie Duplessis ótal elskhuga, til að
komast fljótar til auðs og frægðar.
Eftir því sem franska blaðið Figaro
sagði, átti hún hvorki meira né
minna en sjö elskhuga samtímis.
Þessir sjö herrar sáu svo sameigin-
lega fyrir henni og fegnu að launum
eina nótt á viku hver. „Þeir sýndu
hve samvinnuþýðir þeir voru, með
því að gefa henni geysilega skraut-
legt snyrtiborð, með sjö skúffum“.
Marie Duplessis umgekkst nú fólk,
sem var langt frá Latínuhverfinu og
hafði engin samskipti við fólkið þar.
Að lokum kom hún sér fyrir í glæsi-
legri íbúð, nr. 11 við Boulevard de
la Madeleine. Forsalurinn var
skreyttur sjaldséðum plöntum. 1
móttökusalnum voru húsgögnin úr
rósaviði, hægindasófar klæddir
Beauvais-vefnúði, skrautmunir úr
silfri og geysistórt Pleyel píanó; i
borðsalnum var stórt eikarborð með
silkidúk, verðmæt gobelinveggteppi
og Dresdenarpostulín. í einkaher-
bergi hennar var hið fræga snyrti-
borð með sinum sjö skúffum og þar
voru líka bækur, bundnar í skinn,
verk eftir Moliére, Byron lávarð og
Abbé Prevost, silki og flauelstjöld
og klæðaskápar fullir af fatnaði frá
madame Palmyre. En aðalherbergið
var auðvitað svefnherbergið, la
chambré á coucher. þar sem Marie
þjónaði elskhugum sínum, með
geysistóru rúmi úr rósarviði, sem
stóð á rósóttri gólfábreiðu. Yið vegg-
inn andspænis rúminu stóð skraut-
leg bronsklukka, skreytt fuglum úr
postulíni, — það var sagt að hún
hefði verið í eigu madame Pompa-
dour.
Árið 1844 var Marie tuttugu ára
og þá átti hún marga elskliuga. En
það var einn ákveðinn maður, sem
stóð fyrir öllum munaðinum á Rou-
levard de la Madeleine. Marie hafði
hitt de Stackelberg fursta við böðin
i Bagnéres. Hann hafði verið am-
bassador Rússlands í Vín, kvæntur,
auðugur og áttræður. Hann var fyr-
irmynd að Mauriac hertoga i skáld-
sögunni Kamelíufrúin. I sögunni er
hann látinn glepjast af Marie vegna
þess að hún minnti hann svo á dótt-
ur hans, sem var látin, og samband
þeirra aðeins platónskt. Dumas
sagði samt að það hefði ekki verið
raunin: „Sagan um dótturina, sem
hertoganum fannst Marie likjast svo
mjög, var hrein firra. Greifinn var,
þrátt fyrir háan aldur alls enginn
Ödipus sem leitað' sinnar Antigonu,
heldur mátti frekar likja honum við
Davíð konung sem þráði sína Bat-
sebu“.
Gamli Rússinn horgaði i laumi
/ alla reikninga Marie, keypti hesta
og vagna frá Bretlandi, leigði fyrir
hana stúkur í fínustu leikhúsunum
i París. En hann var ekki þess megn-
ugur að veita henni þá ást, sem hún
þráði. Hún varð að leita hennar
annars staðar. Frcmstur elskhuga
hennar var hinn glaðværi Edouard
de Perregaux, sem hafði verið í
franska riddaraliðinu i Afriku og
var þá meðlimur Jockey-klúbbsins
í París. Hann heimsótti hana reglu-
lega, þegar Rússinn var líjá konu
sinni.
Það eru til margar lýsingar af
Marie skrifaðar af samtíðarmönn-
um, einmitt frá þeim tíma, þegar
hún var um tvilugt. Jules Janin
minnist þess að hún hafi verið „há-
vax!in, mjög grönn, svarthærð og
hörundið eins og jarðarber og mjólk.
Hún var höfuðsmá og augu hennar
minntu á augu japanskra kvenna —
en þau ljómuðu af gleði. Varir henn-
ar voru rauðari en kirsuber og hún
hafði fallegustu tennur i heimi. Hún
var eins og stytta úr Dresdenar-
postulini“. Þrátt fyrir næturlíf og
svall var hún sakleysið uppmálað.
Dumas minnist þess, þegar hann
skrifar Kamelíufrúna: „Hvernig
mátti það vera að lifnaðarhættir
Marguerite höfðu ekki afmáð svip
hreinleikans af ásjónu liennar, —
það verður alltaf óráðin gáta.“
Ennþá greinilegri mynd af Marie,
dregur ein leikkonan við Théatre
des Variétes, Judith Bernat, upp.
Marie var mikill aðdáandi hennar
og þær urðu góðar vinkonur.
„Hún var óvenjulega aðlaðandi,“
skrifar Judith Bernat í minningum
sínum. „Hún var mjög grönn, næst-
um horuð, en sérstuklega fíngerð og
yndisleg. Andlitið var ávalt og eng-
ilblítt, dökku augun blíð og þung-
lyndisleg, hörundið ferskt og hárið
dásamlegt. Ó, þetta fína, silkimjúka,
svarta hár!
Þegar leikkonan spurði Marie
hvers vegna hún hefði farið út á
þessa braut, faldi Marie andlitið i
höndum sér, hafði upp eftir henni
18 VIKAN 44. TBL.