Vikan - 29.04.1976, Blaðsíða 7
Saumið marga púða sam-
an og þið fáið einstaklega
notalegt teppi — tilvalið
sem aukasæng, þegar gest-
ir gista um stundarsakir.
Efnið í þetta fallega teppi eru
bómullarbútar, annað hvort af-
gangar, eða keyptir sérstaklega í
teppið, til daemis á bútasölum,
þar sem oft fást mjög ódýrir
bútar í teppi eins og þetta. Púð-
arnir eru fylltir með einangrunar-
kúlum. Teppið á myndinni er
úr 24 púðum, hverjum um sig
30x30 sentimetra stórum auk
saumfars. Púðarnir eru saumaðir
saman á röngunni, aðeins skilið
eftir op til að fylla þá. Teppið á
myndinni er grænt að aðallit
öðrum megin og rautt hinum
megin, en auðvitað velur hver liti
fyrirsig. Pegar púðarnir hafa verið
saumaðir saman á röngunni, eru
hliðarnar á þeim stungnar á rétt-
unni, um það bil 1 1/2 sentimetra
frá brún. Púðarnir eru saumaðir
saman með tveimur röðum af
bómullarlengjum, rauðum þeim
megin, sem púðarnir eru rauðir
og grænum á grænu hliðinni.
Athugið að best er að sikksakka
púðana fasta við tengiböndin.